Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Side 17
PV Sport
MIÐVIKUDAGUR21. NÓVEMBER 2007 17
Haukar sigruðu Fram á Ásvöllum 26-20 í Nl-deildinni í handbolta:
HAUKARMUN BETRI
Haukar sigruðu Framara örugg-
lega á Ásvöllum 26-20. Eftir fína byrj-
un Framara í leiknum sem náðu
mest fjögurra marka forystu kom frá-
bær kafli ffá Haukum sem náðu að
komastyfir 12-10 ogþannigvarstað-
an í hálfleik. Haukar byrjuðu síðari
hálfleikinn vel og mestallan hálfleik-
inn var forysta þeirra 4-6 mörk þar til
yfir lauk.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka,
var ánægður eftir leikinn. „Þetta
byrjaði frekar illa hjá okkur og Fram-
ararnir komust mest fimm mörkyfir.
Það var fyrst og fremst vegna þess
að okkur gekk illa að nýta færin því
vömin var fín hjá okkur. Sóknarleik-
urinn skilaði sér eftir ákveðnar breyt-
ingar sem við gerðum. Auk þess datt
markvarslan vel inn hjá okkur og
Gísli byijaði að verja mjög vel í mark-
inu undir lok fyrri hálfleiks. Við unn-
um síðasta korterið 7-0 og það var sá
kafli sem skilaði þessum sigri. Mér
fannst þetta nokkuð öruggt í síðari
hálfleik þótt það hafi alltaf verið stutt
í baslið.
Það sem skóp sigurinn var virki-
lega góður vamarleikur og mar-
kvarsla. Þegar við fómm að nýta
hraðaupphlaupin fór þetta að ganga
hjá okkur. Það skilaði sér í meiri hraða
í sóknunum. Framaramir reyndu
alltaf að keyra á okkur en þegar við
náðum yfirhöndinni misstu þeir
trúna á að þeir gætu sigrað."
Magnús Jónsson, aðstoðarþjálfari
Fram, var ósáttur í leikslok og sagði
sína menn hafa spilað illa.
„Við byrjuðum vel en misstum
þetta frá okkur síðustu tíu mínút-
umar í fyrri hálfleik. Við komumst
einhvem veginn aldrei á skrið aftur
eftir það. Við vomm sjálfum okkur
verstir sóknarlega. Mér fannst vam-
arleikur þeirra ekkert sérstakur. Þetta
Halldór Ingólfsson Eldist
eins og gott rauðvín og
skoraði þrjú mörk (
leiknum gegn Fram.
var bara dapur sóknarleikur. Það er
nokkuð ljóst að við þurfum að skoða
okkar mál rækilega í sókninni.
Þetta er mjög jöfn deild og við
erum búnir að vera inni í öllum leikj -
um þar til kom að þessum. Við erum
kannski langt frá okkar besta eins
og er en við munum spila í Evrópu-
keppninni í næstu tveimur leikjum.
Við ætlum okkur stóra hluti þar og
reyna að nota þá í að koma okkur aft-
ur af stað," segir Magnús Jónsson að-
stoðarþjálfari Fram.
vidar@dv.is
Olafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari íslands i knatt-
spyrnu, segir að því lengur sem ísland haldi marki sinu
hreinu gegn Dönum í kvöld, því meiri möguleiki sé á sigri.
Martin Laursen verður ekki með danska liðinu. Hann
fékk fri þar sem þessi leikur skiptir Dani engu máli.
“Bn
SPOSKIR OG BJARTSYNIR
Þeir kumpánar Ólafur og Hermann voru
leika að finna á danska liðinu, en
þeir væru þó fyrir hendi. „Mér hef-
ur ekki fundist varnarleikurinn hjá
danska liðinu mjög öflugur. Það er
kannski það eina. Enda hafa þeir
verið í vandræðum með vörnina,
hafa verið að skipta mönnum mikið
út. En þeir eru sterkir ffarn á við og
sterkir á miðjunni. Þeir spila flottan
fótbolta, vilja halda boltanum," sagði
Ólafur, sem býst við því að Danir spili
4-3-3. rj
„Auðvitað eru þeir hundsvekktir
og særðir yfir að komst ekki áffarn.
