Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir utgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm.
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Asmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Drelfing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
011 viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ASKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040.
SANDKORN
Ekki er allt sem sýnist með
landsliðið í fótbolta. Háværar
raddir eru um að meðal lands-
liðsmanna,
leikmanna
erlendra
liða sé ekki
kátína með
þjálfarana,
þáÓlafló-
hannesson
og Pétur
Pétursson.
ívar Ingimarsson gefur ekki
framar kost á sér til að leika
með liðinu og fleiri hafa helst
úr lestinni fyrir leikinn í dag.
Efasemdir munu vera uppi
um að rétt hafi verið að ráða
Ólaf, þrátt fyrir fínan árangur
hér heima, efast er um reynslu
hans og hæfni þegar kemur að
alþjóðlegum leikjum.
■ Fjarvera Eiðs Smára Guð-
johnsen frá landsliðinu vek-
ur athygli. Enn hefur ekkert
komið fram
sem skýr-
ir fjarver-
una. Hann
ber fýrir sig
persónuleg-
ar ástæður.
Vissulega
eru það
rök til að
keppa ekki
með landsliðinu. Slúðursög-
ur segja að fjarveran sé ekki
síst vegna þjálfarans, Ólafs
Jóhann-
esson-
ar. Sama
skýring er
uppi vegna
ákvörðunar
ívars Ingi-
marsson-
ar að hætta
alfarið að
leika með landsliði íslands.
Það er stór ákvörðun leik-
manns sem er jafnvel á há-
tindi síns ferils.
■ Áberandi er að lesa fjöl-
miðla, prentaða og rafræna,
þegar fjall-
að er um
brúðkaup
Jóns Ás-
geirs Jó-
hannes-
sonar og
Ingibjargar
Pálmadótt-
ur. Flestir
sem hafa skrifað um brúð-
kaupið kalla það brúðkaup
aldarinnar. Hugmyndaleysið
virðist algjört. Hvert brúð-
kaup hefur sinn sjarma og
sinn glæsileika. Trúlegast er
að Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu
sé ekkert geflð um að þeirra
brúðkaup sé kallað brúðkaup
aldarinnar. Enda er bara árið
2007, og 93 eftir af öldinni,
svo það er snemmt að dæma,
ef það er þá hægt.
■ Gæðunum er misskipt í
Grundarfirði. Austfjarðabát-
ar fylla sig af síld í firðinum
og sigla drekkhlaðnir í hálfan
annan sólarhring. Á meðan
berast fréttir af einum báti
Grundfirðinga, Þorvarði Lár-
ussyni, sem fékk tundurdufl í
trollið. Sá afli gaf ekkert af sér.
-sme
Furðupólitík
LEIDARI
REYNIR TRAUSTAS0N RITSTJORI SKRIFAR.
F.n Sigurður Kári erekki endilega beittasii liitifuriiin iskiiffunni.
Það er góð viðleitni hjá Ástu
Ragnheiði Jóhannesdótt-
ur að vilja stemma stigu
við þeim auglýsingum sem
ýta undir það að börn leggi sér til
munns óhollustu. En sú forsjár-
hyggja er vafasöm að ætla að banna
með lögum að Mjólkursamsalan
auglýsi skaðlegt sykrað skyr eða Víf-
ilfell fái að vekja athygli á sykurjukk-
inu sínu. Þótt sykurvörurnar séu í
senn heilsuspillandi og hvati til of-
fitu eru þær löglegar og slíkar vörur
má auglýsa hér á landi. Það er síðan
komið undir siðferði hvers fjölmið-
ils hvort hann birtir ófögnuðinn. DV
hefur til dæmis þá stefnu að auglýsa ekki alræmda nektarstaði
þar sem konur eru niðurlægðar og frelsi þeirra jafnvel heft. En
súlustaðirnir mega lögum samkvæmt auglýsa og aðrir fjölmiðlar
mega birta þær auglýsingar ef slíkt þykir boðlegt.
Athyglisvert var að heyra í spjallþættinum ísland í dag að Sigurð-
ur Kári Kristjánsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, vildi alls
ekki banna auglýsingar óhollustu í barnatímum. Hann benti á
að erlendar sjónvarpsstöðvar mættu
auglýsa slíkt og því ófært að banna
þeim innlendu. Þetta er gott og gilt
sjónarmið sem snýst um að auglýsa
megi allar löglegar vörur hvar sem er
og það sé einungis á valdi auglýsand-
ans og viðkomandi miðils að birta
áróður fyrir hverju sem er. En Sigurð-
ur Kári er ekld endilega beittasti hníf-
urinn í skúffunni þegar kemur að þvi
að halda stefnunni við að verja frels-
ið. Hann var í sama spjallþætti spurð-
ur um ríkjandi bann í íslenskum fjöl-
miðlum við auglýsingum á áfengi
og tóbaki sem ríkið sér um að selja.
