Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Frittir DV
. lt-r
Skoða skráningu
í erlendri mynt
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra hefur skipað
nefnd um skráningu hlutafjár
í erlendri mynt. f tilkynningu
frá ráðuneytinu segir að áhugi
fyrirtækja, sem skrásett eru á
skipulegum verðbréfamarkaði
hér á landi, á að skrá hlutafé sitt
í erlendri mynt hafi aukist veru-
lega. Því hafl þess nefnd verið
sett á laggirnar. Nefndin mun
skila niðurstöðum fyrir 1. mars
og verður formennska í höndum
Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi
seðlabankastjóra.
Sextánfaldur
samdráttur
Um það bil sextánfaldur
aflasamdráttur hefur orðið á
Flateyri ffá því í október á síð-
asta ári og miðað við október
á þessu ári. Á sama tímabili í
fyrra lönduðu Flateyringar um
átta hundruð tonnum af afla,
en samkvæmt tölum Hag-
stofu íslands var einungis um
fimmtíu tonnum af afla land-
að í seinasta mánuði. Þennan
mikla mun má meðal annars
útskýra með lokun Kambs ehf.
fyrr á árinu. Aðeins 16 tonn-
um af þorski og 35 tonnum af
ýsu var landað í bænum í síð-
asta mánuði.
Opnuðu heilsu-
gæslu í Mósambík
Heilsugæslustöð sem Rauði
krossinn og Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands hafa unnið
að byggingu á í sameiningu í
Mósambík var formlega opnuð
á dögunum. Hún mun þjóna
íbúum sjö þorpa á svæði í Ma-
pútó-héraði en þar búa alls um
átta þúsund manns. Kostnað-
urinn við bygginguna var tólf
milljónir króna og tók eitt ár að
byggja hana. Á stöðinni er að-
staða til almennrar heislugæslu
og meðhöndlunar á algengustu
sjúkdómum, fæðingarstofa,
mæðra- og ungbarnaeftirlit,
bólusetningar og önnur fyrir-
byggjandi heilbrigðisfræðsla.
Helstu heilsufarsvandamál á
svæðinu eru malaría, niðurgang-
ur, vannæring og alnæmi. Ung-
barnadauði er auk þess mikill.
Tímabærsamtök
Samband íslenskra fram-
haldsskólanema var stofnað á
dögunum og kemur þar saman
hagsmunagæsla þeirra nema
sem áður voru í Félagi ffarn-
haldsskólanema og Iðnnema-
sambandinu. Hreiðar Már
Árnason, kynningarfuiltrúi sam-
takanna, segir að tímabært hafi
verið að skapa eina sterka heild
sem beitti sér fyrir réttindum
allra nema á framhaldsskólastigi.
Meðal markmiða samtakanna er
að vera upplýsandi um kjaramál
framhaldsskólanema á vinnu-
markaði.
Óvissa er um byggðakvóta á Bíldudal en úthlutunarreglur eru í endurskoðun hjá bæjar-
stjórn Vesturbyggðar. Jón Þórðarson, útgerðarmaður á Bíldudal, er áhyggjufullur vegna
þessa og telur atvinnulífi bæjarfélagsins stefnt í hættu. Tveir aðilar hafa sýnt áhuga á að
hefja þar fiskvinnslu en umsóknirnar voru ekki teknar fyrir á fundi bæjarráðs.
ATVINNAN í HÆTTU
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladcimadi.it sktifar: erla<i‘<dv.is
„Okkur finnst undirliggjandi að það
eigi að skera þennan kvóta niður og
fara með hann eitthvert annað. Það
færi alveg með atvinnulífið hér" seg-
ir Jón Þórðarson, útgerðarmaður á
Bíldudal, um þann byggðakvóta Vest-
urbyggðar sem hefúr verið eyrna-
merktur Bíldudal.
Úlfar B. Thoroddsen, forseti bæj-
arstjómar Vesturbyggðar, lagði til 9.
nóvember að bæjarráði verði fal-
ið að móta nýjar reglur um úthlutun
byggðakvóta á Bfldudai. Bæjarstjórn-
in samþykkti tillöguna með öllum
greiddum atkvæðum.
Jón segir sér virðast sem svo að
það eigi að hætta stuðningi við Bíldu-
dal eða draga úr honum hið minnsta.
Ekkert bólaði á kvótanum
Undanfarið eitt og hálft ár hef-
ur staðið til að fiskvinnsla hefjist á
ný á Bíldudal. Fyrirtækin Oddi ehf.
Á Patreksfirði og Þórsberg ehf. á
Tálknafirði ákváðu á sínum tíma að
hefja fiskvinnslu á Bíldudal undir
nafninu Stapar ehf. Stjórnvöld höfðu
gefið vilyrði fyrir því að 300 tonna
byggðakvóti yrði færður þangað og
þá til Stapa. í ffamhaldinu var lagt í
miklar endurbætur á ffystihúsi bæj-
arins en þeim hætt þegar ekkert ból-
aði á kvótanum.
Nýlega varð síðan ljóst að kvótinn
myndi skila sér en hann yrði aðeins
140 tonn, mun minni en upphaflega
stóð til.
