Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Síða 9
DV Neytendur
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 9
Þorláksh.
Bæjarlind
&NEYTENDUR
I I DSMiVUSVI lU) 5)5 OKTA\ OISILOLLI
olis Selfossi verö*i litra 132,70 KR. verðálitra 135,KO KR
verðálítra 134,40 KR.
verö á Iftra 136,30 KR.
Ezmaa
veröálítra 131,1 OKR. verðálítra 133,80 KR.
N1 Lækjargötu verðalitra 134,70 KR.
neytendur@dv.is Umsjón: Ásdís Björg Jóhannesdóttir
^ rellsmúla verðalitra 133,10 KR. verðalitra 135,80 KR.
s Borgamesi verðalitra 131,1 0 KR. veröalitra 133,80 KR.
LASTIÐ
i f tilefni öskudagsins auglýsti
I leikfangaversluninToys"R"Us
fjölbreytilega grímubúninga fyrir
börn. Ung kona hafði samband
við blaðið sem lagði leið sína
þangað ásamt syni sínum sem
hafði valið sér búning í auglýs-
ingabæklingnum. Þeim til mik-
illar mæðu var hins vegar ekkert
til af þeim búningum sem
kynntir höfðu verið vegna þess
að sending þeirra misfórst.
DV kannaði verð á GSM-þjónustu þeirra fjögurra aðila sem eru á markaði:
plfcK III ;W BPIk ttk ||pllt ISíf! HH EpfÉfc J® „Heilar 28 krónur kostar að
'V hringja frá Símanum í Nova og
er það dýrasta mögulega leid
■ ■ mammr ■ ■ mmFm semhægteraðfara."
SÍMANUM í N0VA
LOFIÐ
i Afgreiðslukonurnar í undirfata-
I versluninni Systurfá lofiðfyrir
alúðlega og persónulega
þjónustu. Verslunin var opnuð
fyrirskömmu og viðskiptavinur
sem keypti sér nærföt þar lýsti yfir
mikilli ánægju með að nú megi fá
alvöru gamaldags og glæsileg
nærföt hér á landi. Punkturinn yfir
i-ið er síðan handgerðu nærfötin
sem einnig fást þar.
BALDUR GUÐMUNDSSON
bladcimaður skrifar balcluri-pdv.is
Neytenda-
samtökinfá
óvæntan styrk
Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra hefur ákveðið
að veita Neytendasamtökunum
1,5 milljónir króna í viðbótar-
styrk úr ríkissjóði. Þetta fé bætist
ofan á það sem kveðið er á um I
þjónustusamningi Neytenda-
samtakanna og rlkisins um að
samtökin sjái um leiðbeininga-
og kvörtunarþjónustu.
Styrkurinn kom starfsmönnum
Neytendasamtakanna í opna
skjöldu þar sem ekki hafði verið
farið fram á viðbótarstyrk. Hjá
Neytendasamtökunum fengust
þær upplýsingar að þetta væri í
fyrsta skipti sem samtökin
fengju óumbeðinn styrk á
þennan hátt.
Beint
ásjóinn
„Besta og eina sparnaðarráðgjöf-
in sem ég kann er að fara á
sjóinn," segir Helgi Seljan,
fréttamaður (Kastljósi Ríkissjón-
varpsins.„Á sjónum vinnur
maðurfyrir laununum sínum og
hefur nákvæmlega engin
tækifæri til þess að láta þau gufa
upp eins og maður gerir í landi,"
bætir hann við.
Helgi segir að enn einn kosturinn
við sjómennskuna sé að löngu
og góðu fríi megi einfaldlega
eyða erlendis, þar sem verðlag sé
hagstæðara en gengur og gerist
hér heima á íslandi.
Heilar 28 krónur kostar að hringja úr
Símanum í Nova og er það dýrasta
mögulega leið sem hægt er að fara
þegar hringt er á milli GSM-kerfa.
Gildir þá einu hvort viðskiptavinur
Símans er í áskrift eða með frelsi.
Viðskiptavinur Vodafone (með
frelsi) greiðir 27,30 krónur ef hann
hringir í GSM í Nova, en þeir sem
eru í áskrift greiða 26,10 krónur.
Ódýrast er að hringja innan kerf-
is hjá Vodafone; 10,90 krónur ef
miðað er við frelsisáskrift. 11 krón-
ur kostar að hringja innan kerfis hjá
Símanum, 15 krónur hjá Nova og
14,90 krónur hjá SKO.
Nova kærir
Ekki eru allir aðilar sammála
um ástæður þess að svo dýrt sé að
hringja í Nova ífá Vodafone og Sím-
anum. Forsvarsmenn Símans segja
að Nova hafi ákveðið að krefja við-
skiptavini Símans um 63 prósent
hærra verð þegar þeir hringja í
viðskiptavini Nova en sem nemur
því gjaldi sem viðskiptavinir Nova
greiða þegar þeir hringja í viðskipta-
vini Símans. Þá hafi Síminn reynt að
semja við forsvarsmenn Nova um
samtengiverð á milli farsímaneta
fýrirtækjanna en þær viðræður hafi
verið árangurslausar.
