Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Ráðherrafær
launaseðla
Ungir hjúkrunarfræðingar eru
ósáttir við laun sín og stefna á að
afhenda Guðlaugi Þór Þórðar-
syni heilbrigðisráðherra launa-
seðla sína á næstunni til að varpa
Ijósi á lág byrjunarlaun hjúkr-
unarfræðinga sem eru um 215
þúsund krónur á mánuði. Eftir
eitt starfsár hækka iaunin um
fimm þúsund krónur. Guðlaug I.
Einar&dóttir hjúkmnarffæðing-
ur segir marga því vinna mikla
yfirvinnu til að geta séð fyrir fjöl-
skyldu og vill að bragarbót verði
gerð þar á.
í K?‘
éi ?i- ■' V J v
(;j ki
Þrjátíu milljóna
jólasöfnun
Rúm 31 milljón króna hefur
safnast í jólasöfnun Hjálparstarfs
kirkjunnar. Nærri þriðjungurinn
safnaðist með gjafabréfum sem
fólk getur ennþá nálgast á vefsíð-
unni gjofsemgefur.is.
Tilgangur söfnunarinnar að
þessu sinni er að bæta aðgang
fólks að hreinu vatni í Malaví,
Mósambík, Úganda og Eþíópíu.
Söfnunarfé hefur þegar verið nýtt
til þess að bora eftir vatni og reisa
safntanka. 1 tilkynningu þakkar
Hjálparstarf kirkjunnar frábærar
móttökur almennings.
Iceland Express
slær met
Frá stofhun lággjaldaflugfé-
lagsins Iceland Express er árið
í fyrra það langbesta í sögu fé-
lagsins. Flugfarþegum félags-
ins fjölgaði um 20 prósent írá
árinu 2006 og áfangastaðir Ice-
land Express hafa heldur aldrei
verið fleiri. Félagið hyggst auka
sætaframboð sitt í ár og bæta
við áfangastöðum, til að mynda
reglulegt áætiunarflug til Varsjár
í Póllandi. „Það er ótrúlegt að
flugfélag sem hefur ekki starfað
nema í tæp fimm ár sé orðið eins
öflugt og raun ber vimi. Þetta
sýnir svo ekki verður um villst að
samkeppni f farþegaflugi er ekki
bara möguleg á okkar markaði,
heldur bráðnauðsynleg," segir
Matthías Imsiand, forstjóri Ice-
land Express.
Leiðrétting
Vitlaust svar birtist undir
nafni og mynd Kristínar Pálsdótt-
ur í dómstól götunnar í síðasta
helgarblaði. Hér er rétta svarið:
„Ég reyki ekki sjálf, en ég hef
þá lífsskoðun að fólk megi gera
það sem það vill, svo framar-
lega sem það skaðar ekki aðra.
Fólk í reykherbergi skaðar ekki
aðra en sjálft sig, en það er þess
val að vera þar, vel vitandi um
skaðsemina. Það er ofstæki og
ómannúðlegt-að banna reykher-
bergi."
Eskja á Eskifirði hefur leigt frá sér 3.300 tonn af kvóta frá því að togari félagsins, Hólma-
tindur, var seldur og vinnslu var hætt. Fjörutíu manns misstu vinnuna á Eskifirði.
Grétar Mar Jónsson segir að í dag sé vart hægt að selja frá sér kvóta vegna hás verðs og
óvissu um framtíð kvótakerfisins.
HÆTTU FISKVINNSLU
0G GRÆDA Á KVÓTfl
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
bladamadur skrifar: sigtrygguní»dv.is
Hraðfrystihúsið Eskja á Eskifirði
hefur leigt frá sér tæplega 3.300
tonn af kvóta frá því að bolfisktogari
félagsins, Hólmatindur SU-1, hætti
veiðum og var seldur til Rússlands.
Leiguverð fyrir þennan kvóta
er tæpar 279 milljónir króna, ef
miðað er við verðið eins og það er í
andránni.
