Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Derek Conway, þingmaður breska íhaldsflokksins, er
flæktur x eitt stærsta spillingarmál siðari ára í breskum
stjórnmálum. Dagblaðið Daily Mail kom upp um stórfellt
Qármálamisferli þingmannsins sem jós tugum milljóna í
syni sína og eiginkonu. Á sama tíma sagði hann kjördæm-
isritara sínum að hann gæti ekki borgað henni full laun.
Derek Conway í
rigningunni Það rignir
eldi og brennisteini á
Derek Conway þessa
dagana.
DÆLDIOPIN-
BERU FÉ í
KONUNA
OGSYNIN
2
Derek Conway, þingmaður breska
íhaldsflokksins, varð uppvís að stór-
felldri spillingu eftir að breska dag-
blaðið Daily Mail komst á snoðir
um að hann hefði greitt sonum sín-
um tugi milljóna fyrir störf sem virð-
ast ekki hafa verið unnin á árun-
um 2001-2008. Eiginkona Conways
starfar sem einkaritari hans og naut
góðs af bónusörlæti eiginmannsins
líkt og synirnir. Þá lækkaði Conway
laun annars ritara í starfsliði sínu um
helming á sama tíma og hann réð
besta vin sonar síns til starfa í enn
eitt draugastarfið.
Almenningur og þingheimur í
Bretlandi eru hvumsa yfir stærðar-
gráðu óhreinindanna í pokahorni
Conways og Scotland Yard er kom-
ið í málið. Derek Conway hefur ver-
ið rekinn úr fhaldsflokknum af leið-
toga flokksins, David Cameron. Tvö
ár eru enn eftir af kjörtímabilinu og
mun Conway því sitja í skammar-
króknum út þann tíma sem óháður
þingmaður með rúmar 15 milljónir
króna í laun.
192 milljónir króna
Upphaflega kom í ljós að Conway
hafði greitt eiginkonu sinni og tveim-
ur sonum sínum tæpar 48 milljónir
króna fyrir lítil sem engin störf fyr-
ir hann sjálfan síðan árið 2001 þeg-
ar dagblaðið Daily Mail fékk gögn í
hendurnar og fór að rannsaka mis-
ferli þingmannsins. Við það gaf Con-
way út yfirlýsingu um að hann myndi
ekki sækjast eftir þingsæti í næstu
kosningum eftir tvö ár til að hans eig-
ið spillingarmál eyðilegði ekki mögu-
leika fhaldsflokksins. „Þótt ég hafi
upphaflega ekki smtt David Camer-
on [leiðtoga íhaldsflokksins] trúi ég
því að hann hafi sýnt þá hæfileika
og þann karakter sem til þarf sem
forsætisráðherra. Því vil ég ekki að
mín persónulegu mál dragi athygli
frá því sem raunverulega skiptir máli
í stjórnmálum þessa lands," sagði
Conway er hann tilkynnti ákvörðun
sína fýrir fjölmiðlum og flokksfélög-
um.
Daily Maii greindi frá því á dög-
unum að undanfarin sex ár hafi
skattborgarar Bretlands blætt rúm-
um 192 milljónum króna fyrir Con-
way og fjölskyldu hans, en fýrir þessu
segjast Daily Mail-menn hafa örugg-
ar heimildir og skjöl undir höndum.
Þau skjöl sýni að eiginkona hans
Colette, sem vinnur þó löglega sem
ritari hans, og synir hans tveir hafi
fengið tæpar 48 milljónir króna í
laun og bónusa síðan 2001.
Synirnir í draugastörfum
Synir Conway, hinn 25 ára
Henry, og Freddie, sem er 22 ára,
sinntu að sögn Daily Mail einhvers
konar þingrannsóknarstörfum, en
svo virðist sem eitthvað hafi verið
lítið um vinnuframlag frá drengj-
unum. Pólitískir andstæðingar
Conways krefjast þess að lögregl-
an rannsaki hvernig standi á því
að drengirnir tveir hafi fengið rúm-
ar 10 milljónir króna í laun úr al-
mannafé fýrir litla sem enga vinnu.
Hinn 22 ára Freddie Conway
fékk greiðslur upp á 6,4 milljón-
ir króna fyrir rannsóknarstörf sín
fyrir föður sinn, en upp komst að
hann var engu að síður skráður
í fullt nám í háskólanum í Néw-
castle. Upp komst um drenginn á
Facebook-netsamfélaginu þar sem
hann upplýsti að hann væri nem-
andi við skólann.
Henry Conway þáði fyrir störf
sín tæpa 4,1 milljón króna og var
sömuleiðis háskólanemi hluta
tímabilsins.
Derek Conway var sjálfur ekki á
neinum lúsarlaunum frá hinu op-
inbera því hann kostaði skattborg-
ara rúmar 148 milljónir í laun og út-
gjaldakostnað frá því árið 2001.
