Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER2007
Fókus DV
n
HVAÐ VEISTU?
1. Hvaða auðmaður ætlar að STYRKJA fSLENSKA FRAMLEIÐSLU á leiknu efni hjá RÚV?
2. Hvað heitir nýjasta bók ARNALDARINDRIÐASONAR?
3. Hvaða ástsæli ÓPERUSÖNGVARI þjóðarinnar lést á dögunum?
NossNorynaNniA/GnD z TdvxsGavH z NossaNniA/Gno andioDaora • i
Hljómsveitin Cold Front
meö Björn Thoroddsen í
broddi fylkingar sendi á
dögunum frá sér diskinn
Full House. Valinn maöur
er i hverju rúmi i hljóm-
sveitinni, og ekki sakaði
aö upptökustjóri Bryans
Adams kom að upptöku
plötunnar nýju.
BJORN THORODDSEN
„Þetta er í rauninni mjög
kanadiskt verkefni, en
með mjög sterku íslensku
innpútti."
FULL HOUSE Oll lögin tíu
á disknum eru eftir Björn.
disknum sem djasskenndri instrúmental músík.
„Og hún er rafmögnuð og melódískmyndi ég segja.
Þessi diskur er allt öðruvísi en fýrsti diskurinn.
Bæði er hljómsveitin orðin tvöfalt stærri, sex í stað
þrír áður, og lögin eru rafmagnaðri," segir Björn en
liðsaukinn bættist við Cold Front í sumar. Þar ber
hæst píanistann Will Bonnes. „Hann er af mörgum
talinn einn efnilegasti píanóleikari í Kanada í dag.
Þetta er svona ungur ofviti. Hann er aiveg ótrúlega
flinkur," segir Björn.
Hinir tveir eru trommarinn Rob Siwik, sem
meðal annars hefur spilað með djassstjörnum
eins og Frank Poster, Bob Brookmeyer og Scott
Hamilton, og saxófónleikarinn Jonathan Stevens.
Fyrir voru Richard Gillis trompetleikari, sem
stofnaði bandið með Birni á sínum tíma og er
jafnframt stjórnandi stórsveitar Winnipeg-borgar,
og kontrabassaleikarinn Steve Kirby. „Þetta eru
allt mjög hátt skrifaðir tónlistarmenn í Kanada,
algjörir toppspilarar. Ég er því í mjög góðum
félagsskap," segir Björn.
Upptökustjóri Bryans Adams
Óll platan var tekin upp í Kanada. „Þetta er í
rauninni mjög kanadískt verkefni, en með mjög
sterku íslensku innpútti. Og þess má geta að við
nutum aðstoðar upptökustjóra Bryans Adams,"
segir Björn í léttum dúr og bætir við að hann
hafi notið dyggrar aðstoðar Atla Ásmundssonar,
aðalræðismanns fslands í Kanada, og Lands-
bankans.
Hinir erlendu meðlimir Cold Front munu koma
hingað til lands í janúar og ætlar hljómsveitin þá
að troða upp á NASA. „Svo spilum við á djasshá-
tíðum næsta sumar," segir Björn. „Slíkar hátíðir
hafa verið aðalvettvangur okkar í gegnum tíðina."
„Ég á öll lögin á disknum, enda er ég frekur,"
segir Björn Thoroddsen, gítarleikari og annar
stofnenda íslensk-kanadísku hljómsveitarinnar
Cold Front, sem á dögunum sendi frá sér disk-
inn Full House. Þetta er þriðji diskur hljómsveit-
arinnar, að meðtöldum jóladiski sem kom út fyrir
tveimur árum, en fyrsti diskurinn, sem hét ein-
faldlega Cold Front, var valinn besta frumsamda
djassverkið á íslensku tónlistaverðlaununum þeg-
ar hann kom út árið 2003.
Djasskenndur instrúmental diskur
Björn segir hina hljómsveitarmeðlimina sýna
frekju hans mikinn skilning. „Við höfum gert
mörg lög saman en vorum búnir að ákveða að
hafa ákveðna línu á þessari plötu. Það atvikaðist
svo þannig að það hentaði best að hafa þessi
lög," útskýrir Björn. Hann lýsir tónlistinni á nýja
Flestir kannast við Bókabfl-
inn sem Borgarbókasafnið hef-
ur starfrækt í áratugi. Það má
segja að hann sé nú að eign-
ast lítinn bróður því frá og með
næstu áramótum verður svoköll-
uðum Sögubíl ekið á milli leik-
skóla borgarinnar og fleiri staða
þar sem stoppað verður og börn-
um boðið inn til að hlusta á sög-
ur og frásagnir. Tilgangurinn er
að þjálfa börn í að hlusta, taka
þátt í umræðum, örva málvit-
und og hugmyndaflug þeirra, auk
þess sem samverustundin í bíln-
um verður í senn skemmtun og
fræðsla. Markhópurinn er börn á
aldrinum 2 til 9 ára.
