Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2007, Side 32
Litlar samlokur 399 kr.
+ Uti<) gosglas 100 kr.
= 499
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
Duglegirfangar
á Litla-Hrauni
Ellefu fangar á Litla-Hrauni sjá
nú um alla matreiðslu á sinni deild.
Þeir sjá einnig um innkaupin og
gera þau í verslun fangelsisins fyrir
pening sem þeir fá úthlutað dag-
i<5 lega. Að sögn Kristjáns Stefánsson-
ar, forstöðumanns á Litla-Hrauni,
er megintilgangurinn með þess-
ari nýjung að gefa föngunum kost
á að bera ábyrgð á ráðstöfun fjár-
muna, með hagsýni að leiðarljósi,
og skipuleggja sjálfir hvað þeir fái í
matinn. Auk þess læri þeir undir-
stöðuatriði í eldamennsku og geta
^ valið hvað þér fá í matinn.
Sundlaugarvörður
meðal grunaðra
Einkaspæjarafyrirtæki McCann-
fjölskyldunnar telur að vinafólk standi
á bakvið ránið á Madeleine McCann.
Þetta kemur fram í breska blaðinu
Daily Mirror. Vin-
irnir sem taldir
eru hafa skipulagt
ránið eru þau Ro-
bert Murat, sem í
upphafi rann-
sóknar lá undir
grun, Michaela
Walczuch, vin-
kona hans, og
Luis Antonio, eiginmaður Michaelu.
Antonio starfaði við að hreinsa
sundlaugar á portúgalska gististaðn-
um sem foreldra Madeleine gistu
á þegar hún hvarf. Fyrir vikið hafði
hann fullan aðgang að staðnum. Vitni
hafa borið að sést hafi til Walczuch
með barni sem augljóst var að hún
vildi ekki að þekktist. Vinirnir neita
allir aðild að hvarfi stúlkunnar.
Fljúga samt
til Kúbu
„Það eru þrjú flug á okkar vegum
til Kúbu í haust," segir Bjarni Hrafn
Ingólfsson, markaðsstjóri Heims-
ferða, sem bjóða upp á ferðir til
Kúbu. DV hefur síðustu daga fjallað
um að bandarísk stjórnvöld hafi
fett fingur út í leiguflug Icelandair
og Air Atlanta til og frá Kúbu á Boe-
ing-vélum. íslenska flugfélagið JetX
flýgur fyrir Heimsferðir á Boeing
737-800-vélum. Aðspurður seg-
ist Bjarni ekki hafa fengið fram til
þessa athugasemdir frá bandaríska
flugvélaframleiðandanum vegna
Kúbuflugsins. Hann skilur ekki af-
skiptasemi bandarískra stjórnvalda.
„Þetta er eins og að selja einhverj-
um Toyotu og banna honum að fara
til Hafnar í Hornafirði," segir Bjarni.
Fangarnir leita
víðafanga!
i «é
Danski verðlaunaleikstjórinn Bille August ætlar að kvikmynda eftir íslenskri bók:
AUGUSTLEIKSTYRIR
SLOÐFIÐRILDANNA
Leikstjórinn Bille August hefur í
hyggju að kvikmynda bók Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar Slóð fiðrildanna.
DV hefur undanfarna daga greint frá
heimsókn leikstjórans til Islands, sem
verið hefur háleynileg fram til þessa.
Upphaflega stóð til að norska leik-
konan, leikstjórinn og rithöfundur-
inn Liv Ullman leikstýrði myndinni
en nú er útlit fýrir að þær fýrirætl-
anir hafi breyst. Upphaflegt handrit
myndarinnar er þó eftír Ullman en
hún á sjötugsafrnæli á næsta ári og er
því hugsanlega ekki nógu frísk tíl þess
að standa í ströngum upptökum. Slóð
fiðrildanna hefur komið út
í ellefu löndum og mælti
NewYorkTimes með henni
þrívegis við lesendur blaðs-
ins. Enskt vinnuheiti mynd-
arinnar er A Journey Home.
Tveir Gullpálmar
Danski verðlaunaleik-
stjórinn hefur verið hér á
landi undanfarna daga við
skoðun á upptökustöðum og íslensk-
um leikurum. August hefur tvívegis
unnið tíl Gullpálmans á Cannes-kvik-
myndahátíðinni, annars vegar fýr-
ir myndina Pelle sigurvegari og hins
vegar fýrir myndina Den Goda Vilj-
ann.
Það var árið 2005 sem tal um að
kvikmynda bókina vaknaði fýrst og
kom þá fram að framleið-
endur myndarinnar væru
þeir Siguijón Sighvatsson
og Steven Haft, ekki er vitað
hvort einhverjar breytíngar
hafa orðið á því.
Sagan íjallar um ævi konu
að nafttí Ásdís og hvernig
merkilegustu atburðir tut-
, , tugustualdarinnarhafaáhrif
B.lle August , hennar Rún er uppalin
á Kópaskeri og flyst síðan tíl Englands
þegar nasistar eru við stjórnvölinn í
Þýskalandi. Bróðurpartur sögunnar á
sér stað hér á landi og því upplagt að
kvikmynda söguna hér.