Fresta um óákveðinn tíma
8. nóvember tilkynntu Stapar að
þeir væru hættir við að fara af stað
með fiskvinnshi á Bíldudal. Jón segir
að aðeins þremur sólarhringum síðar
hafi komið fram tveir aðrir aðilar sem
vildu vinna fisk á Bíldudal. Eina skil-
yrði þeirra sé að þeir fái sama byggða-
kvóta og Stöpum hafi verið úthlutað.
Báðir aðilar lögðu inn formlega
umsókn en ekki var fjallað um þær
efnislega á síðasta fundi bæjarráðs.
„Auðvitað er ekki hægt að búast við
því að þeir tækju afstöðu til um-
sóknanna á fyrsta fundi en þeir frest-
uðu einnig að taka þær til efnislegrar
skoðunar. Erindunum var hreinlega
frestað um óákveðinn tíma," segir Jón
en vísað var til þeirrar samþykktar
á fundi bæjarstjórnar að móta þurfi
nýjar reglur um úthlutun byggða-
„Að mínu viti hefði verið eðlilegt
afbæjarráði að óska eftir viðræð
um við þessa tvo aðila
- 1» '___
Bt,
kvóta á Bíldudal. „Að mínu viti hefði
verið eðlilegt af bæjarráði að óska
eftir viðræðum við þessa tvo aðila og
gera áreiðanleikakönnun á umsækj-
endum. Þá hefði málið verið komið í
farveg," segir hann.
Hvatning til ríkisstjórnarinnar
Þeir aðilar sem Jón vann með
höfðu í hyggju að hefja strax vinnslu
á 1.200 til 1.500 tonnum og fara síðan
upp í 2.000 tonn. Hann ítrekar hversu
miklu máli slík vinnsla myndi skipta
fyrir atvinnulífið á BíldudaJ.
Arnheiður Jónsdóttir, sem sit-
ur í bæjarstjórn Vesturbyggðar, seg-
ir að vegna nýrrar stöðu í málefnum
Bíldudals hafi bæjarstjóm ákveðið
að taka sér umhugsunaífrest áður en
umsóknimar yrðu teknar til skoðun-
ar. Hún bendir á að ákveðinn hluti
byggðakvótans sé bundinn við Bíldu-
dal og ekki sé hægt að flytja hann
annað. Arnheiður vísar annars í sam-
þykkt bæjarstjómar um endurskoðun
úthlutunarreglna.
Skjöldur Pálmason, formaður At-
vinnumálanefndar Vesturbyggðar,
rakti alvarlega stöðu atvinnumála á
Bíldudal á síðasta fundi nefndarinn-
ar og fór yfir aðkomu Stapa að fisk-
vinnslu þar. Bókuð var hvatning til
ríkisstjórnar Islands til að standa við
loforð varðandi atvinnuuppbygg-
ingu á Bíldudal. Skjöldur ítrekaði
mikilvægi þess að tryggja að byggða-
kvótinn sem úthlutað var til vinnslu
á Bíldudal haldist áfram í Vestur-
byggð.
Við vinnslu fréttarinnar náðist
ekki tal af Úlfari B. Thoroddssen, for-
setabæjarstjómar.
Helmingi fleiri aðstoða blinda og sjónskerta
Draumur blindra að rætast
„Nú er langþráður draumur fé-
lagsmanna í Blindrafélaginu að ræt-
ast. Sérstaklega hvað varðar aðgengi
blindra og sjónskertra að mennta-
kerfinu," segir Halldór Sævar Guð-
bergsson, formaður Blindrafélags-
ins.
Ákveðið hefur verið að setja á
laggirnar þjónustu- og þekkingar-
miðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda hér á landi.
Ríkisstjórnin stendur að baki
miðstöðinni sem áætíað er að taki
til starfa næsta haust.
Sævar segir að í dag séu nokkrar
stofnanir sem annist mál blindra
og sjónskertra en hugmyndin er
að sameina þær á einum stað,
bæta þjónustuna og auka aðgengi.
Einnig verður fagfólki fjölgað úr 13
í 26 á hinni nýju þjónustumiðstöð.
Meðal þeirra sem þar koma
til með að starfa em augnlæknar,
sjóntækjafræðingar, sálfræðing-
ar og félagsfræðingar. Kennslu-
ráðgjafar munu aðstoða blinda
og sjónskerta námsmenn en eftir
að blindradeild Álftamýrarskóla
var lögð niður haustið 2004 hef-
ur slíkri þjónustu verið ábótavant.
Búist er við að sá hluti starfsemi
Blindrabókasafnsins sem snýr að
gerð námsbóka heyri einnig und-
ir þjónustumiðstöðina. Blindra-
bókasafnið sem slíkt verður hins
vegar breytt í Hljóðbókasafn.
Endanleg staðsetning mið-
stöðvarinnar er ekki ákveðin en
ljóst er að hún verður á höfuð-
borgarsvæðinu. Þeir sem þurfa
að sækja þjónustuna utan af landi
eiga möguleika á að fá ferðakostn-
að greiddan.
Um 1500 Islendingar teljast fatl-
aðir vegna skertrar sjónar, um 20
eru daufblindir, um 330 eru lög-
blindir en aðrir eru með alvarlega
skerta sjón. Lögum samkvæmt eiga
þessir einstaklingar rétt á þjónustu
sem gerir þeim kleift að lifa sjálf-
stæðu lífi og starfa í eðlilegu samfé-
lagi við aðra. erla@dv.is