Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Sport DV
VIDIC SPILAR A LAUGARDAG
Manchester United ætlar að kalla
NemanjaVidic varnarmannafturtil
liðsins fýrir leikinn gegn Bolton á
laugardag.Vidic
á leik með Serbíu
(undankeppni
EM gegn Kasak-
stan á laugardag
en fyrri leikur
liðanna var
blásinn af vegna
snjókomu. Þar
sem laugardag-
urinnerekki
alþjóðlegur leikdagur er Manchester
United (fullum rétti að kalla Vidic aftur
til liðsins. Leikur Serbíu og Kasakstans
gæti ekki skipt neinu máli ef Portúgal
vinnur Finnland í dag. Þá er Portúgal
komið á EM. Ef hins vegar Finnar ná að
vinna getur lið Serbíu komist á EM leggi
það Kasakstan.
GÓÐDEILDEÐA
GOTT LANDSLIÐ
Vedran Corluka, varnarmaður
Manchester City, hefur varað við of
mörgum útlendingum (ensku
deildinni. Corluka er Króati og því
kemur þetta úr furðulegri átt. Corluka
verður væntanlega (byrjunarliðinu í
kvöld gegn Englandi á Wembley.„Það
er erfitt fyrir Englendinga þvl margir
útlendingartaka þeirra pláss (liðunum.
Sum liðin eru ekki einu sinni með
Englendinga. Ég sé ekki marga
leikmenn eins og Micah Richards eða
Michael Johnson (Englandi. Ókei, það
þýðir kannski að leikmenn eins og ég
geti ekki spilað hér (landi en Englend-
ingar þurfa að fara ákveða sig. Hvort
vilja menn frábæra deild eða gott
landslið? Eftirfimm áreru leikmenn
landsliðsins í dag orðnir gamlir og
þreyttir, það eru engir efnilegir að koma
upp. Kannski Theo Walcott og Richards,
en hverjir fleiri?"
MAKELELE FÆR HVÍLD
Claude Makelele, leikmaður Chelsea,
hefur fengið samþykki frá Avram Grant
til aö fá frf I leikjum sem teljast ekki til
stórleikja.
Makelele, sem
er 34 ára og
hefur verið
fastur maður (
byrjunarliöinu
frá þv( hann
kom til liðsins
2003 frá Real
Madrid, hefur
aðeins spilað
fjóra leiki það sem af er móti. Makelele
hætti við að hætta með franska
landsliöinu og ætlar að vera ferskur
þegar EM verður næsta sumar.„Hann
veit hvað ég get og hvernig ég spila, við
erum með gott lið með marga
landsliðsmenn og ég mun spila leikina
sem skipta máli," sagði Makelele.„Það
hentar mér vel því þá get ég fengið
nauðsynlega hvdd og það erfrábært."
ROBINSON GÆTIDOTTIÐ ÚT
Paul Robinson, markvörður enska
landsliðsins, gæti dottið út úr
byrjunarliðinu (kvöld. Robinson hefur
gert miklar
gloríur á
æfingum
landsliðsinsog
hefurveriðannar
besti markvörður
á æfingum. Steve
McClaren gæti
valið Scott
Carson fram yfir
Robbo en hann
spilaði sinn fyrsta landsleik gegn
Austurr(ki.„Carson var frábær á
æfingunni á mánudag á meðan
Robinson gerði mikil mistök," sagði
heimildarmaðurThe Sun. McClaren
gæti tekið áhættu með JohnTerry og
látið hann spila en það ertalið óliklegt.
Þv( verður Sol Campell væntanlega í
miðverðinum við hlið Rios Ferdinand.
DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON
bladamadur skrifar frá Kaupmannahöfi)
Islenska landsliðið í knattspyrnu
mætir því danska á Parken í kvöld.
Liðið boðaði til blaðamannafundar
á Marriott-hótelinu í gær þar sem
þeir Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari, Stefán Gíslason, leikmaður
Bröndby, og Hermann Hreiðarsson,
leikmaður Portsmouth, sátu fyrir
svörum.
Ólafur mun stýra íslenska lands-
liðinu í sínum fýrsta leik í kvöld.
Hann sagði að ástandið á íslenska
hópnum væri mjög gott.
„Það eru allir heilir og ekkert
vesen. Eggert var aðeins meiddur
á fyrstu æfingunni en hann er í fínu
standi. Það er einn og einn í farar-
stjórninni sem er meiddur," sagði
Ólafur og átti þar við Pétur Péturs-
son aðstoðarþjálfara, sem viðbeins-
brotnaði á æfingu á mánudaginn
eftir tæklingu frá Hermanni Hreið-
arssyni.
„Undirbúningur hefur gengið vel.
Við erum búnir að æfa fimm sinn-
um. Það er nú til komið vegna þess
að við þjálfaramir þekkjum kannski
ekki alveg alla nógu vel, þannig að
við vildum hafa fleiri æfingar til þess
að kynnast mönnum og sjá hvemig
menn akta í þessu. Það hefur gengið
mjög vel," sagði Ólafur, en landsliðið
kom út á laugardaginn.
Stefán Gíslason sagðist ánægð-
ur með þær æfingar sem Ólafur hef-
ur boðið upp á. „Það er gott tempó á
æfingunum, stuttar og góðar æfingar.
Snarpar æfingar. Við emm búnir að
æfa meira, ekki bara að hanga uppi
á hóteli og hanga og sofa. Mér finnst
þetta hafa verið góðar æfingar og við
emm í góðu standi," sagði Stefán.
