Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2008
Feröir DV
Óskar Guðjónsson stundar háskólanám í Malasíu í þrjátíu og fimm gráðu hita:
LITLA ÍSLAND í MALASÍU
Hvað ert þú að gera í Malasíu?
„Ég er að klára B.A. gráðu í margmiðl-
unarhönnun í skóla sem heitir Limkok-
wing - University of Creative Technol-
ogy. Ég heyrði af þessum skóla fyrir
tveimur árum og gældi við þessa hug-
mynd þar til ég ákvað bara að slá til.
Vala, kærastan mín, fann mjög góðan
skóla rétt hjá mínum og það ýtti aðeins
á eftir okkur að skella okkur bara. Hún
er að taka Master í Management Psy-
chology. Skólinn hennar er breskur og
heitir The University of Nottingham.
Það virðast margir skólar vera með
útibú hérna írá mismunandi löndum
en jafngildar gráður, þar sem flestir af
þeim fljúga kennarana inn frá aðal-
bækistöðvum skólanna."
Af hverju valdir þú
Kúala Lúmpúr?
„Þar sem ég og kærastan mín fórum
í sitt hvom skólann, ákváðum við að
reyna að vera mitt á milli skólanna
okkar til að auðvelda samgöngur.
Úthverfl Kúala Lúmpúr, Puchong, varð
fyrir valinu. Það er um það bil þrjá-
tíu mínútna akstur ffá miðbæ Kúala
Lúmpúr. íslensk vinkona okkar bjó í
mjög fínni blokk hérna svo við ákváð-
um bara að taka íbúð á sama stað.
Einnig kom annað par frá Islandi með
okkur og þau fengu sér íbúð héma líka.
Svo við emm búin að koma okkur upp
litíu íslandi hérna. Furðulegt hvernig
það virðist alltcif gerast þegar maður er
erlendis."
Er dýrt að vera þarna?
„Hér er alls ekki dýrt að vera ef mað-
ur miðar við Vesturlandaborgir. Út að
borða hérna á fínum stöðum kostar á
bilinu hundrað og tuttugu tíl tvö hundr-
uð og fjörutíu krónur fyrir stóra máltið
með drykk. fbúðin sem við erum með
á leigu er þriggja herbergja með tveim-
ur baðherbergjum, auk stórrar stofu
og tvennum svölum. Hún kostar okkur
sautján þúsund á mánuði. Það hlýtur
að teljast mjög ódýrt miðað við ísland.
Ef maður vill halda uppi hefðbundnu
íslensku námsmannalífi héma og fara
út að skemmta sér við og við verður
reikningurinn hins vegar hár. Þjóðar-
trú Malasíu er nefnilega íslam og því
er bannað að drekka hér. Þó er hægt að
kaupa bjór hér og þar en verðið á hon-
um er rétt undir verðinu í Vínbúðinni
á fslandi."
Hvað skoða ferðamenn helst
þegar þeir koma til Malasíu?
„Hér getur fólk séð allt ffá glæsilegum
tvíburaturnum til mMlar fátæktar í
skógum landsins. Endalausar parad-
ísareyjar þar sem fólk getur leigt sér
einkastrendur fyrir j afnmikið og súper-
dós kostar í Hagkaupum. Þessar eyj-
ar em ennþá með strákofana en ekki
keðjuhótel eins og gerist oft á svona
stöðum. Þó er verið að koma upp stór-
um og fínum hótelum núna sums
staðar, en fólk sækist þó meira í að fá
„Survivor"-reynsluna - allavega ég.“
Hverju mælir þú með að skoða?
„Þar sem ég hef bara verið hérna í einn
mánuð hef ég ekki náð að skoða mik-
ið. Hef hins vegar farið nokkuð oft til
Kúala Lúmpúr og mæli hiklaust með
því að fólk fari þangað, en það verður
samt þreytt eftir nokkra daga. Héðan
er síðan stutt að fara út um alla Suður-
Asíu og ódýrt að ferðast. Hægt er að fá
flugmiða á fimmtán hundruð krónur
til flestra staða sem em með um það
bil tveggja tíma flugi. Þeirra á með-
al em Indónesía, Víemam, Kambód-
ía, Taíland og ótal fleiri staðir. Það er á
planinu hjá okkur að kíkja á sem flesta
af þeim. Svo erum við að fara einmitt
næsm helgi á malasíska eyju sem heitir
Pulau Tioman (www.tioman.com.my)
þar sem við ætlum að fagna kínversku
áramótunum."
Hvað hefur þér komið mest á
óvart við borgina?