Þingmaðurinn fann því allt til foráttu
að íslenskir fjölmiðlar mættu auglýsa umrædd vímuefni sem
eru þó fullkomlega lögleg. Ástæðan væri sú að fólk þyrfti að hafa
náð tilteknum aldri til að neyta áfengis. Þetta er auðvitað ekkert
annað en furðupólitík og hundalógik því erlendar sjónvarpsrás-
ir, dagblöð og tímarit birta auglýsingar af umræddu tagi og rang-
lætið er sláandi. Frelsið sem þingmaðurinn boðar er því aðeins
fýrir suma.
Islendingar, margir hverjir, hafa
verið allt of fljótir að dæma þá
þingskörunga, Guðlaug Þór
Þórðarson, ráðherra heilbrigð-
is, og Sigurð Kára
Kristjánsson.
Afturhaldssegg-
ir beggja kynja,
allra flokka
og allra gerða
hafa keppst
við að efast um
ágæti vilja þeirra
til að selja brennivín sem víðast.
Fólk hefur dæmt þá skörungana
án þess að gera sér fyrst grein fyrir
hvað þeir vilja, hvað þeir meina,
hvað þeir geta og hvað þeir gera.
Fjótfærni er vond, einkum og sér í
lagi þegar ekkert er hugsað áður en
er talað, áður framkvæmt. Þá kann
illa að fara.
Þingskörungarnir eru sem
sagt meiri keppnismenn
er almennt gerist. Það er
kannski þess vegna sem fólk læt-
ur eins og það hef-
ur látið. Ekki er
hlustað eftir vilja
þingmannsins
og vilja ráð-
herra heilbrigð-
ismála. Það er
það sem vantar
og loks kom skýring
á einbeittu keppnisskapi þeirra fé
laga í máiinu, þeirra Sigurðar Kár:
Kristjánssonar og Guðlaugs Þórí
greinar sem við
höfum stórbætt
okkur í, en
eigum samt
eftir að gera
betur svo við
verðum mest
og best. Þar
kemur að þeim Sig-
urði Kára og Guðlaugi Þór,
ráðherra heilbrigðis. Staðfestar
heimildir eru til um að meðal íbúa
heimsins séu þjóðir sem drekka
meira en við. Þetta er staðreynd.
Þessu vilja þeir breyta. Vissulega
hefúr margt áunnist og engin þjóð
í veröldinni hefur náð eins góð-
um árangri á síðustu árum og við.
Við höfum náð að auka drykkjuna
meira en aðrar þjóðir. Úff, hvað
það er gott. En betur má gera.
Þórðarsonar, ráðherra heilbrigð-
ismála.
Þjóðir
keppa í
mörgu.
I fótbolta, í
handbolta og
svo má segja
að keppt sé
í hvaða þjóð
borði mest af
sykri, þambi mest af gosi, borði
mest af kandíflossi, eigi flesta
bílana, stærstu húsin, eigi flesta
skó og lifi lengst. Alls staðar erum
við á toppnum, eða rétt við hann.
Glæsileg ffammistaða. Ekkert má
gefa eftir. Við erum víst meira á
eftir þegar kemur að menntun og
öðru ámóta. En við lifum samt og
eigum mörg met. Svo eru nokkrar
Þess vegna verður seint full-
þakkað að íslenska þjóðin
búi svo vel að eiga þá Sigurð
Kára alþingismann og ráðherra
heilbrigðis, Guðlaug Þór. Þeir gef-
ast ekki upp,
ó, nei. Það
skal ekki
líðast að
aðrar
þjóðir
drekki
meira en
við. Besta
leiðin er að
hafa brenni- vin
um allt. í öllum búðum,
öllum sjoppum, kannski í strætó
og í skólum. Ekki gefast upp, Sig-
urður Kári og Guðlaugur Þór. Við
skulum verða mestir allra búsara.
KEPPNIS
DAGGEISLI
DOMSTOLL GOTUIVIVAR
ER RÉTTLÆTANLEGT AÐ LÖGREGLAN NOTI RAFSTUÐBYSSUR?
„Ég sé ekkl að það sé ástæöa til þess.
Þó hef ég ekki kynnt mér þetta mikið."
Anton Guðjónsson,
lóáranemi
„Nei, notkun á þessum byssum hefur
komið mjög illa út erlendis. Fólk hefur
hreinlega dáið af notkun þeirra."
Gunnar Einarsson,
39 ára á milli starfa
„Ég er alfarið á móti þessu. Ég held að
þetta séu hættulegar byssur sem á alls
ekki að nota."
Viðar Pétursson,
70 ára ellilífeyrisþegi
„Ég er ekki hlynnt því. Þessar byssur
hafa haft alvarlegar afleiðingar bæði f
Bretlandi og Bandaríkjunum."
Sigrún Asa Sturludóttir,
53 ára líffræðingur