Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Side 23
DV Sport
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 23
Stjarnan er úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 30-29 tap á heimavelli gegn
franska liðinu Mios Biganos. Stjörnustúlkur þurftu að vinna með tveimur mörkum til
að komast áfram en voru sjálfum sér verstar, voru skelfilegar í fyrri hálfleik og máttu
þakka fyrir að vera aðeins 9 mörkum undir þegar fyrri hálfleik lauk.
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
bladcimadur skrifar: benni@d\
íslandsmeistarar Stjörnunnar eru
úr leik í EHF-bikarnum í handknatt-
leik kvenna eftir tap gegn franska lið-
inu U.S. Mios Biganos, 29-30, í síðari
viðureign liðanna í 32 liða úrslitum
keppninnar sem fram fór í Mýrinni.
Frakkarnir unnu fyrri leikinn einnig
með eins marks mun, 27-26.
Fyrri hálfleikur var undarlegur
í meira lagi. Stjaman skoraði fyrsta
markið í leiknum en síðan gerðist
eitthvað sem leikmenn verða að eiga
við sjálfa sig. Leikur liðsins hrundi og
meðalgott Mios-lið hóf stórsókn. Að-
alsteinn Eyjólfsson, þjálfari liðsins,
tók leikhlé í stöðunni 6-3 fyrir Mios
og brýndi verkefni dagsins fýrir sínum
leikmönnum. Orð hans fóru inn um
annað og út um hitt því leikur liðsins
skánaði ekkert. Það einfaidiega hrundi
og hafði enga trú á því sem fýrir það
var lagt. Vamarleikurinn var í molum,
franska liðið gat skorað mikið úr iang-
skotum og sóknarleikur Stjömunnar
var hægur, tilviljanakenndur og ein-
faidiega slakur. Franska liðið skoraði
hvert markið á fætur öðru og þegar
íýrrihálfleiklaukvarstaðan 19-10.
Aðalsteinn hefur væntanlega
tekið hárþurkkumeðferðina góðu
í hálflleiknum því allt annað var
að sjá til liðsins í síðari hálfleik.
Islandsmeistararnir fóm að nenna
að hreyfa sig, settu aukinn kraft og
fóm loksins að sjá að þær em með
betra lið. Smátt og smátt minnkaði
forystan og áhorfendur hrifust með.
Með dyggum stuðningi frá þeim fór
leikurinn að snúast og hrokafullir
leikmenn Mios-liðsins fóru að gera
sig seka um mistök. Florentina
Grecu, markvörður Stjömunnar, fór í
gang og þá kom Björk Gunnarsdóttir
inn á með fi'tonskraft. Þær tvær fóm
fremstar í flokki og fýrr en varði var
munurinn 6 mörk, síðan 5 og svo 4,
25-21, og 10 mínútur eftir. Þá fékk
Stjarnan víti en Rakel Bragadóttir lét
verja frá sér. Stjaman neitaði þó að
gefast upp og náði að jafna í 25-25 og
allt á suðupunkti. Frakkarnir misstu
tvo leikmenn af velli en Stjaman náði
ekki að nýta sér liðsmuninn. Síðustu
mínútur leiksins vom taugatrekkjandi
og systumar ef og hefði komu mikið
við sögu.
Góður síðari hálfleikur dugði
þó ekki og Stjarnan laut í gras
fyrir meðalliði og hrokagikkum
frá Frakklandi, 30-29. Hrikalega
svekkjandi úrslit fyrir íslenskan
kvennahandbolta því það var
algjör óþarfi hjá Stjörnunni að
detta úr leik fyrir þessu liði.
Betra liðið datt út
„Ég er mjög ósáttur að sjálfsögðu
við fyrri hálfleik," sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari Stjömunnar, eftir
leiídnn. „Við mættum einfaldlega ekki
tilleiks.Sá karakter sem við höfum sýnt
að undanförnu var hvergi sjáanlegur
fyrstu 30 mínúturnar í þessum leik.
Við tókum okkur saman í andlitinu
inni í klefa en við byrjuðum samt ekki
að spila af neinu viti fyrr en 5 mínútur
vom búnar af síðari hálfleik. Hvort
það er vilji eða löngun sem vantar veit
ég ekld en allan leikinn hafði maður
það á tilfmningunni að við gætum
þetta. Við vomm samt einhverjar 10
mínútur að byggja upp hverja einustu
sókn. Það var engin árásargirni og
engin sem vildi taka af skarið. Björk
Gunnarsdóttir bjargaði okkur, frábær
innákoma hjá henni og ef þetta er það
sem koma skal hjá henni erum við í
góðum málum. Því miður fór allt sem
búið var að ræða um, allt sem átti að
gera, út um giuggann strax í byrjun
leiksins.