Blandaður leikarahópur
f viðtali við Ólaf Jóhann í DV frá ár-
inu 2005 er haft eftír honum að flest-
Fallegt sólsetur Það var engu líkara en sólin ætlaði að tylla sér á topp húsþakanna í vestri þegar myndin var tekin um miðjan
dag í gær. Það er því Ijóst að timi rómantiskra ökuferða í leit að fallegu sólsetri að kvöldlagi er liðinn í bili. dv-mynd Asgeir
Notendur torrent.is brugðust fljótt við lögbanni á vefsíðuna:
Búið að færa efnið annað
Stór hluti af vinsælasta íslenska
höfundavarða efninu, sem notend-
ur skráaskiptívefsíðunnar torrent.is
gátu sótt án endurgjalds, var strax
á mánudag komið inn á vefsíð-
una piratebay.org. Sýslumaðurinn í
Hafnarfirði féllst á mánudag á lög-
bannskröfu á torrent.is og var Svav-
ari Lútherssyni, eiganda síðunn-
ar, gert að loka henni fyrir klukkan
fimm sama dag. Strax um kvöldmat-
arleytið á mánudag var flest af ís-
lenska efninu komið inn á Piratebay
og má lesa á spjallsíðum á netinu að
notendur torrent-is hvöttu hver ann-
an til þess að flytja efnið strax yfir og
halda áfram að hala niður nýju efni
utan íslenskrar lögsögu.
Snæbjörn Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SMÁlS, segist þekkja
þetta mál vel. „Við tókum eftir því
að menn voru að hvetja hver ann-
an tíl að flytja allt þangað. Jafnvel þó
svo að Piratebay sé fyrir utan okkar
lögsögu er verið að rannsaka hana í
opinberu sakamáli í Svíþjóð. Ef svo
væri ekki myndum við leita tíl syst-
kinasamtaka okkar tíl þess að bregð-
ast við þessu," segir Snæbjörn.
Piratebay er ekki tengd beint
forsvarsmönnum og stjórnendum
torrent.is, en Snæbjörn segir að not-
endur síðunnar hafi í hefndar skyni
hvatt til þess að efnið yrði flutt yfir
á Piratebay. Aðspurður hvort hægt
verði að stemma stigu við ólöglegu
niðurhali og hvort nýjar síður sprettí
ekki upp jafnharðan og öðrum er
lokað, svarar hann: „Þeir virðast
allaf flýja eitthvert annað en ef við
Snæbjörn Steingrímsson „Við tókum
eftir því að menn voru að hvetja hver
annan til að flytja allt þangað. Jafnvel þó
svo að Piratebay sé utan okkar lögsögu
er verið að rannsaka hana í opinberu
sakamáli (Svíþjóð."
lítum á málið í heild sinni er löggjöf-
in í nágrannalöndum okkar alltaf að
verða okkur meira í hag og ef okkur
tekst að ýta þessu samfélagi lengra
og lengra ffá landsteinunum er það
til góðs."
valgeir@dv.is
Skytta lést
á veiðum
Rjúpnaskytta sem var á veið-
um við hellinn Víðgelmi í Borg-
arfirði fékk hjartaáfall og lést.
Frá þessu var greint á Vestur-
landsvef Skessuhorns. Atvikið
áttí sér stað síðastliðinn laugar-
dag og var maðurinn að sögn
lögreglunnar í Borgarfirði þar
ásamt tveimur vinum sínum.
Þeir tílkynntu atburðinn lög-
reglu sem kom ásamt sjúkrabíl
á staðinn. Maðurinn sem lést
var á sextugsaldri.
Voru við veiðar
í Elliðaám
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu var kölluð til að Elliðaám um
fjögurleytið í gær. Tilkynning hafði
borist um að óprúttnir aðilar væru
að stunda veiðar í ánni. Þegar lög-
reglan kom á staðinn voru veiði-
mennirnir hins vegar á bak og burt.
Ekki er vitað hvað þeim stóð til en
nokkuð óvanalegt þykir að veiðar
séu stundaðar í leyfisleysi í Elliðaám
í lok nóvember.
/
/
/
ir leikara í myndinni verði íslenskir og
nýleg heimsókn Augusts rennir stoð-
um undir þá fullyrðingu höfundarins.
Á meðan á dvölinni stóð óskaði Aug-
ust sérstaklega eftír því að sjá kvik-
mynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Ung-
ffúin góða og húsið ffá árinu 1999.
Talið er líklegt að hann hafi viljað sjá
hvemig leikarar af mismunandi þjóð-
erni komu út í hlutverkum íslend-
inga.
Lífseigur orðrómur hefur ver-
ið á kreiki um að leikkonan Cate
Blanchett muni fara með með aðal-
hlutverk kvikmyndarinnar en vegna
skipulagsárekstra varð ekkert úr því.
Ljóst er því að ef Billé August hefur
svipaðar fýrirætlanir og Ullman geta
íslendingar átt von á stjömufans til
landsins á næsta ári.
/
/
/
/
/
/
I