Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Blaðsíða 23
DV Umræða
MIÐVIKUDAGUR21. NÓVEMBER2007 23
— i—! Ásta Ragnheiður Jóhannes-
—I dóttir þingmaður Samfylkingar-
innar fær plúsinn að þessu sinni fyrir
að leggja fram þingsályktunartillögu
um takmörkun auglýsinga á óhollri
matvöru sem beint ergegn börnum.
SPURNINGIIV
HVARÆTLAR
ÞÚ AÐ NIÐURHALA
ÞÍNU EFNI?
„Það er til nóg af stöðum á internetinu
til þess. Ég ætla ekki að tilgreina neinn
sérstakan stað hér," segir Svarar
Lúthersson, forsvarsmaður torrentis
en á mánudag var vefsiðunni lokað að
kröfu sýslumannsins í Hafnarfirði.
DVFYRIR
25ÁRUM
MYNDIN
MikeTyson Hnefaleikaheimsmeistarinn fyrrverandi er mikill dúfnavinur og á sunnudag notaði Tyson
tækifærið til þess að heimsækja dúfnabú í Walsall í Bretlandi. Tyson hefur komist (kast við lögin upp á
síðkastið og var nýlega dæmdur í eins dags fangelsi. dv-mynd Getty
Alið á fordómum
Það er vandratað meðalhófið í
fréttaflutningi og umfjöllum um það
sem aflaga fer í þjóðfélaginu. Það er
gömul saga og ný. Rík er tilhneigingin
að finna sökudólg og að gera hann
ábyrgan. Við það verða aðrir laus-
ir við sök eða ábyrgð. Kannast ekki
margir við frásögnina af innbrotinu,
þjófnaðinum eða nauðguninni sem
lauk með því að greint var frá því að
um aðkomumann var að ræða? Er-
lendis eru til sams konar dæmi og
þar eru dæmi um að gyðingar eða
sígaunar séu gerðir ábyrgir fyrir ein-
hverju miður góðu athæfi sem bitnar
á almenningi eða ógnar öryggi hans.
Meðalhófið er vandratað og efþað
tekst ekki þá getur það gerst að alið er
á fordómum, stundum óafvitandi og
stundum vísvitandi. Að gera utan-
bæjarmenn ábyrga fríaði heimamenn
allri ábyrgð og leiddi til almennings-
álits sem var rangt, vegna þess að það
lágu rangar upplýsingar til grund-
vallar. Þess vegna bera þeir sem flytja
ff éttir mikla ábyrgð ekki síður en hin-
ir sem vinna úr fréttunum.
Nú eru það útlendingar sem eru í
hlutverki utanbæjarmannsins. Flutt-
ar eru fréttir af afbrotum sem þeir
fremja og óðara stökkva fram menn
sem gera útlendingana ábyrga fýrir
því að venjulegt fólk, og sérstaklega
konur, óttast um öryggi sitt og krefj-
ast þess að fjarlægja þá úr landi eða
þeim verði bannað að koma til lands-
ins án einhvers konar öryggisskoð-
unar. Upphrópun á borð við údend
nauðgunargengi eða þjófagengi eru
sorgleg dæmi þar sem abð er á for-
dómum gagnvart útlendingum og ís-
lenskt þjóðerni upphafið.
Síðustu daga hefur mjög borið á
fréttum af nauðgunum sem erlendir
menn eru taldir hafa framið og sum-
ir fjölmiðlar hafa tilgreint sérstak-
lega að um údendinga hafi verið að
ræða. Það má segja að eðlilegt er að
KRISTINN H.
GUNNARSSON
alþingismaður skrifar
„Meðalhófið er vandrat-
að og efþað tekst
geturþað gerst að alið
er á fordámum, stundum
óafvitandi og stund
visvitandi."
tilgreina þjóðerni ef það hefur ein-
hverja þýðingu til þess að skýra mál-
ið. Það er að segja ef údendingar eru
líklegri til þess að nauðga, þá er það
kannski sanngjarnt gagnvart öðr-
um sem myndu annars liggja undir
grun.