„Þegar maður hefur ekki skip til
þess að veiða fiskinn liggur náttúr-
lega beinast við að leigjaút kvótann,"
segir Þorsteinn Kristjánsson, einn
aðaleigenda Eskju. „Er þetta ekki
bara eins og ef maður ætti nokkrar
íbúðir. Maður myndi ekki láta þær
standa auðar," bætir hann við.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður Afls starfsgreinafélags á
Austfjörðum, segir að lengi hafi ver-
ið vitað að fiskveiðikerfið væri kom-
ið á þær slóðir að hagkvæmara væri
að leigja frá sér kvóta fremur en að
veiða hann sjálfur.
Þetta verður stríð
„Nú er hreinlega sú staða uppi
á teningnum að það er ekkert víst
að þeir geti einu sinni selt þennan
kvóta," segir Grétar Mar Jónsson,
skipstjóri og þingmaður Frjálslynda
flokksins. Hann segir kvótaeigendur
vera komna í klípu vegna hás verðs
og óvissu um framtíð kvótakerfisins.
„Menn urðu varir við það strax í
haust að bankar fóru að halda að sér
höndum þegar kom að því að lána
fyrir kvótakaupum. Það eru líka bara
brjálaðir menn sem kaupa kílóið af
þorskkvóta á 4.200 krónur í dag,"
heldur hann áfram.
Grétar segir að við þetta hafi bæst
álit mannréttindanefndar Saméin-
uðu þjóðanna. „Nú bíður fólk bara
eftir því hvað ríkisstjórnin tekur
til bragðs." Ekki tjói að hundsa álit
nefndarinnar því þá verði bara far-
ið með málið fyrir Mannréttinda-
dómstól. „í dag hefur ríkið 125 daga
til þess að bregðast við áliti nefnd-
arinnar og ég veit um sjómenn sem
æda að hefja róðra 12. júní ef ekk-
ert hefur verið gert. Þetta verður al-
vörustríð," segir Grétar.
Eigendur Eskju Hjónin Björk
Aðalsteinsdóttirog Þorsteinn
Kristjánsson keyptu hlut bræðra
Bjarkar í Eskju á síðasta ári. Faðir
hennar, Alli ríki, byggði upp fyrirtækið
ævinni og gátu ekki gengið inn t
störf í álvinnslu," segir hún.
Síðasta ár var viðburðaríkt hjá
Eskju, sem áður hét Hraðfrystihús
Eskifjarðar. í byrjun árs ákvað Krist-
inn Aðalsteinsson að selja allan
hlut sinn í félaginu og snúa sér
að öðrum störfum. Hjónin Björk
Aðalsteinsdóttir og Þorsteinn Krist-
jánsson keyptu hlutinn og hafa barist
af hörku íýrir félaginu. Það var faðir
Bjarkar, Aðalsteinn Jónsson, jafnan
nefndur Alli ríki, sem byggði upp
Hraðfrystihús Eskiíjarðar frá árinu
1944 og gerði það að mildu veldi.
Hólmatindur Eskja hætti bolfiskvinnslu og
seldi Hólmatind með þeim afleiðingum að 40
misstu vinnuna. Fyrirtækið leigir nú 3.300
tonna kvóta úr byggðarlaginu.
GrétarMar Jónsson Grétarsegir
að erfitt sé að selja kvóta í dag, eina
leiðin sé að leigja hann frá sér. Of
mikil óvissa ríki um framtíð kerfisins.
„Þegar maður hef-
ur ekki skip til þess að
veiða fiskinn liggur
náttúrlega beinast við
að leigja út kvótann"
Kenndu kvótanum um
DV sagði fréttir af því í septem-
berlok að forsvarsmenn Eskju hygð-
ust hætta bolfiskvinnslu og segja
upp fólki. Skömmu seinna hófust
uppsagnir og vinnslu var endanlega
hætt um áramót. Eskja veiðir áfram
og vinnur uppsjávartegundir, en sú
vinnsla skapar mun færri störf.