Stundum er gott að mæta liði sem á
engan séns og stundum er það vont,
maður veit það ekkert fýrir fram.
Auðvitað er það möguleiki að þeir
komi með hangandi haus. Svo geta
þeir auðvitað líka tekið hinn pólinn í
hæðina, að verja sína æru og stolt og
ætla að leggja sig fram í þessum leik,"
sagði Ólafur og bætti við að þó ís-
lenska Iiðið væri í sömu stöðu skipti
leikurinn á morgun miklu máli.
Byrjunarliðið klárt
Hermann Hreiðarsson verður fýrir-
liði íslenska liðsins gegn Dönum. Hann
sagði að leikmenn liðsins væru stað-
ráðnir í að berjast eins og ljón.
„Það er nú bara þannig að þú manst
alltaf eftir þínum síðasta leik og síðasti
leikur fór ekkert sérstaklega vel. Það er
langt í næsta leik þannig að við viljum
skilja við þetta ár á góðum nótum og
sýna hvað í okkur býr, að það er miklu
meira varið í liðið en við höfum sýnt,"
sagði Hermann.
Ólafur er búinn að velja byrjunarlið-
ið sem spilar leikinn á morgunn. Hann
verður með liðsuppstillinguna 4-5-1
og segir Ólafur að þegar liðið sæki spili
það 4-3-3. f markinu verðu Ami Gaut-
ur Arason. Vömin verður skipuð þeim
Grétari Rafiú Steinssyni, Kristjáni Sig-
urðssyni, Ragnari Sigurðssyni og Her-
manni Hreiðarssyni. Miðjan verður
skipuð þeim Brynjari Bimi Gunnars-
syni, Veigar Páli Gunnarssyni og Stef-
áni Gíslasyni. Á vængjunum verða þeir
Emil Hallfreðsson og Theódór Elmar
Bjamason en frammi verður Gunnar
Heiðar Þorvaldsson.
Oft er það svo að mikil barátta fær-
ist í lið eftir að nýr þjálfari tekur við.
íslendingar hefur aldrei unnið Dani
í landsleik og Ólafur vonast til að það
muni breytast í kvöld.
„Mér hefur fundist mannskapurinn
fínn og gott hugarfar hjá strákunum,
einbeitingin góð. Ef ég á að segja al-
veg eins og er þá er ég bara mjög bjart-
sýnn. Auðvitað eigum við alltaf mögu-
leika, það er pottþétt, og við eigum fína
möguleika í þessum leik. Við göngum
út frá því. Eins og mér finnst leikmenn
haga sér eigum við, tel ég, góða mögu-
leika á góðum úrslitum," sagði Ólafur.
„Því lengur sem við getum haldið
markinu okkar hreinu, þeim mun meiri
möguleikar eru á því að þeir verði pirr-
aðir og fari kannski að gera einhverjar
vitieysur. Fyrstu 20 mínútumar verða
örugglega mjög erfiðar og því lengur
sem við höldum það út að fá ekki á okk-
ur mark, því meiri verða möguleikam-
ir,“ sagði Ólafur.
Danir virðast ekki vera mjög spennt-
ir fyrir leiknum í kvöld. Aðeins hafa ver-
ið seldir rétt rúmlega 20 þúsund miðar
og einhverjir þeirra em ársmiðar, sem
ólíklegt er að allir nýti sér, en Parken
tekur rúmlega 40 þúsund áhorfendur.
Rúmlega þúsund miðar hafa verið
seldir í gegnum KSf og líklegt verður að
teljast að allnokkrir íslendingar búsett-
ir í Danmörku fari á leikinn. Það er því
góður möguleiki á því að einn af hveij-
um tíu áhorfendum á vellinum verði
íslendingur.
„Ég er að sjálfsögðu ánægður með
það. Það er ftíllt af fslendingum sem
búa héma og þeir verða örugglega
búnir að fá sér nokkra áður en þeir
mæta á völlinn, ef ég þekki þá rétt. Ég
held meira að segja að mafían mín
góða sé með árshátíð héma og þeir
mæta. Þannig að við fáum örugglega
mjög góðan stuðning," sagði Ólafur að
lokum.
