Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
bladamadur skiifai einai^dv.is
„Það er mikilvægt að komast að sam-
komulagi um þetta því börnin eru
viðkvæmur hópur," segir Hólmfríð-
ur Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri nær-
ingar hjá Lýðheilsustöð. Hún segir
að víðtækar samfélagslegar aðgerðir
þurfi til að vinna bug á offituvanda-
máli barna og unglinga.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, alþingismaður Samfylkingar, hef-
ur lagt fram þingsályktunartillögu
um takmörkun auglýsinga á óhollri
matvöru sem beint er gegn börnum.
Hólmfríður segir að takmörkun aug-
lýsinga á óhollri matvöru sem beint
er gegn börnum sé vissulega skref í
rétta átt. Hún segir að leggja mætti
meiri áherslu á að fræða börn í
grunnskólum landsins um hollt mat-
aræði. „Það þyrfti að leggja aukna
áherslu á þætti sem lúta að næring-
arfræði og hvernig eigi að matreiða
hollan mat. Þetta eru allt þættir sem
þurfa að spila saman en þessi tillaga
hennar Ástu er einn liður í barátt-
unni, þó að fjöiþættari aðgerða sé
þörf. Hreyfmgin skiptir einnig máli
samhliða mataræðinu. Það þarf að
tryggja börnum aðgengi að hollum
mat og tryggja þeim góða hreyfingu,"
segir Hólmfríður.
Tuttugu prósent of feit
Ragnheiður Ósk Erlendsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur hjá Miðstöð
heilsuverndar barna, segir að of-
þyngd og offita séu eitt helsta lýð-
heilsuvandamál Evrópu í dag. Hún
segir að ofþyngd og offita íslenskra
skólabarna á höfúðborgarsvæðinu
séu um tuttugu prósent að meðaltali.
Þar af eru um einn fimmti hluti of
feit og fjórir fimmtu hlutar of þung-
ir. „Þetta vandamál hefur þrefald-
ast á síðustu tuttugu árum. Núna er
talað um að 10 til 36 prósent barna
séu of þung eða of feit í Evrópu í dag.
Þau eru hlutfallslega fæst í Rússlandi
eða um tíu prósent en flest á Ítalíu
eða um 36 prósent. ísland hefur fýlgt
með í þessari þróun og núna eru um
tuttugu prósent grunnskólabarna of
þung eða of feit," segir Ragnheiður.
Miðstöð Heilsuverndar barna til-
heyrir Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins og hlutverk hennar er að
vera faglegur bakhjarl við heilsu-
gæsluna og þróa, efla og samræma
heilsuvernd barna yngri en átján ára
á landsvísu.
Úrræðaleysi
Ragnheiður segir að fslensk börn
séu fyrir ofan meðaltal annarra barna
á Norðurlöndunum þegar kemur
að hlutfalli of þungra barna. fsland
kemur næst á eftir Bretlandseyjum
og er töluvert fyrir ofan nágranna-
lönd okkar, Svíþjóð og Danmörku.
Ragnheiður segir að offita hjá
íslenskum börnum sé vanmet-
ið vandamál. Hún segir að það lýsi
sér ekki síst í því hversu fá úrræði
eru fyrir börn sem eiga við offitu að
stríða. „Það að tuttugu prósent ís-
lenskra barna séu of þung eða of feit
er alvarlegt vandamál. Því miður eru
enn sem komið er takmörkuð úr-
ræði og lausnir handa þessum hópi
barna," segir Ragnheiður.
Flókið fyrirbæri
Aðspurð hvað sé til bragðs seg-
ir Ragnheiður að ofþyngd og offita
séu flókin fyrirbæri og lausnin sé því
einnig flókin. „í þessum efnum er
ekki hægt að búast við skjótum ár-
angri. Þetta er vandamál sem krefst
fjölbreyttra samfélagslegra lausna.
Samstílltur vilji ráðuneyta og stofii-
ana verður að vera fyrir hendi. For-
eldrar þurfa einnig að vera meðvit-
aðir um heilbrigðan lífsstíl barna
sinna."
Ragnheiður segir að styrkja verði
forvarnir og heilsueflingu og nefn-
ir hún sem dæmi verkefni sem nú
stendur yfir á vegum Lýðheilsu-
stöðvar sem heitir Allt hefur áhrif.
Auk þess er starfandi vinnuhópur á
vegum Landlæknisembættisins sem
hefur það hlutverk að koma með til-
lögur að skipulagi forvama og úr-
ræða á vegum heilbrigðisstofnana
fýrir of þung og of feit börn.
Skólaheilsugæslan hefur auk-
ið skipulagða heilbrigðisfræðslu
Á VÍÐTÆKUM AÐGERÐUM
HLUTFALL OFÞYNGDAR OG OFFITU
HJA SKÓLABÖRNUM í ÞRJA VETUR FRÁ HAUSTI 2004TIL VORS 2007
l.bekkur 4. bekkur 7. bekkur 9. bekkur
26 -----------------------------------------------
14
12
10
2004- 2005
2005- 2006
2006- 2007
HLUTFALL OFÞYNGDAR OG OFFITU
HJÁ SKÓLABÖRNUM EFTIR KYNI OG ALDRI
HLUTFALL OFÞYNGDAR OG OFFITU
HJÁ ÍSLENSKUM BÖRNUM ÁRIN 1958 - 2006
H Stúlkur - ofþyngd
1958 1968 1978 1988 1998 2004
Offita barna og unglinga á íslandi er mikið
vandamál. Á síðustu tuttugu árum hefur
offituvandamál barna og unglinga þrefald-
ast en á íslandi eru tuttugu prósent barna
of þung eða of feit. Hólmfríður Þorgeirs-
dóttir, verkefnastjóri næringar hjá Lýð-
heilsustöð, segir að að víðtækar samfélags-
legar aðgerðir þurfi til að vinna bug á
offituvandamálinu. Ragnheiður Ósk Er-
lendsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Mið-
stöð heilsuverndar barna, segir að offita hjá
íslenskum börnum sé vanmetið vandamál.
Feitur matur Liður í því að vinna bug á
heilsufarsvandamálinu er að bæta
mataræði barna.
innan skólanna og ber hún yf-
irskriftína 6H heilsunnar. Þau
eru hollusta, hvíld, hreyfing,
hreinlætí, hamingja og hug-
rekki. Ragnheiður segir mark-
mið fræðslunnar að auka
þekkingu barnanna á heilsu
og þáttum sem hafa áhrif á
hana. „Það er von okkar að
þessi fræðsla verði tíl þess að
börnin öðlist betri færni í að
tíleinka sér heilbrigðan lífsstíl,"
segir Ragnheiður.
Ragnheiður Ósk „Þetta
ervandamál sem krefst
fjölbreyttra samfélags-
legra lausna."