En engar upplýsingar hafa kom-
ið ffarn sem staðfesta það. Þvert á
mótí er upplýst að ólíklegt sé að fleiri
nauðganir séu framdar af údending-
um en nemur hlutfalli þeirra af íbú-
um landsins. Að auki er upplýst að
fleiri erlendar konur sem giftust ís-
lendingi og fluttust til landsins hafi
leitað til Stígamóta vegna ofbeldis
eiginmanns síns en sem svarar hlut-
fallslegum íbúafjölda hér. Hvar er
fréttaflumingurinn um þá staðreynd
síðustu vikur?
Vissulega hefur orðið sprenging í
fjölda útíendinga hér á landi á örfá-
um árum. Það má segja að þar hafi
ekki verið farið meðalhófið og mörg
vandamálin af því orðið. Aðallega
þó á þann veg að íslenskir atvinnu-
rekendur hafa misnotað hið erlenda
vinnuafl á einn eða annan hátt. Af
þessari hröðu fjölgun á stuttum tíma
leiðir ýmislegt sem venjulegum ís-
lendingi líkar ekki, svo sem að geta
ekki talað íslensku við strætísvagns-
stjórann eða þjóninn á veitingahús-
inu o.s.ffv. Það eru að mínu matí eðli-
leg umkvörtunarefni því við eigum
heima í íslensku málsamfélagi og
eigum ekki að una öðru. Og vissulega
getur mörgum landanum þótt að nóg
sé komið í bili af fjölgun údendinga.
Það er í sjálfu sér ekkert að því sjón-
armiði og einmitt skiljanlegt út frá
meðalhófinu sem alltaf á við.
En við eigum ekki að ræða um
einstök vandamál eins og þau eigi
sér sérstaklega rætur í erlendu þjóð-
emi af þeirri einföldu ástæðu að slíkt
er firra. Ofbeldishegðun er vanda-
mál sem útíendingar bjuggu ekki til,
drykkjuskapurinn og sóðaskapurinn
um helgar í miðborg Reykjavíkur er
ærinn þótt engir útíendingar komi
þar að. Nauðgangir hafa því miður
verið fjölmargar á hverju ári framdar
afíslendingum.
í hnotskurn, þá hafa vandamál-
in, sem verið er að tengja útíendinga
sérstaklega við, verið til staðar án
þeirra og engar vísbendingar liggja
fyrir sem sýna að þau hafi orðið verri
fýrir þeirra tilverknað. Á Austurlandi
hefur um nærri þriggja ára skeið ver-
ið um 1500 - 2000 manna þorp Pól-
verja sem unnið hafa hjá Bechtel. Þar
hefur ekki orðið neitt lögreglumál,
engin kæra, engin umkvörtun, eng-
ir árekstrar við Islendinga og em þó
mennimir bæði ungir og nota áfengi.
Vestfirðingar hafa lengri reynslu
en aðrir landsmenn af útíendingum
sem þangað hafa flust til lengri eða
skemmri dvalar. Sú reynsla er útíend-
ingunum hagstæð, þeir hafa sýnt sig
vera góðir þegnar og hafa almennt
lagt sig fram um að standa sig vel í
íslensku þjóðfélagi. Það sama á við
um þá útlendinga sem hingað hafa
komið á síðustu ámm, nema hvað
líklega má sjá þverskurð í þeirra hópi
sem er líkari því sem við almennt
þekkjum. Þetta eru ffekar sannmæli
um útíendingana en á köflum frekar
óviðfelldin umfjöllum síðustu daga
á þjóðemislegum nótum. Hún hef-
ur alið á fordómum með óttann að
vopni.
Sandkassinn
Kristján Hrafn Guðmundsson
talar um íslenska kvikmyndagerð
ÉG HLJÓPILLILEGA Á MIG hér í
þessum pistli fýrir réttri viku
þar sem íslensk kvikmyndagerð
samtímans var
mærð. Þarhélt
ég þvf fram að
hvorki myndin
Börn né For-
eldrar, sem
Ragnar Braga-
son ogVest-
urportshóp-
urinn gerðu,
hefðu verið valin sem ffamlag
fslands til óskarsverðlaunanna.
Börn varð þess heiðurs aðnjót-
andi í fýrra en rýr uppskera á
Edduhátíðinni varð líklega til
þess að ég hélt þessu fram. Og
fljótfærni að „dobbúltékka" ekki.
