Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
FRÉTTIR
tttiUti
Haldafram
sakleysi
Fjórmenningarnir sem högn-
uðust samtals um 30 milljónir
króna á einni viku með því að
nýta sér kerfisvillu í netbanka
Glitnis halda fram sakleysi sínu.
Aðalmeðferð málsins er hafin
fyrir Héraðsdómi Norðurlands
eystra á Akureyri, en fólkið sagð-
ist ekki hafa vitað að það væri að
brjóta lög. Málinu var vísað frá
dómi í haust vegna formgalla á
ákærunni, eftir að í ljós kom að
reglugerð sem Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra setti stóðst
ekki lög.
Horfurnarslæmar
Matsfyrirtækið Standard &
Poor's breytti í gær lánshæf-
ismati ríkissjóðs úr stöðugu
í neikvætt. í tilkynningu frá
matsfyrirtækinu segir að þessi
breyting endurspegli vaxandi
og þrálátt ójafnvægi í íslensku
hagkerfi og skort á aðhaldi í
ríkisfjármálum.
Standard & Poor's metur
aðstæður svo að óhjákvæmi-
lega muni hægja á hagvexti
og lánshæfismat muni versna
enn frekar ef jafnvægi næst
aðeins með harkalegum að-
gerðum. Síaukin neysla þykir
benda til þess að viðskipta-
halli lækki ekki.
Sexvilja embættið
Sex umsóknir bárust um
embætti ríkissaksóknara og
frestur til að skila umsóknum
rann út í vikunni. Bogi Nilsson
rfkissaksóknari lætur af störf-
um um áramótin en dómsmála-
ráðuneytið gefur ekkert upp um
hvenær ákvörðunar sé að vænta.
Umsækjendur eru þau Egill Step-
hensen, saksóknari við embætti
ríkissaksóknara, Guðjón Úlafur
Jónsson hæstaréttar-
lögmaður, Jón H.B.
Snorrason, aðstoð-
arlögreglustjóri og
saksóknari emb-
ættis lögreglustjór-
ans á höfuðborgar-
svæðinu, Ólafur
Þór Hauksson,
sýslumaður á
Akranesi, Sigríð-
ur J. Friðjóns-
dóttir, saksókn-
ari við embætti
ríkissaksókn-
ara, ogValtýr
Sigurðsson, for-
stjóri Fangels-
ismálastofnunar
ríkisins.
Ekkertað gera
hjá lögreglunni
Lögreglan í Kjósarhreppi
hefur lítið sem ekkert að gera
ef marka má fund sem lögregl-
an hélt í Ásgarði í gær. Að þeirra
sögn eru afbrot í þessu 200
manna sveitarfélagi afar fátíð.
Áhyggjumál þeirra snúast því
þessa dagana um lækkun há-
markshraða, að taka á hraðakstri
bifhjólamanna í Hvalfirði, bjarga
lélegu símasambandi á ákveðn-
um stöðum og fara yfir stöðu á
akstri utan vega og á reiðstígum.
Einn piltanna sem framdi vopnað rán i Sunnubúð á sunnudag hafði nýlokið við að
gjöreyðileggja Land Cruiser-jeppa með öxi þegar ránið var framið. Piltarnir tilheyra
gengi sem kallar sig TanCrew, eða Brúnkustrákagengið. Gengið er þekkt fyrir að
dýrka sólarlampa, ofbeldi og tekíladrykkju. Piltarnir eru aðeins 15 og 16 ára gamlir.
RÆNDU BÚÐINATIL
AÐ K0MAST í LJÓS
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON f
blaðamaöur skrifar: sigtryggur<fl>dv.is >,
Höfuðpaur piltagengis sem framdi
vopnað rán í Sunnubúðinni við
Lönguhlíð á sunnudagsmorgun
hafði nýlokið við að gjöreyðileggja
Land Cruiser-jeppa með öxinni
sem hann notaði skömmu seinna
til þess að ræna búðina. Umráða-
maður bifreiðarinnar, Viktor Orri
Emilsson, staðfestir þetta og segist
hafa heyrt í piltunum eftir að þeir
losnuðu úr haldi lögreglunnar.
„Auðvitað var ömurlegt að
koma að bílnum svona. Þetta er
ekki einu sinni bílinn minn," segir
Viktor. Hann segir að lögregla beri
nú saman skemmdir á bílnum við
öxina sem lagt var hald á eftir ránið
í Sunnubúðinni. Viktor telur ekki
að piltarnir geti hafa átt neitt sökótt
við hann og veit ekki hvers vegna
bíllinn var eyðilagður. „Þessir
strákar hafa ekld verið þekktir fýr-
ir svona hluti, þvert á móti," bætir
hann við. Viktor kveðst ekki þurfa
að óttast piltana.
Sólarlampaárátta
Piltarnir fjórir tilheyra um tut-
tugu manna gengi sem kallar sig
TanCrew, eða Brúnkustrákagengið
í íslenskri þýðingu. Innan gengis-
ins er mikil hefð fýrir því að liggja
í sólarlömpum og fullyrða fyrrver-
andi meðlimir klíkunnar að ránið á
sunnudag hafi verið framið í þeim
tilgangi að afla fjár fyrir fleiri tím-
um í ljósabekkina. Atburðarásinni
er lýst þannig að ránið hafi ekki
verið skipulagt í smáatriðum, held-
ur hafi piltarnir verið á rúntinum
og skyndilega beðið þann sem ók
bílnum að stoppa hjá Sunnubúð-
inni. Þegar kylfa og öxi voru dregn-
ar fram varð óeining í hópnum.
