Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007
Síðast en ekki síst DV
SANDKORN
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði
Nú er tími jólabókaflóðsins genginn
í garð og úrvalið af nýjum og spenn-
andi bókum alveg gríðarlega mikið.
Þá er algjörlega málið að taka sér
góða bók í hönd á kvöldin og hvíla
aðeins sjónvarpsglápið. I staðinn
fyrir að Úggja uppi í rúmi og glápa
á sjónvarpið fyrir svefninn er miklu
uppbyggilegra að sökkva sér á kaf í
spennandi bók. Og foreldrar eru líka
að sjálfsögðu hvattír til að lesa fyrir
bömin.
Nú eru íslendingar að fara að keppa
við frændur okkar Dani í fótbolt-
anum í kvöld. Þá er um að gera að
ijölmenna heima hjá einhveijum
félaganum, panta pitsu, drekka öl
og öskra og garga eins og vitleysing-
ur á sjónvarpið. Bara svona rétt til
að sýna íslenskan samhug og styðja
strákana okkar til sigurs. Svo verður
líka spennandi að sjá hvemig nýja
landsliðsþjálfaranum Ólafi Jóhann-
essyni gengur með liðið.
Mynd sem segir á mjög raunsæjan
hátt ff á kókaíninnflutningi til Mi-
ami á áttímda og níunda áratugn-
um. Hér er á ferðinni ff ábærlega vel
unnin heimildarmynd sem sýnd
var á bíódögum Græna ljóssins fyrr
í haust. Nú er myndin hins vegar
komin á vídeóleigur og ættu allir
þeir, sem eru komnir með aldur tíl
og nenna ekki að lesa eina af góðu
bókunum sem í boði eru, að skella
sér út á leigu og leigja myndina.
Þórður Björnsson
Þrír vopnaðir og grímuklæddir
piltar rændu verslun Þórðar
Björnssonar kaupmanns nú á
dögunum. Þórður hélt að um
grín væri að ræða í fyrstu en varð
fyrir miklu sjokki þegar hann
áttaði sig á alvöru málsins.
Hver er draumurinn?
„Bara að halda áfram í verslun og
eiga gott líf."
■ f nógu er að snúast hjá Grími
Atlasyni, bæjarstjóra í Bolung-
arvík. Hann er ein aðalsprautan
í umboðs- |--------------------
fyrirtækinu
Austur-
Þýskalandi
semnú
flyturinn
sjálfan Kim
Larsen.
Umboðs-
marma- I-----------------------
bransinn getur verið skeinuhættur
en Grímur og félagar eru að gera
það gott með danska goðinu því
uppselt er í sætí á tónleikana sem
verða í Vodafone-höllinni á laug-
ardagskvöldið.
■ Gissur Sigurðsson, morgun-
fréttamaður Bylgjunnar, á óborg-
anlega frasa á köflum þegar hann
rúllar yfir fréttaflóruna. í gærmorg-
un fór hann yfir þá áráttu Þorláks-
hafnarbúa að stela hraðahindrun-
um. Þegar Kolbrún Bjömsdóttir
morgunhani spurði hann hvort
fólk tæki þetta heim til sín svaraði
Gissur að bragði að hann vissi það
ekki en heima hjá honum þyrftí
engar hraðahindranir.
■ Einn ræðumanna í brúðkaupi
Ingibjargar Pálmadóttur og Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar var æsku-
vinur hans Magnús Öm Guðmars-
son matreiðslumeistari. Magnús
sagði frá því að þegar Ingibjörg
og Jón Ásgeir vom að kynnast var
hann eitt sinn kallaður heim til
brúðgumans
tílaðeldafor-
látapastarétt
þarsemvon
var á Ingi-
björguímat.
Skömmu áður
en hún birtíst
laumaðist
kokkurinnút
en Jón Ásgeir settí upp svuntuna
og sló rækilega í gegn. Það fylgdi
sögunni að Jón Ásgeir kynni að
búa til kokkteilsósu og skinkusam-
loku.
■ í brúðkaupi sonar síns um
helgina veittí Jóhannes Jónsson,
kenndur við Bónus, því athygli
að veisluhöldin vom tekin upp á
sjónvarpsvélar og taldi vissara að
huga að því að vélamar gætu ver-
iðávegum
Björgólfs
Guðmunds-
sonar og
sennilegast
yrðiveislan
því hápunkt-
urjóladag-
skrár Ríkis-
sjónvarpsins.
Það rataði í Sandkom að þessi
orð hefðu hnotið af vörum forseta
fslands. Hann mun ekki hafa gant-
ast með Björgólf Guðmundsson í
þetta sldptíð. baldur@dv.is
Hver er maðurinn?
„Maðurinn er Þórður Björnsson,
kaupmaðurinn á horninu."
Hver eru þín áhugamál?
„Það er auðvitað búðin, skíði og
fótbolti en hann smnda ég í þeim
góða félagsskap Lunh United."
Hvað drífur þig áfram?
„Það er bara að hafa gaman af því
að vera til."
Fallegasti staðurinn?
„Fallegasti staðurinn er Laug-
arvatn en þar eyddi ég öllu síðasta
sumri þar sem ég starfaði sem versl-
unarstjóri."
Hvernig tónlist hlustar þú á?
„Ég hef alla tíð haft dálæti á Hall-
birni Hjartarsyni, hann er minn mað-
ur og þar á eftir kemur Domingo."
Eftirminnilegasta bók sem þú
hefur lesið?
„Ég ligg nú aðallega yfir viðsldpta-
bókum annars hafði ég mjög gaman
af Djöflaeyjunni eftir Einar Kára-
son."
Hvernig leið þér þegar ráðist var
inn í búðina?
„Mér leið alls ekki vel. Fyrst hélt
ég að þetta væri grín en þegar ég átt-
aði mig á alvöru málsins fékk ég al-
gjört sjokk."
Hvernig varðist þú árásinni?
„Ég gerði þá vitleysu að reyna að
yfirbuga þá. Eg mæli með því fyrir þá
sem lenda í svipuðum aðstæðum að
gera ekJd neitt. Árásarmennirnir geta
orðið hræddir eða farið í vörn ef bar-
ist er á móti þeim og þá er aldrei að
vita hverju þeir taka upp á."
Óttaðist þú um líf þitt?
„Nei, ég get ekki sagt það, ég varð
nú svolítíð hræddur þegar ég sá ex-
ina en þetta gerðist allt svo hratt að
það gafst ekki tími til að hugsa um
slíkt."
Hefur þú áður lent í árás eða
innbroti?
„Nei, aldrei."
Ingmar Steffnark, sænskur skíða-
kóngur, hann var goðið mitt."
Hvað erfram undan?
„Það er allt opið, annars mun
ég bara halda áfram og láta daginn
líða."
Ert þú farinn að vinna aftur?
„Já, já, það þýðir ekkert annað.
Einn árásarmannanna ætlar einmitt
að kíkja í búðina til mín á næstunni.
Hann ætlar að koma með mömmu
sinni og heilsa aðeins upp á mig."
Ætlar þú þér að gera frekari
öryggisráðstafanir í framtíðinni?
„Lögreglan hefur verið að aðstoða
mig við að uppfæra og efla kerfið
mitt. Ég mun verða beintengdur við
112 í framtíðinni."
Hver er þín fyrirmynd?
„Á skíðunum í gamla daga var það
GERÐIÞÁ VITLEYSll AÐ
REYNA AÐYFIRBUGA ÞÁ