Við erum betra lið en þetta lið.
Betra liðið datt út, það er alveg á
hreinu. f tveimur leikjum áttum við
klárlega að vinna þetta einvígi, ekki
spurning. En við spiluðum bara þrjá
hálfleiki og þær spiluðu fjóra."
Rakel Bragadóttir, fyrirliði Stjörn-
unnar, skoraði 12 mörk í leiknum
og stóð fyrir sínu. „Vörnin klikkaði
í fyrri hálfleik, við mættum þeim
ekki og þar af leiðandi komu eng-
in hraðaupphlaup. Að fá á okkur 19
mörk í fyrri hálfleik er allt of mikið.
Við vorum allar brjálaðar í hálfleik
því við gátum ekki boðið fólki upp á
þetta. Seinni hálfleikur var skömm-
inni skárri. Við áttum að klára þetta
lið, bæði hér og úti."
benni@dv.is
Einum leik var frestað í ítölsku deildinni og annar blásinn af:
STUÐNINGSMAÐUR ÓVART SKOTINN
Örygginu ógnað Dómarinn Massimiliano Saccani ræðir við Gennaro Gattuso og
Clarence Seedorf um ástæðuna fyrir því að hann flautaði leik AC Milan og Atalanta af.
Stuðningsmaður Lazio var skotinn
til bana af lögreglumanni í gær. Atvik-
ið kemur aðeins tíu mánuðum eftir að
lögreglumaður var drepinn af stuðn-
ingsmönnum Catania og er enn eitt
áfallið sem ítalsld boitinn verður fyrir.
Lazio-stuðningsmenn voru á leið
tii að styðja sitt lið við að etja kappi
við Inter Milan. í Arezzo stoppuðu
þeir á veitingastað þtu sem þeir mættu
stuðningsmönnum Juventus sem voru
á leið til Parma. Upp hófust mikil læti
og slagsmál sem enduðu með því að
einn lögreglumaður skaut hinn 25 ára
plötusnúð Gabriele Sandri. Sandri var
í bíl þegar hann var skotinn. „Þetta
voru hræðileg mistök," sagði Vincenzo
Giacobbe, lögregiustjóri Arezzo.
„Okkar maður brást við áflogum milli
tveggja hópa. Ég vil votta fjölskyldu
hans okkar samúð og okkar bænir eru
hjá eftirlifendum." Lögreglumaðurinn
er talinn hafa skotið upp í loftið og
kúlan farið í Sandri á leiðinni niður.
Bíllinn var dreginn burt til skoðunar og
veitingastaðurinn lokaður af. Deildin
frestaði leik Lazio og Inter um leið en
aðrir leikir hófust 15 mínútum á eftir
áætlun. Þegar fréttin barst um Ítalíu
tóku stuðningsmenn hinna liðanna að
lumbra á lögreglumönnum. í Bergamo
meiddusttveirlögreglumenníátökum.
Þegar leikurinn þar, Atalanta og AC
Milan, hófst liðu ekki nema 7 mínútur
þangað til dómari leiksins flautaði
hann af vegna skrílsláta áhorfenda.
Allt var gert til að róa mannskapinn
en spennan stigmagnaðist og sá
dómarinn þann kost vænstan að flauta
leikinnaf.
f febrúar var gert hlé á öllum knatt-
spymuleikjum vegna óláta en mik-
il ólga virðist vera innan stuðnings-
manna liða á Ítalíu. Að smðningsmenn
hittist á veitingastöðum hjá Al-hrað-
brautinni er algengt á Ítalíu. Romano
Prodi, forsætisráðherra ftalíu, sagði
að ástandið væri slæmt. „Svona hlut-
ir valda auðvitað miklum áhyggjum."
Ekki er langt síðan nýjar tölur komu
frá Ítalíu um að ofbeldi í kringum fót-
boltaleiki hefði minnkað um 80% en
erfitt sé fyrir ítalina að fylgjast með of-
beldi utan vailanna. benni@dv.is
ÚRSLIT HELGARINNAR
MEISTARADEILD EVRÓPU
Valur- Celje Lasko 29-28
Mörk Vals (víti): Arnór Malmquist
9, Elvar Friðriksson 6 (3), Baldvin
Þorsteinsson 4, Fannar Friðgeirsson
3, Ernir Hrafn Arnarson 3, Ingvar
Árnason 2, Gunnar Harðarson 1 og
Sigfús Páll Sigfússon 1.