Stjórnendur félagsins sögðu nið-
urskurð á þorsklcvóta vega þyngst
í ákvörðun sinni og sú ákvörðun
stjórnvalda hefði pánast kippt fótun-
um undan bolfiskvinnslunni. Togari
Eskju, Hólmatindur, var svo seldur
til Rússlands í lok október. Áform
voru uppi um að kaupa minni tog-
ara sem auðveldari væri í relcstri, en
af þeim hefur ekki orðið.
Áfall fyrir byggðarlag
Nærri fjörutíu mapns misstu
vinnuna á Eskifirði. „Þetta var auð-
vitað talsvert áfall fyrir starfsfólkið
og byggðarlagið þegar vinnslunni
var hætt," segir Hjördís Þóra hjá Afli.
„Það má auðvitað segja að Eskfirð-
ingar eigi auðveldar en margir aðr-
ir Austfirðingar með að sækja sér
vinnu í álverið, en þarna voru líka
margir sem áttu stutt eftír af starfs-
Bankarán að fullu upplýst hjá lögreglunni:
Játaði bankarán og situr nú inni
Ásgeir Hrafn Ólafsson, tvítugur
piltur, hefur viðurkennt vopnað rán í
útibúi Glitnis í Lækjargötu í fyrradag.
Þá hefur hann einnig viðurkennt
vopnað rán í verslun Select í Hraun-
bæ í síðustu viku og vopnað rán í
verslun 10-11 síðasta sumar. Þá var
hann vopnaður annars vegar hm'fi og
hins vegar járnstöng í stað öxarinnar.
Jafnframt hefur hann hlotið dóm fyr-
ir lyfjastuld eftir innbrot í apótek.
Ásgeir ruddist inn í Glitni vopn-
aður öxi og hafði á brott með sér
nærri milljón króna í bakpoka sín-
um. Hann var handtekinn rúmum
tveimur tímum síðar eftir snör hand-
töklögreglu. Skýr andlitsmynd náðist
af ræningjanum á eftirlitsmyndavél-
ar bankans og var Ásgeir handtekinn
ásamt félaga sínum í Garðabæ með
ránsfenginn meðferðis. Þá voru aðr-
ir grunaðir vitorðsmenn telcnir til yf-
irheyrslu hjá lögreglu en þeim hefur
verið sleppt.
Ljóst er að Ásgeiri og félaga hans
er annt um útlit sitt því að loknu ráni
tóku þeir félagarnir leigubíl frá gisti-
heimili Hjálpræðishersins, þar sem
þeir leigðu herbergi, vestur á Garða-
torg í Garðabæ. Þar fóru þeir sallaró-
legir í andlitsbað og brúnkumeðferð
án þess að láta nolckuð á því bera að
þeir væru nýbúnir að ræna banka.
f síðasta helgarblaði DV var við-
tal við tvær ungar hetjur, Daníel Ægi
Kristjánsson og Kristin Valgeir fsaks-
son, sem veittu Ásgeiri og félaga eft-
irför þegar þeir rændu Select-versl-
unina í síðustu viku. Þeir hikuðu
elcki við að elta ræningjana sem varð
til þess að þeir slepptu ránsfengn-
um á hlaupunum. Það var alveg því-
líkt skemmtilegt að lenda í þessu og
adrenalínflæðið var alveg í botni,"
sagði Daníel Ægir í samtali
viðDV.
Ásgeir hefur nú hafið
afplánun á fyrri dómi eftir
að hafa viðurkennt brot sín
greiðlega við yfirheyrslur og
félagi hans hefur verið vist-
aður á stofnun. Málið er að
fullu talið upplýst og fer sína
leið í réttarkerfinu.
Uausti@dv.is
OV 1. febrúar Rætt var við
unga pilta sem eltu Ásgeir og
félaga hans uppi þegar þeir rændu
Select í slðustu viku.