Nova hefur lagt fram kæru til
Samkeppniseftirlitsins á hendur
Símanum hf. fýrir ólögmæta mis-
notkun á markaðsráðandi stöðu.
Telur Nova að með því að hækka
verð á símtölum til eins samkeppn-
isaðila brjóti Síminn samkeppnis-
lög. „Síminn telur sér augljóslega
ógnað með innkomu Nova á mark-
að og beitir markaðsráðandi stöðu
sinni á ólögmætan hátt til að hindra
nýja samkeppni," segir Liv Berg-
þórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova.
Mishátt heildsöluverð
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að
Nova krefjist hærri heildsölugjalda
en Síminn og Vodafone. „Við höf-
um undanfarin ár unnið að því að
lækka heildsölukostnað. Vodafone
fékk nokkurra ára aðlögun áður en
við lækkuðum verð á heildsöluþátt-
um farsímaverðs hjá þeim. Nova er
nýr aðili á markaði og hefur því farið
fram á að fá að njóta aðlögunar áður
en því verður gert að lækka verðið,"
segir hann. Verðið sem Nóva kref-
ur önnur félög um þegar hringt er
í þeirra farsímanet er 12,50 krónur.
Hjá Vodafone er verðið 8,64 krónur
en hjá Símanum 7,85 krónur.
Hrafnkell segir að þrátt fýrir að
nokkurra króna munur sé á heild-
söluverði, þurfi hann ekki að útskýra
hvers vegna dýrara sé að hringja í
Nova en í önnur símafyrirtæki. „Það
er þeim í sjálfvald sett hvernig þau
verðleggja þjónustuna. Þegar hringt
GSM IGSM
SÍMINN (FRELSI);
11 kr. ÍSImann
23 kr. I Vodafone og SKO
28 kr. I Nova
- SMS 10 krónur
- MMS 29 krónur
VODAFONE (FRELSI):
10,90 kr. í Vodafone og SKO
20.30 kr. í Símann
27.30 kr. í Nova
-SMS 10,70 krónur
- MMS 29 krónur
NOVA (FRELSI):
15 kr. í Nova
15 kr. (Símann, Vodafone og SKO
- SMS lOkrónur
- MMS 15 krónur
SKO
14,90 kr. í SKO
14,90 kr. í Sfmann, Vodafone og Nova
- SMS 4,90 krónur
- MMS 14,90 krónur
þeir ekki eftir ne'ma um 90 aurum á
hverri mínútu en þegar hringt er
utan kerfisins er hagnaðurinn mun
meiri. Það er ekki sjálfgefið að mín-
útuverð hækki í smásölu þrátt fyrir
að heildsöluverðið sé mishátt milli
símafýrirtækja," segir Hrafnkell.
SMS ódýrast hjá SKO
Einfaldara er að bera saman
verðskrá SMS-skilaboða. Hjá Sím-
anum og Nova kosta SMS-skilaboð
lOkrónur en 10,70 krónurhjáVoda-
fone. SMS-skilaboð eru langódýrust
hjá SKO, 4,90 krónur.
MMS-myndskilaboð kosta 29
krónur hjá Vodafone og Símanum.
Hjá SKO kostar slík þjónusta 14,90
krónur en 15 krónur kostar að senda
MMS-myndskilaboð hjá Nova.
Ýmsar sparnaðarleiðir
Þess ber að geta að notendur
geta valið ýmsar sparnaðarleiðir
og tilboð hjá fjarskiptafýrirtækj-
unum tíl að draga úr kostnaði
vegna símtala, SMS-skilaboða og
myndskilaboða. Til dæmis er frítt
að hringja innan kerfis hjá Nova ef
viðkomandi er í áskrift, auk þess
sem 500 SMS-skilaboð eru inni-
falin í áskrift hjá Nova. Hjá Sím-
anum er meðal annars hægt að
velja fjölskylduáskrift og vin með
GSM eða heimasíma og draga
þannig úr kostnaði. Hjá Vodafone
er hægt að velja Ogl og vin með
GSM-síma og draga þannig úr
kostnaði. Þá er hægt er að hringja
án endurgjalds í 60 mínútur á dag
í eitt eða tvö vinanúmer og senda
30 SMS á dag án endurgjalds í
áskriftarleiðunum GSM 1 vinur
og 2 vinir.
#1 mM
»11
Hjá SKO er hægt er að hringja
frítt í fimm SKO-vini í 2 klukku-
stundir á dag.
Fleiri símafyrirtæki væntanleg
Á fyrri hluta þessa árs er auk-
innar samkeppni að vænta á fjar-
skiptamarkaði því tvö fyrirtæki
fengu í júlí á síðasta ári úthlutað
tíðni fýrir fjarskiptaþjónustu. Þeim
ber, samningum samkvæmt, að
hefja starfsemi innan árs frá þeim
tíma sem tíðninni er úthlutað. Fyr-
irtækin heita IMC fsland ehf. og
Amitelo AG. Það lítur því út fyr-
ir harðari samkeppni á fjarskipta-
markaði og er það af hinu góða fýr-
ir neytendur.