Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Qupperneq 7
DV Fréttir
Vagnstjórar hjá Strætó bs. verða sífellt oftar fyrir árásum af hálfu
farþega. Jóhannes Gunnarsson, trúnaðarmaður hjá Strætó bs.,
segir að vagnstjórar hafi miklar áhyggjur af þróun mála. Hörður
Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs., segir að slikar
árásir séu litnar mjög alvarlegum augum.
” ;-*> n—jmt m f|| ' MB i ■■■
1 _ Æpr il'H ! ■ 0 ir ' 1 4| 'wW i LlI , -> II
Strætó Árásir á bilstjóra verða
sífellt algengari. Jóhannes
Gunnarsson trúnaðarmaður
segir að vagnstjórar hafi
áhyggjur af þróun mála.
OFBELDIOG
HÓTANIR NÆRRI
DAGLEGT BRAUÐ
3
„Það er farið að gerast ansi oft að
það sé ráðist á vagnstjóra," segir Jó-
hannes Gunnarsson, trúnaðarmað-
ur hjá Strætó bs. Undanfarnar vikur
og mánuði hafa árásir á vagnstjóra
verið tíðar.
í DV í gær var sagt ffá fólskulegri
árás á Kjartan H. Margeirsson, stræt-
óbflstjóra til 23 ára, sem lenti í þeirri
miður skemmtilegu lífsreynslu að á
hann var ráðist í síðustu viku. Tveir
piltar á aldrinum sextán til sautján
ára réðust á hann eftir að hafa neit-
að að borga fargjaldið. Þeir hleyptu
úr dekki vagnsins svo hann kæm-
ist ekki í burtu og brutu framrúðu
bifreiðarinnar. Við árásina sprakk
vöðvi í handlegg Kjartans og hann
var blár og marinn á stórum hluta
líkamans.
Vikulegar árásir
Jóhannes segir að strætóbflstjór-
ar verði oft íyrir miklu aðkasti og for-
dómum frá vegfarendum. Hann seg-
ir að það sé orðið nánast vikulega að
ráðist sé á bílstjóra. „Þetta er alltaf
að verða verra og verra og hefur að
mínu mati verið að aukast. Þetta eru
bara ofbeldismálin en svo eru það
öll fúkyrðin sem bflstjórarnir fá að
finna fyrir," segir Jóhannes og bætir
við að árekstrar á milli útlendinga og
vagnstjóra hafi verið nokkuð tíðir.
Aðspurður hvað valdi því að
strætisvagnabflstjórar verði fyr-
ir auknu aðkasti segir Jóhannes að
erfitt sé að nefna eina ástæðu. Þar
geti spilað inn í hátt gjald og sú
staðreynd að ölvaðir einstakling-
ar ferðist gjarnan með strætó. „Það
er allur gangur á þessu og erfitt að
finna einn orsakavald. Fólk sem er í
neyslu á áfengi og eiturlyfjum notar
strætisvagna mjög mildð. Við lend-
um stundum í vandræðum með þá
einstaklinga."
Lögreglan sein til aðstoðar
Hörður Gíslason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Strætó bs., segir að
allar árásir á starfsmenn séu litn-
ar mjög alvarlegum augum. „Þetta
hefur því miður gerst hjá okkur í
gegnum tíðina. Við höfum verið
að reyna að finna leiðir til að leysa
þetta vandamál. Það sem okk-
ur finnst vænlegast er að reyna að
styrkja einstaklinginn sem er í starf-
inu þannig að komast megi hjá því
að það verði alvarleg átök. Það hafa
meðal annars verið námskeið hjá
okkur og menn hafa verið meðvit-
aðir um þetta vandamál. Einfaldar
lausnir eru því miður ekki á lausu,"
segir Hörður.
Jóhannes telur engan óhultan
fyrir ofbeldinu sem viðgangist í ís-
lensku þjóðfélagi. Hann segir marga
bflstjóra ósátta við sein viðbrögð
lögreglunnar. „Lendi vagnstjórar í
þeirri aðstöðu að biðja þurfi um að-
stoð lögreglu er það óviðunandi að
lögreglan sé ekki komin á vettvang
fyrr en eftir tuttugu mínútur. Það
kvarta margir undan þessu og það
er vissulega alvarlegt ef vagnstjórar
geta ekki fengið þá aðstoð sem beð-
ið er um strax. Það þarf að bregðast
við þessu og gera eitthvað í málinu,"
segir Jóhannes.
„Þáfékkég orða-
flauminn yfir mig og
þegarhann varbúinn
að Ijúka sér afsagði
hann að það sæist á
búningnum hversu
mikillfáviti ég væri."
Fordómar fyrir búningnum
Jóhannes segir að vagnstjórar láti
helst ekki sjá sig í búningnum sem
þeir nota við aksturinn. „Bflstjórar
hafa talað um að þeir fái ekki góða
þjónustu í búningnum, til dæmis
í verslunum. Ég var til dæmis einu
sinni að koma heim úr vinnunni
og var í búningnum. Þá var maður
búinn að leggja í innkeyrsluna. Ég
benti honum mjög kurteislega á að
þetta væri ekki bflastæði því hann
væri búinn að loka innkeyrslunni.
Þá fékk ég orðaflauminn yfir mig og
þegar hann var búinn að ljúka sér af
sagði hann að það sæist á búningn-
um hversu mildll fáviti ég væri," seg-
ir Jóhannes.
Aðspurður hvort vagnstjórar
séu aðstoðaðir eftir slíkar árásir, til
dæmis með að leggja fram kærur
á hendur gerendum, segir Hörður
að reynt sé að standa með mönn-
um eins og hægt er. „Ef eitthvað
slíkt kemur upp á hjá okkur kem-
ur fyrirtækið til aðstoðar. Ef staðan
er þannig að lögbrot sé í málinu
reynum við að leggja fram aðstoð
okkar eins og hægt er,“ segir Hörð-
ur.
EINAR ÞOR SIGURÐSSON
bladamcidur skrifar einar@dv.is
Jólablaö DV kemur út föstudaginn 30. nóvember og fylgir helgarblaðinu þá helgi.
Blaöiö mun íjalla um undirbúning jólanna, jólaheföimar, jólamatinn, jólatískuna, jólaskrautið
□g aö sjálfsögöu jólagjafimar. Með þessu jólablaöi veröur þetta Helgarblaö DV stærsta
Helgarblaö ársins.
Takmarkað pláss er fyrir auglýsendur og þvi er um að gera að panta sem fyrst
í síma 512 7000 eða með tölvupósti á netfangiö auglysingar@dv.is
Hefur þú séð DV i dag?
BETUSAN
Birkiaska
Umboös- og söluaóilí
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
ÞAKkARGJÖRÐAR
KALKUNN
A HOTEL CABIN
Hm rómaða Þakkargjorðarveisia Hóíel Cabin
verður haldin dagana 22. og 23. nóvember.
í hádeginu 22. og 23. nóvember.
Föstudagskvöldið 23. nóvember.
Verð einungis: 1.850 kr
2.550 kr föstudagskvöld
Léttir djazztónar verða leiknir yfir borðhaldi
á föstudagskvöldinu.
Borðapantanir í sima 511 6030
.............................................•\
HOTEL CABIN