David Cameron, leiðtogi Ihalds-
flokksins, hefur rekið Conway úr
flokknum og mun hann ekki geta
boðið sig fram að nýju undir for-
merkjum hans. Conway mun að
auki sitja sem óháður það sem eft-
ir lifir kjörtímabilsins eða 2 ár. Samt
sem áður mun Conway þiggja rúm-
ar 15,3 milljónir króna í laun á þeim
tveimur árum sem hann situr í
skammarkróknum og er með öllu
valdalaus.
Lækkaði laun ritarans
Málum var þó ekki lokið þarna.
Daily Mail hélt áfram að grafast fyr-
ir um hans mál og komst að því að
hann skar nú líka niður í fjárútíátum
embættis síns.
Hinn smánaði þingmaður skar
niður laun kjördæmisritara síns um
helming og gaf þær ástæður að hart
væri í ári og lítið til af peningum. Rit-
arinn, Lisa Rayson, fékk þau skila-
boð frá Conway að hann sæi sér að-
eins fært að greiða henni helming
launa hennar, eða rúma milljón, í
árslaun. Þetta gerði Conway á með-
an hann lét fé óspart úr hendi rakna
til sona sinna og jafnvel vina þeirra
í formi yfirvinnugreiðslna og bón-
usa. Nokkrum vikum áður en hann
tilkynnti Rayson þessa launalækkun
hafði hann verðlaunað háskólanem-
ann son sinn Freddie Conway með
rúmum 220 þúsund krónum í bón-
usgreiðslur fyrir sama sem ekkert.
Þremur mánuðum eftir að Con-
way lækkaði laun ritara síns veitti
hann nánum vini eldri sonar síns,
Henrys, starf við rannsóknarstörf
ÞINGMAÐURINN
OG FJÖLSKYLDAN
2008: 37 milljónir
Freddie Conway,
22 ára sonurog
rannsóknarmað-
ur. Laun og
bónusgreiðslur:
6 milljónir
Henry Conway,
25 ára sonur og
rannsóknarmaður.
Laun og
bónusgreiðslur:
4 milljónir
sem hinn 23 ára Michel Pratte þáði
fyrir tæpar 1,5 milljónir á ári.
Einstæð móðir á bótum
Þess ber að geta að fröken Ra-
yson, sem samþykkti að taka á sig
launalækkun, er einstæð 34 ára
þriggja barna móðir sem nú þarf að
þiggja bætur til að framfleyta sér og
börnum sínum. Ogmeð DerekCon-
way á útleið úr stjórnmálum eftir
kjörtímabilið stepdur hún frammi
fyrir því að verða atvinnulaus í of-
análag.
Spillingunni virðist fá takmörk
sett hjá Conway-fjölskyldunni og
bruðl þingmannsins með almannafé
hefur vakið mikið fár og reiði meðal
bresks almennings.
Gögn sem Daily Mail hefur und-
ir höndum sýna að Lisa Rayson fékk
fýrir 35 klukkustunda vinnuviku á
bilinu 1,7 -2 milljónir króna í árslaun
á árunum 2002 til 2006, þangað til
laun hennar voru lækkuð í maí á síð-
asta ári sem nam einni milljón.
Á sama tíma var Henry Conway
með tæpar 1,3 milljónir króna fýr-
ir 18 klukkustunda vinnuviku auk
umtalsverðra bónus- og yfirvinnu-
greiðslna.
Freddie Conway þáði tæpar 1,5
milljónir króna í árslaun auk fj ögurra
bónusgreiðslna á þriggja ára tímabili
sem námu á bilinu 166 til 640 þúsund
krónum í hvert skipti. Freddie hefur
verið áberandi í partíhöldum í Lond-
on undanfarin misseri og hélt nýlega
heljarinnar teiti sem bar þá viðeig-
andi yfirskrift: „Fuck off, I'm Rich." I
ljósi uppljóstrana Daily Mail undan-
farið þykir málið líta ansi illa út, ekki
bara fyrir Freddie, heldur ekki síður
fyrir föður hans Derek.
Þetta fengu synirnir í sinn hlut
þótt þeir væru skráðir í háskóla á
tímabilinu og engin ummerki hafa
fundist um raunverulegt vinnuffam-
lag þeirra fyrir föður sinn.
Besti vinur Henry Conway, Mich-
ael Pratte, byrjaði að vinna hjá hinu
opinbera í september á síðasta ári
þar sem hann fékk tæpar 1,5 milljónir
króna fyrir rúmlega 17 tíma vinnuviku
samhliða framhaldsnámi sínu við
London School of Economics.
Mál Dereks Conway er komið í
hendur Scotland Yard sem íhugar nú
hvort lögreglurannsókn eigi að fara
fram á framferði hans í embætti.
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
bladamadur skrifar: mikael@dv.is
Birkiaska
UmboÖs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
FOSFOSER
MEMORY Valiö fæóubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Gott til
endurvinnslu