Eins og áður hefur komið fram leik-
ur Stefán með danska liðinu Bröndby.
Hann sagði að liðsfélagar sínir hefðu
ekki haft mikla ástæðu til að vera of
bjartsýnir fýrir leikinn í kvöld.
„Þeim hefur ekkert gengið og það
hefur aðeins dregið af þeim. Þeir eru
samt það ánægðir með sig að þeir
reikna ekki með að þetta verði neitt
alltof erfitt. Það hefur verið mik-
il gagnrýni á liðið og þeir em hálf-
vængbrotnir, myndi ég segja," sagði
Stefán.
Höfum einbeitt okkur að
vörninni
„Við komum til með að spila 4-5-
1 þegar við höfum ekki boltann og
4-3-3 þegar við höfum boltann. Við
leggjum höfuðáherslu á varnarleik-
inn og höfum reynt að fara svolítið
yfir hann, kannski á kosmað sóknar-
leiksins.
En það er oft ágætt þegar maður
kemur inn í nýjan hóp að vera ekki
að koma með of mikið inn í einu. Það
er þægilegra að koma með minna og
einbeita sér að því, heldur en að vera
að fara yfir of marga hluti því þá mgl-
ast hlutirnir oft," sagði Ólafur.
Ólafur var þekktur fýrir að láta FH
spila sóknarbolta þegar hann þjálfari
Hafnarfjarðarliðið. „Þetta er kannski
aðeins öðruvísi en verið hefur, ég
verð að viðurkenna það. Það er gott
að hafa Pétur með sér, hann kann
varnarleikinn," sagði Ólafur, en Pétur
var markaskorari mikill þegar hann
spilaði sjálfur.
Ólafiir sagði að það væri allt öðm-
vísi að þjálfa félagslið en landslið.
„Það er bara eins og svart og hvítt. Ég
er nýr og auðvitað þekki ég einhverja
af þessum strákum en marga þeirra
þekki ég ekki. Eins og ég hef opinber-
að áður, þá hafði ég ekki séð marga
þeirra spila áður. Auðvitað er þetta
nýtt fyrir mér, ég þarf að kynnast þeim
og kynnast þeirra karakter og fara yfir
marga hluti með þeim. I félagsliði
veistu allt um þína leikmenn, þannig
að þetta er nýtt," sagði Ólafur.
Ólafur sagði að það væri fáa veik-
Króatar eru komnir á EM en hafa ekki unnið E-riðilinn. England
og Rússland berjast um hitt sætið:
AÐ DUGA EÐA DREPAST FYRIR ENSKA
Þökk sé sigri Makedóna á Króöt-
um og að ísrael vann Rússland get-
ur England enn komist á EM. Það
merkilega er að Englendingar geta
enn unnið riðilinn. Fyrir leiki laug-
ardagsins var búist við auðveldum
sigmm hjá Rússum og Króötum en
sú varð ekki reyndin.
Rússar vinna Andorra í kvöld, það
er nokkuð ljóst. Andorra hefur tapað
28 leikjum í röð í undankeppnum og
Rússar hljóta að vilja enda keppnina
með sæmd. Vinni Rússar og Króat-
ar vinna Englendinga á Wembley
fara Króatar og Rússar áfram, Eng-
lendingar sitja eftir með sárt enn-
ið. Króatarar em komnir áffam en
hafa ekki unnið riðilinn, annað hvort
Rússar eða Englendingar fýlgja þeim
áEM.
England þarf aðeins jafntefli til
að komast áfram, Króatar myndu þá
vinna riðilinn. Vinni hins vegar Eng-
lendingar með tveggja marka mun
eru það þeir sem vinna riðilinn. Það
er því margt sem getur gerst í kvöld
og spennan magnast með hverri
mínútunni.
Tapi Englendingar má telja víst
að Steve McClaren verði rekinn úr
stjórastól landsliðsins. Þeir hafa hins
vegar fengið líf í undankeppninni og
æda sér að nýta þann meðbyr. „Við
erum komnir í þessa stöðu og núna
er þetta undir okkur komið," sagði
McClaren. „Við verðum að tryggja að
það verði allir brosandi þegar leikur-
inn verður flautaður af. Hins vegar
er leikurinn ekki búinn og allir þurfa
að flykkjast að baki liðinu, þá er ég
að tala um fjölmiðla, almenning og
áhorfendurna sem verða í stúkunni.
Fyrir mér verða áhorfendur 12. mað-
urinn þannig að við leggjum öllum
málum úr fortíðinni þangað til eft-
ir leik. Við viljum allir vera í Sviss og
Austurríki næsta sumar. Við förum
út á völl og ætlum að vinna þennan
leik. Það er ekki í okkar eðli að spiia
upp á jafntefli. Wembley þarf að vera
virki sem gefur okkur sjálfstraust, þá
koma úslitin."
Stóra spurningin er því hvernig
Króatar koma stemmdir til leiksins
í kvöld. Verða þeir kærulausir og al-
veg sama um úrslitin? Eða mæta þeir
fullir sjálfstrausts og selja sig dýrt?
Hvernig sem fer verður forvitnilegt
að fýlgjast með leiknum og ljóst að
tár, bros og takkaskór verða í aðal-
hlutverki í allt kvöld.
benni@dv.is
Úr fyrri leik Kðanna
John Terry verður ekki með Englend-
ingum og er það þeim mikið áfail.