Verkefnastjóri sögubflsins,
María Pálsdóttir leikkona, og
þrautreyndir barnabókaverðir
munu skipuleggja dagskrá bíls-
ins. Starfsmenn safnsins verða
oftast í hlutverki sögumanns en
einnig er gert ráð fyrir að sérstak-
ir gestir líti í heimsókn, til dæmis
rithöfundar eða aðrir sem hafa frá
einhverju skemmtilegu og fróð-
legu að segja. Sögubfllinn verður
manngengur sendiferðabfll sem
innréttaður verður með tilliti til
huggulegrar sögustundar.
Bókabíllinn, sem hefur nafn-
ið Höfðingi, er fagurlega mynd-
skreyttur af Gunnari Karlssyni.
Samkeppni hefur nú verið aug-
lýst meðal myndlistarmanna um
skreytingar utan á Sögubflinn og
rennur skilafrestur út 3. desem-
ber. Tilkynnt verður um vinnings-
hafa fyrir jól.
Höfðingi Bókabllinn, sem nú kallast
Höfðingi, hefur lengi glatt landsmenn
með lestrarefni.
Útsvar
Batnandi
Spurningaþátturinn Utsvar
sem sýndur er á RÚV á
föstudagskvöldum sækir á. Ég
horfði á fyrsta þáttinn frá upphafi
til enda og hef síðan séð hrafl,
stundum megnið, úr einum og
einum þætti. Það sem upp úr
stóð eftír íyrsta þáttinn var hversu
auðveldar spurningamar voru.
Þær hafa þyngst hæfilega mikið
og skemmtigildið aukist eftír
því. Keppendur eru vitanlega
misskemmtílegir og hnyttnir
eins og gengur og gerist og
er óneitanlega nokkuð sterk
fylgni á milli „skemmtílegheita"
og persónutöfra þeirra og
skemmtígildis hvers þáttar.
Þóra og Sigmundur, sem bæði
horfði á Útsvar
um helgina.
eru afbragðssjónvarpsfólk, hafa
slípast betur saman auk þess
sem sjónvarpsvélamar em farnar
að ná átakaaugnablikunum í
bjöllubaráttunni við og við á filmu,
það er þegar hlauparar liðanna
freista þess að ná bjöllunni á nánast
sama tíma. Áberandi brotalöm
var á því í jómfrúrþættinum. Það
er hins vegar borin von að mínu
matí að Útsvar nái nokkum tímann
hæðum Gettu betur, einfaldlega
vegna miklu færri áhorfenda í saf
og því er miklu minni stemning.
Fyrir menntaskólanema er Gettu
betur líka barátta upp á líf og dauða
og spennustigið í salnum eftír því.
Það er hins vegar ekld hægt að
útiloka að spennustígið í Útsvari
hækki eftír því sem lengra líður
á og keppendur fara að sjá glitta
í titflinn „fróðasta sveitarfélagið"
ef slikur titill er þá yfirhöfuð
.eftírsóknarverðuríþeirrahuga. .
LAUGARDAGSLOGIIV
Óþolandi
auglýsingahlé
Skemmtíþátturinn Laugardags-
lögin hefur unnið á frá fyrstu þátt-
unum. Þáttastjórnendur hafa oft
passað betur saman og samræður
þeirra em því miður bara ekki að
gangaupp.
Ragnhildur Steinunn leysir hlut-
verk sitt vel að vanda en er pínu-
lítið ofnotuð hjá RúV. Gísli virðist
hins vegar of stressaður fyrir beina
útsendingu. Tónlistarspekingamir
eru þar að auki of ragir við að segja
sitt álit og gefa afdráttarlaus svör.
horfði á Laugar-
dagslögin um
helgina.
Það sem dregur verulega úr
stjömugjöfinni em blessuð aug-
lýsingahléin sem RÚV-arar em
famir að troða inn í dagskrárliði
sína. Þessi hlé eru einfaldlega ekki
boðleg.
BOKABILLINN EIGNAST BROÐUR