Varin skot (víti): Ólafur HaukurGlsla-
son 8, Pálmar Pétursson 5 (1).
MörkCelje Lasko (víti): Mihael Go-
rensek 5, Igor Kos 5, Eduard Koksarov
4(1), Mirsad Terzic 4, Aleksandar
Stojanovic 3, Jan Gregor 3, Srdjan
Trivundza 2 og Vasja Furlan 2.
Varin skot (víti): Gorazd Skof 11 (1),
Aljosa Rezar 2.
Staðan
Lið L U
1. Gummers.4 3
2. Veszprem 4 1
3. Celje L. 4 1
4. Valur 4 1
J T M St
1 0 132:117 7
2 1 130:119 4
1 2 114:109 3
0 3 105:136 2
EHF - BIKAR KVENNA
Stjarnan - Mios Bigan 29-30
Mörk Stjörnunnar: Rakel Dögg
Bragadóttir 12, Björk Gunnarsdót-
tir 6, Alina Petrace 4, Sólveig Lára
Kjærnested 3, Ásdís Sigurðardóttir
2, Brigitt Engl 1 og Elísabet Gun-
narsdóttir 1.
Varin skot: Florentina Stanciu 17,
Helga Vala Jónsdóttir 1.
N1-DEILD KARLA
Fram - ÍBV 38-26
Mörk Fram (víti): Jóhann G. Einarsson
12 (5), Filip Kliszczyk 6, Hjörtur Hin-
riksson 3, Haraldur Þorvarðarson 3,
Jón B. Pétursson 3, Danlel B. Grétars-
son 3, Stefán B. Stefánsson 2, Zoltan
B. Belanyi 2, Rúnar Kárason 2, Einar I.
Hrafnsson 1 og Guðjón Drengsson 1.
Varin skot (víti): Björgvin P. Gústavs-
son 9, Magnús Erlendsson 12 (1).
Mörk IBV (víti): Sigurður Bragason 5,
Leifur Jóhannesson 5, Zilvinas Grieze
5, Nikolaj Kulikov4, Sindri Haralds-
son 3, Grétar Þ. Eyþórsson 1, Óttar
Steingrímsson I.VignirStefánsson 1
og Brynjar K. Óskarsson 1.
Varin skot (víti): Kolbeinn Arnarsson
9, Friðrik Sigmarsson 6.
Akureyri - Afturelding 26-26
Mörk Akureyrar (víti): Magnús
Stefánsson 9, Goran Gusic 5 (2), Einar
L. Friðjónsson 4, Andri S. Stefánsson
3, Heiðar Þ. Aðalsteinsson 2, Jónatan
Magnússon 2 og Hörður F. Sigþórs-
son 1.
Varin skot (víti): Sveinbjörn Pétursson
10, Hörður F. Ólafsson 2.
Mörk Aftureldingar (víti): Hilmar
Stefánsson 7 (4), Daníel Jónsson 6,
Magnús Einarsson 4, Reynir Árnason
2, Hrafn Ingvarsson 2, Jóhann Jóhan-
nsson 2, Davíð Ágústsson 1, Jón A.
Helgason 1 og EinarÖ. Guðmunds-
son 1.
Varin skot (víti): Davfð Svansson 15.
Staðan
Lið L U J
1. HK 8 5 1
2. Stjarnan 8 5 1
3. Fram 8 5 1
4. Haukar 7 5 1
5. Valur 7 3 1
6. Aftureld. 8 2 2
7. Akureyri 8 2 1
8. (BV 8 0 0
Næstu leikir:
Haukar-Valur
HK-Afturelding
T M St
2 223:197 11
2 230:219 11
2 237:212 11
1 202:176 11
3 175:166 7
4 207:216 6
5 214:225 5
8 209:286 0
14. nóv.kl. 19:00
14. nóv.kl. 19:15
ICELAND EXPRESS-D. KV.
Fjölnir-Valur
Staðan
Lið L
1. Keflavík 5
2. Haukar 6
3. Grindavlk 5
4. KR 5
5. Valur 6
6. Hamar 5
7. Fjölnir 6
Næstu ieikir:
Hamar- Keflavlk
KR-Grindavík
58-78
Skor St
467:341 10
500:467 9
410:358 7
404:331 6
358:478 2
307:371 2
369:469 2
14. nóv.kl. 19:15
14. nóv. kl. 20:00
U J
5 0
4 1
3 1
3 2
1 5
1 4
1 5