Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Side 5
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 5
Nærtvöþúsund
konurífiski
Á íslandi stunda tæplega
1.900 konur störf í sjávarútvegi
eða sex af hverjum þúsund. Þetta
kemur fram í nýrri úttekt sem
samgönguráðuneytið hefur látið
gera á störfum kvenna á skipum í
íslenskri útgerð.
Helstu niðurstöður voru þær
að konur eru í miklum minni-
hluta sjómanna en þær ná því
sjaldnast að vera yfir tíu prósent
þeirra. Þar kemur fram að helsta
ástæða þess að konur eru í mikl-
um minnihluta sjómanna er talin
vera fólgin í menningarbundn-
um þáttum, það er skiptingu
vinnunnar í karla- og kvennastörf
og takmörkuðum vilja fólks til að
haga sér í ósamræmi við ímynd
karlmennsku og kvenleika.
Svindlaði sér40
sinnum í gegn
Karlmaður sem ók 40 sinnum
í gegnum Hvalfjarðargöng án
þess að greiða gangagjald varð
fyrsti maðurinn til að vera ákærð-
ur fyrir slíkt brot samkvæmt
hegningarlögum, fram að þessu
hefur aðeins reynt á ákvæði um-
ferðarlaga.
Maðurinn er ákærður fyrir
fjársvik og til vara nytjastuld. Á
vef lögreglunnar segir að beðið
sé niðurstöðu dómsins og fróð-
legt verði að sjá hana, ekki síst í
ljósi þess að brotin séu allt of al-
geng og oft um nokkrar fjárhæðir
að ræða.
Snióflóð féll í
Súðavíkurhlíð
Minniháttar snjóflóð féll
í Súðavíkurhlíð í fyrrinótt.
Engan sakaði. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni
á fsafirði féll flóðið töluvert
ffá byggðinni og því skapað-
ist ekki veruleg hætta vegna
þess. Hh'ðinni var lokað í kjöl-
far flóðsins en hún var opnuð
aftur í gærmorgun.
Víkingamunirá
heimsminjaskrá
Undirbúningur að raðtilnefn-
ingu menningarminja frá tímum
víkinga á heimsminjaskrá UN-
ESCO er haflnn. Um er að ræða
samstarfsverkefni margra þjóða
en fsland verður ábyrgðaraðili
þess. Frumkvæði að tilnefning-
unni átti þýska sambandsríkið og
frumkvæði að raðtilnefningunni
átti Slésvík-Holstein. Þorgerður
Katrfn Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra sótti blaðamanna-
fund í Kiel í vikunni af þessu
tilefni.
Stefnt er að því að tilefn-
ingarnar verði afhentar innan
þriggja ára.
Dópaður með
óskráðan riffil
36 ára karlmaður var í
Héraðsdómi Suðurlands í
fyrradag dæmdur til greiðslu
400 þúsund króna sektar.
Hann var ákærður fyrir
ofsaakstur, vörslu fíkniefna
og riffils sem hann hafði ekki
leyfi fyrir og var óskráður.
Hann var stöðvaður í sumar á
Suðurlandsvegi við Ingólfsfjall
í Ölfusi eftir að hafa mælst
á 143 kílómetra hraða undir
áhrifum amfetamíns. í
kjölfarið gerði lögregla húsleit
á heimili mannsins, þar sem
smáræði af fíkniefnum og
Glennfield-riffill ásamt 50
skotum voru gerð upptæk.
Stúlkur klöguðu í eiginkonu manns sem sendi þeim klámmyndir:
Styður eiginmann með sýniþörf
Héraðsdómur Norðurlands eystra
dæmdi í gærmorgun karlmann í 40
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa sent þremur stúlkum klámmynd-
ir af sjálfum sér. Maðurinn hefur leit-
að sér sálfræðiaðstoðar vegna sýni-
þarfar sinnar og til þess hefur hann
haft stuðning frá eiginkonu sinni.
Lögreglunni á Akureyri barst kæra
vegna málsins 14. nóvember síðast-
liðinn. Hann hafði verið í sambandi
við þijár stúlkur sem voru 16 og 17
ára. Lögreglan lagði hald á tölvu einn-
ar stúlkunnar og við skoðun reynd-
ust þar vera fimm kyrrmyndir og 18
hreyfimyndir af manninum. Hann var
handtekinn 20. nóvember og í fram-
haldi af því var gerð húsleit á heimih
Frá Akureyri Maðurinn var fundinn sekur um að brjóta gegn þremur stúlkum.
hans. Stúlkumar sögðu manninum um úr tölvunni áður en lögregla lagði
að þær væru fimmtán ára. Þær höfðu hald á þau. Við yfirheyrslur játaði
haft samband við eiginkonu manns- hann að hafa sent myndirnar og var
ins og eyddi hann því öllum gögnun- fullur iðrunar.
Mitt er þitt
"Mitt svæði"er þitt einkasvæði hjá LÍN.
Allir sem hafa aðgang að íslenskum heimabanka eða þjónustusíðu RSK geta eftir
innskráningu þar komist með öruggum hætti inn á"Mitt svæði"hjá LÍN.
"Mitt svæði"er fyrir námsmenn, greiðendur námslána og ábyrgðarmenn þeirra.
Samtals má ætla að um 92.000 manns eigi erindi inn á einkasvæði sitt hjá LÍN.
Nýjasta þjónustan er fyrir greiðendur námslána. Á"Mínu svæði"geta þeir nú afþakkað
greiðsluseðla og þar með fengið seðilgjöld sín felld niður að fullu.
LÍN hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér upplýsingar og möguleikana á"Mínu svæði"hjá sjóðnum.
Nánari umfjöllun er á www.lin.is.
LÍN
Lánasjóöur íslenskra námsmanna Borgartúni 21 Reykjavik www.lin.is lin@lin.is
\
MITT SVÆÐI