Þrír héldu inn og frömdu ránið, en
bílstjóranum hugnaðist það ekki.
Fullyrt er að tilgangurinn með
ráninu hafi verið að afla fjár til þess
að kaupa tíma í ljósabekkjum og
dæmi eru um að drengir hafi verið
reknir úr klíkunni með ofbeldi fyrir
það eitt að hafa ekki stundað ljósa-
bekki af nægu kappi.
Salapartí og tekíla
Af samtölum við fyrrverandi
meðlimi í klíkunni má ráða að það
sem eitt sinn var hópur saklausra
drengja hefur smám samanþróast í
áttina til ofbeldis og áfengisneyslu.
Forsprakkar TanCrew-gengisins
hafa verið ötulir við að skipuleggja
svokölluð salapartí, þar sem ungl-
ingar leigja samkvæmisaðstöðu
og halda svallveislur óáreittir. Lög-
reglan hefur varað sérstaklega við
þessum samkvæmum því erfitt sé
fyrir foreldra að vita hvað fram fer í
slíkum veisluhöldum. Af myspace-
vefsíðum piltanna má sjá að þeir
aðhyllast stífa tekíladrykkju.
Á einni slíkri síðu má sjá hvar
forsprakki gengisins lætur annan
pilt kyssa á sér skóna, undir þeim
hótunum að ella hljóti hann bar-
smíðar. Tengla má finna á vefsíð-
um piltanna á aðrar síður þar sem
fólk er þvingað til þess að kyssa og
sleikja skó.
Verða ákærðir
Piltamir fjórir em nú lausir úr
haldi lögreglunnar, eftir að hafa
játað að hafa ffarnið ránið á sunnu-
dag. Friðrik Smári Björgvinsson
hjá rannsóknardeild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu segir að
erfitt geti reynst að sanna að verk-
færið sem notað var til þess að
eyðileggja Land Cruiser-bifreiðina
sé nákvæmlega það sama og notað
var í ráninu.
„Málið er nú komið til barna-
verndaryfirvalda, enda hringja all-
ar bjöllur þegar svona lagað á sér
stað. Burtséð frá því, þá fer málið
sína leið í kerfinu og ákæra verður
gefin út, enda em drengirnir sak-
hæfir," segir Friðrik Smári.
Dómari kemur svo til með að
ákveða hvernig refsingu verður
háttað. Piltarnir geta átt von á sex
mánaða fangelsi fyrir vopnað rán,
en dæmi em um að dómar hafi
verið mildaðir ef sakbomingar em
sérlega ungir og eiga ekki afbrota-
feril.
rý
Vinstri grænir vilja endurskoða námslánin:
Óléttar námsmeyjarfá ekki fæðinqarstyrk
„Ef kona, sem er námsmaður,
verður veik á meðgöngu lendir hún
í heilmiklum vandræðum ef hún get-
ur ekki lokið tilskyldum fjölda ein-
inga því fæðingarstyrkir em bundn-
ir við að ákveðnum einingafjölda sé
lokið. Við viljum tryggja að engin
detti þarna milli skips og bryggju,"
segir Katrín Jakobsdóttir, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs um tillögu til þingsályktun-
ar um úttekt á kjörum og réttindum
námsmanna sem hún lagði fram á
mánudag í félagi við Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur og Auði Lilju Erlingsdótt-
ur, þingmenn vinstri grænna. Katr-
ín bendir á að Auður Lilja sé fýrsta
flutningsmaður tillögunnar, hún
komi fersk úr stúdentapólitíkinni og
sé afar meðvituð um hvar sé pottur
brotinn í málefnum námsmanna.
Þingmenn vinstri grænna hafa
einnig lagt fram frumvarp um breyt-
ingar á Lánasjóði íslenskra náms-
manna og segir Katrín að téð tillaga
falli vel að henni. Óska þeir eftir að
Alþingi álykti um að fela mennta-
málaráðherra að gera útttekt á kjör-
um og réttindum námsmanna og að
þeirri vinnu verði lokið 1. mars 2008.
Réttur námsmanna til fæðingaror-
lofs er einn þriggja þátta sem lögð er
áhersla á að verði athugaður, sömu-
leiðis réttur námsmanna sem vegna
veikinda eða slysa geta ekki stundað
nám og í þriðja lagi að sá fr amfærslu-
grunnur sem miðað er við í úthlutun
námslána verður endurmetinn með
hliðsjón af nýrri framfærslurann-
sókn. „Við viljum að raunverulegur
framfærslukostnaður liggi þarna til
grundvallar," segir Katrín en náms-
menn hafa lengi haldið því fram að
erfitt sé að lifa á námslánum Lána-
sjóðsins.
Árið 2006 stunduðu um 17 þús-
und einstaklingar nám á háskólastigi
á íslandi og um helmingur þeirra
byggði framfærslu sína á náms-
lánum. erla&dv.is