Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Eftir aö DV fjallaði um barnaniðinginn Anthony Lee Bellere komst tólf ára stúlka að því að hún var í
samskiptum við hann. Hún hélt sjálf að hún væri að tala við átján ára pilt. Áður en Anthony hóf samskipti
við stúlkuna hafði hann nauðgað tveimur unglingsstúlkum á hrottalegan hátt
Anthony Lee Bellere Var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga
tveimur unglingsstúlkum og særa
blygðunarkennd tólf ára barns.
Þú verður að sætta þig við að ég sé að gera
þér svona því þú ert ástin mín og ég á þig
og ég er virkilega ástfanginn afþér."
Umfjöllun bjargaði Forsíða DV
í nóvember 2006 bjargaði tólf ára
stúlku frá hugsanlegri nauðgun.
í 1
VALUR GRETTISSON i i VJ
blaðamaðursktifar: valurm'dv.is ! U
Tólf ára stúlka hafði ekki hugmynd
um að unglingspilturinn Maggi,
sem hún var í SMS-sambandi
við, væri í raun fertugi barnaníð-
ingurinn Anthony Lee Bellere.
Anthony var í gær dæmdur fyrir
að nauðga tveimur stúlkum, en
þessi sleit samskiptum við hann
eftir að hafa lesið um hann í DV.
Anthony hefur nú verið
dæmdur ífjögurra ára fangelsi fyrir
ógeðfelldar nauðganir á tveimur
unglingsstúlkum og að hafa sært
blygðunarkennd stúlkunnar sem
DV bjargaði. Málið var ekki kært
fyrr en eftir umfjöllun blaðsins.
Þá var Anthony búinn að nauðga
fjórtán ára stúlku og annarri
sextán ára. Tólf ára stúlkan hefði
getað orðið næsta fórnalamb
hans, en hún tilkynnti samskipti
sín við Anthony til námsráðgjafa
í skólanum eftir að hafa lesið
umfjöllunina.
Níðingur myndbirtur
Það var í nóvember árið 2006
sem blaðamaður DV fékk farsíma
Anthonys í hendurnar. í ljós kom
að síminn hýsti myndir af nöktum
unglingsstúlkum aukmynda afkyn-
færum Anthonys. Myndirnar hafði
hann sent ólögráða unglingsstúlk-
um í þeim tilgangi að fá að hitta
þær. Blaðið greindi frá samskiptum
Anthonys við stúlkurnar en hann
laug að þeim að hann væri átján ára
gamall og héti Maggi. Ljóstrað var
upp um Anthony og hann mynd-
birtur á forsíðu blaðsins.
Þá var blaðið einnig með
undir höndum netfang Anthonys
og símanúmer sem hann notaði
til þess að tæla stúlkurnar með
MSN-spjallforritinu. Netfangið
kom upp um Anthony.
Umfjöllun bjargaði
Eftir að grein DV um Anthony
birtist sýndi móðir tólf ára stúlk-
unnar henni greinina. Móðirin
sagði dóttur sinni að gæta sín á
slíkum mönnum. Það sem móð-
irin vissi ekki þá var að dóttir
hennar var þegar í samskiptum
við Anthony.
f dómsorði Héraðsdóms
Reykjavíkur stendur: „Strax eftir
að opinber umfjöllun hófst um
meint kynferðisbrot ákærða
á síðum DV skýrði B [tólf ára
stúlkanj námsráðgjafa í skóla
sínum frá klúru og klámfengnu
tali manns í hennar garð sem
notað hefði sama netfang og
símanúmer og lýst var í DV að
ákærði hefði notað. Var málið þá
strax kært til lögreglu."
Margnauðgað
Önnur unglingsstúlka
slapp ekki jafn vel og tólf ára
stúlkan. f júlí árið 2005 komst
hann í samband við fjórtán ára
stúlku. Aðferð hans var svipuð
og þegar hann reyndi að tæla
tólf ára stúlkuna. Hann sendi
klúr textaskilaboð og myndir af
kynfærum sínum undir nafninu
Magnús sem átti að vera átján
ára gamall piltur. Að lokum tókst
Anthony að sannfæra stúlkuna
um að koma heim til hans. Þar
átti hann eftir að nauðga henni
margsinnis. f dómsorði segir að
í eitt skiptið hafi stúlkunni blætt
mjög illa. Lögreglunni tókst að
sanna athæfið með því að taka
lífsýni úr storknuðu blóði á dýnu
Anthonys.
Ógeðfelld skilaboð
Eftir að Anthony hafði nauðgað
stúlkunni sendi hann henni
textasidlaboð sem lögreglan fékk í
hendumar. Þar stóð: „Þú verður að
sætta þig við að ég sé að gera þér
svona því þú ert ástin mín og ég á þig
og ég er virkilega ástfanginn af þér."
Ari efdr að Anthony nauðgaði
fjórtán ára stúlkunni réðst hann á
aðra unglingsstúlku. Hún var sextán
ára þegar Anthony nauðgaði henni.
Hún kærði atvikið strax.
Anthony var dæmdur í gær í fjög-
urra ára fangelsi fyrir brot sín gagn-
vart stúlkunum þremur. Honum var
gert að greiða þeim átján hundruð
þúsund krónur í miskabætur og all-
an málskostnað.
Örvæntingarfullur faðir í eldsvoða í Þýskalandi:
af efstu hæð
Henti unqbarni sínu
Það var hrein örvænting sem
dreif föður til að henda ungu
barni sínu niður af efstu hæð
íbúðarblokkar sem stóð í ljósum
logum í Ludwigshafen í Þýskalandi
í fyrrakvöld.
Barnið féll fjórar hæðir en var á
endanum gripið af slökkviliðsmanni
sem staddur var fyrir neðan og heils-
ast því að sögn vel. Ekki sluppu allir
jafn vel frá eldinum sem upp kom
í Ludwigshafen í suðvesturhluta
Þýskalands, því níu manns biðu
bana í eldsvoðanum, þar á meðal
fimm börn og ólétt kona.
Ekki er enn komið í ljós hvort
foreldrar barnsins sem kastað var
í örvæntingu niður af efstu hæð
hafi lifað af. Yfir 50 manns bjuggu í
byggingunni, flestir Tyrkir og Þjóð-
verjar, í þessu iðnaðarhverfi bæjar-
ins og voru íbúarnir fluttir á mis-
munandi sjúkrahús í nærliggjandi
bæjum til að tryggja öllum aðstoð.
Fjölskyldur voru aðskildar og
ringulreiðin varð til þess að enn í
dagvissi fólk ekki um afdrif fjöl-
skyldumeðlima sinna.
Að sögn lögreglunnar í Ludwigs-
hafen er talið að kveikt hafi verið í
húsinu af ásettu ráði. Grunur leik-
ur á að nýnasistar hafi þar verið að
verki.
Hér að ofan má sjá myndir af því
þegar faðirinn kastar barninu niður
til björgunaraðila.
Gríðarleg reiði hefur brotist
út meðal tyrkneskra innflytjenda
vegna málsins. Samkvæmt fréttavef
A1 Jazeera í gærkvöldi hafa tyrknesk
stjórnvöld krafist rannsóknar á
brunanum við þýsk yfirvöld.