ÍÞRÓTTAM0LAR
RONALDINHO EKKIÓSNERTANLEGUR
Kaka trúir því að Barcelona sé tilbúið að
láta Ronaldinho fara frá félaginu þar
sem hann er ekki lengur hluti af þeim
ósnertanlegu á
Nývangi.
Ronaldinho hefur
verið orðaðurvið
AC Milan að
undanförnu og
þó Barcelona hafi
hafnað því að
Ronaldinho gæti
verið á förum frá
liðinu áðuren
timabilið endar, er talið að forráðamenn
liðsins reyni að byggja upp liðið að nýju
á næsta ári. Kaka segir Ronaldinho ekki
lengur vera ósnertanlegan af öðrum
liðum.„Fyrirtveimurárum hefði
Barcelona aldrei selt Ronaldinho. Nú er
sagan önnur," segir Kaka.
FRAKKAR ERU HELSTU
KEPPINAUTAR ÍTALA
Andrea Pirlo segir að Frakkar muni
verða helstu keppinautar ítala á EM
2008.„Frakkar eru helstu keppinautar
okkar og ég er sérstaklega hrifinn af
Ribery," segir
Pirlo. Italir eru
komnirafturá
beinu brautina
eftirdapurtgengi
ífyrstu undir
stjórn Donadonis
þjálfara liðsins og
Pirlo lofar
þjálfarann.„Það
var ekki auðvelt
fyrir hann að taka við af Lippi. Hann
hafði ekki mikla reynslu áöuren hann
tók við en honum óx ásmegin og við
erum gott lið (dag. Liðsandinn er
frábær og við þekkjum styrkleika okkar,"
segir Pirlo.
EKKIKENNA DÓMARANUM UM
Alex McLeish neitar að kenna
dómaranum um eftirtapgegn ftölum
þrátt fyrir að öll skoska þjóðln geri það.
Hann segir að menn verði að horfa fram
á veginn í stað
þess að svekkja
sig umofáþví
sem varð. Dómari
leiksins dæmdi
furðuiega
aukaspyrnu á
Skotaundirlok
leiksins sem
leiddi til
sigurmarks Itala
sem Christian Panucci skoraði.
„Vissulega getum við kvartað yflr
dómaranum, en ef við höldum áfram að
gera það mikið lengur verðum við
sakaðir um að kunna ekki að tapa. Við
þurfum að gleyma þessu atviki og
halda áfram að byggja upp knatt-
spyrnuna hér," segir McLeish.
ROONEY HEILL f BRAÐ
Wayne Rooney gæti orðið fyrr á ferðinni
en upphaflega varáætlað. Rooney
meiddistá ökkla á æfingu með
Manchester
United en
samkvæmt
fjölmiðlumá
Englandi mun
hann byrja að æfa
að nýju með
liðinuidag.Áður
vartalið að
Rooney yrði frá f
allt að fjórarvikur
en nú eru einungis 11 dagar síðan
Rooney meiddist. Manchester United
spilar gegn Bolton á laugardaginn en
hann mun ekki spila þann leik heldur er
búist við þv( að hann spili gegn
Sporting Lissabon í Meistaradeildinni.
NEWCASTLE FÆR BÆTUR
Newcastle United mun fá bæturfrá
Enska knattspyrnusambandinu fyrir
meiðsli Michaels Owen í landsleik
Englandsgegn
Austurríki.
Newcastlefær
500 þúsund pund
(vasannfýrirað
þurfa vera án
Owens. Hann er
með 110þúsund
pund á viku og
gæti verið frá (5-6
vikurvegna
meiðsla á læri. Newcastle hefur jaegar
þegið sex milljónlr punda fyrir að Owen
hafi meiðst með landsliðinu. Þetta eru
miklir blóðpeningar fyrir báða aðila en
Newcastle hefur lltið getað notað Owen
síðan hann gekk (raðir liðsins og Enska
knattspymusambandið er enn að borga
laun Svelns Jörundar.