Bið hlutaðeigandi innilegrar af-
sökunar.
(L0FRÆÐUNNI í síðustu viku talaði
ég um leiknar myndir og heim-
ildarmyndir. Eina kvikmynda-
tegund til má einnig nefha, það
er, stuttmyndir. Ein slík eftir
Rúnar Rúnarsson, Síðasti bær-
inn í dalnum, var tilnefnd tíl
óskarsverðlauna (og ekki „bara"
sem ffamlag íslands) sem besta
stuttmyndin fýrir tæpum tveim-
ur árum og fékk vænan skammt
af verðlaunum á öðrum alþjóð-
legum hátíðum. Og ef það er
einhver mælikvarði á velgengni
og gæði íslenskra kvikmynda
undanfarin misseri og ár, þá
hafa tvær slíkar, stuttmyndin
Bræðrabylta og heimildarmynd-
in Reiði guðanna, hlotið verðlaun
á alþjóðlegum hátíðum síðan
ofanritaður klappaði á bak kvik-
myndagerðarmanna hér á landi
fýrir einungis sjö dögum! Og ekki
þau fyrstu á þeim bæjunum.
ÞÁ ERU ÓNEFNDAR þær blikur sem
eru á lofti um að leikið íslenskt
sjónvarpsefni komist á hærra
■ plan eftir að
umdeildur
samningur
milli RÚV
og Björgólfs
Guðmunds-
sonar var
undirritað-
ur á dögun-
um. Það væri
ekki amalegt ef við íslendingar
kæmumst þó ekki væri nema í
hálfkvisti við Dani í þeim geira í
nánustu framtíð. f enn fjarlægari
ffamti'ð er krafan þó að sjálfsögðu
að gera mikið betur en þeir.
EIH ER ALLAVEGA VfST: fslenska
kvikmyndavorinu er lokið. Það er
komið kvikmyndasumar.
f
AFMÆLISBÖRN DAGSINS ■
MIÐVIKUDAGURINN 21. NÓVEMBER 2007
60ÁRA 50ÁRA 40ÁRA
ERNAJÓNSDÓTTIR, Arahólum 2, Reykjavík. ANNA JÓNA EINARSDÓTTIR, Lindarbraut 7, Seltjarnarnesi. JÓHANNES BALDVIN LAREAU, Gaukshólum 2, Reykjavík. SIGURÐUR ERLING BALDURSS0N, Ránargötu 35, Reykjavík. GIANCARLO GIUSEPPE FRANC0, Laugarási, Egilsstöðum.
KRISTÍN SÖRLADÓTTIR, Dunhaga20, Reykjavík. BÚIGRÉTAR VÍFILSS0N, Hlíðarbæ 16, Akranesi. LEIDY KAREN STEINSDÓTTIR, Hesthömrum 23, Reykjavík. SVEINN KARLSS0N, Lyngbrekku, Stað. HILDIGUNNUR SVAVARSDÓTTIR, Möðruvallastræti 10, Akureyri.
PETRÍNA RAGNA PÉTURSDÓTTIR, Engihjalla 23, Kópavogi. ERLENDUR HJALTAS0N, Auðarstræti 3, Reykjavík. LÁRA ÞÓRARINSDÓTTIR, Sundlaugavegi 14, Reykjavík. ÞORVARÐUR EINARSS0N, Hraunbæ 34, Reykjavík. MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR, Mjóstræti 6, Reykjavík.
pAlljónasson, Hlíð, Þórshöfn. GUNNAR EIRÍKSS0N, Heiðargerði 43, Reykjavík. SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Áshlíð 1, Akureyri. RAGNHILDUR REYN ÓLAFSDÓTTIR, Ránarvöllum 19, Reykjanesbæ.
ASGEIR ÁSGEIRSS0N, Sogavegi 96, Reykjavík. INGIBJÖRG SVERRISDÓTTIR, Fiskakvísl 9, Reykjavík. SIGURGEIR GUÐMUNDSSON, Borgarhrauni 22, Hveragerði. SIGURBJÖRG ÓSK STEFÁNSDÓTTIR, Kópubraut 16, Reykjanesbæ.