„Kúala Lúmpúr er miklu minni en ég
hélt. Það er í rauninni bara miðbærinn
Flottur í hitanum Það
eru þrjátíu og fimm
gráður í Malasíu allt árið
um kring. Óskar kennir
hitanum um þegar hann
segir fólk í Malasíu vera
áberandi latt.
þar sem öll háhýsin eru, svo þegar frá
þeim er komið, taka við gömul niður-
m'dd hús sem er samt mjög skemmti-
legt að skoða. Hins vegar er fátæktin
mikil hjá sumum og oft erfitt að horfa
upp á greyið fólkið sem hefur ekkert að
gera eða fara."
En við menninguna?
„Hér er mikill seinagangur og leti, flest-
ir sem búa héma virðast ekki nenna
miklu. Ég ætía að skella sökinni á hit-
ann, enda er um þrjátíu og fimm gráðu
hiti hérna allt árið.
Flestir héma virðast festa sig mikið
við fólk sem kemur frá Vesturlöndun-
um, enda erum við álitín eiga mjög
mikla peninga og þess vegna líklegri
til að gefa þá. Engum er treystandi fýr-
ir neinu, allir reyna að svindla á öllum
og á endanum er þetta allt saman einn
stór svindlhringur sem enginn græðir
á. Maður passar sig bara á að láta ekld
svindla of mikið á sér og þetta lærist
með tímanum."
Úskar og Vala halda úti bloggsíðu þar
sem hægt að fýlgjast með þeim í máli
og myndum á: www.vala-oskar.blog-
spot.com
BÚSETT í ÚTLÖNDUM
DV hafði sámband viö þrjá íslendinga sem búa nu tímabundið erlendis og bað þá um aö segja
stuttlega frá upplifun sinni. F.inn er í Japan, annar á Spáni og sá þriöji í Malasíu.
• Tviburaturnarmr i Kuala
| Lúmpúr Þessirturnar voru
’ eitt sinn þeir hæstu (heimi.
Sunna Diðriksdóttir hóf japönskunám í
Tókýó síðastliðið haust. Það sem hefur
komið henni mest á óvart er hversu Jap-
anir snertast lítið.
ÓTRÚLEGUR
MANNFJÖLDI
Hress og kátur i Barcelona
Óttar M. Norðfjörð dvelur nú í
Barcelona og skrifar bók. Hann
segist afar sáttur við borgina sem
lumar á ýmsum földum perlum.
Óttar M. Norðfjörð rihöfundur er nú búsettur í Barcelona þar
sem hann vinnur að næstu skáldsögu.
ÓLÍKAR BORGIR í
HVERJU HVERFI
Hvað ert þú að gera íTókýó?
„Ég er í Tókýó að læra japönsku við
Tokai University."
Af hverju valdir þú þessa borg?
„Ég hef alltaf verið mikið borgar-
barn og Tókýó því tilvalin enda með
stærstu borgum í heiminum."
Er dýrt að vera þarna?
„Bæði og, ef þú vilt lifa hátt, borða
á fi'num veitíngahúsum og kaupa
merkjavörur getur þú eytt gríðarleg-
um upphæðum. En í Tókýó er líka
fullt af góðum og skemmtilegum veit-
ingastöðum og flottum búðum, sér-
staklega „second hand"-verslunum."
Hvað skoða ferðamenn helst
þegar þeir koma til Tókýó?
„Ferðamenn skoða helst Disney
World og Tokyo Tower sem er eftir-
mynd af Eiffelturninum. Myiazaki-
safnið er líka mjög vinsælt en það er
safn sem sýnir verk og listaverk eft-
ir Miyazake - föður „anime"-teikni-
myndanna."
Hverju mælir þú með að skoða?
„Ég mæli með því að fara í Yoyogi-
garðinn að sjá japönsku rokkabillí-
dansarana og fólkið sem klæðir sig
upp í alls kyns föt. Einnig mæli ég
með því að fara upp í Tokyo Tower að
kvöldlagi og'sjá útsýnið yfir Tókýó."
Japönskunemi íTókýó Sunna segist
vera mikið borgarbarn og því hafi henni
fundistTókýó tilvalin enda ein stærsta
borg í heimi.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart við borgina?
„Ég vissi nú hversu margir bjuggu
þarna áður en ég fór en gerði mér
ekki grein fyrir því hversu rosalega
mikill fjöldi þetta er. Einnig kom mér
á óvart hversu snyrtilegt heimilis-
lausa fólkið er."
En hvað kom þér mest á óvart
við menninguna?
„Það sem kom mér mest á óvart er
hvað japanskt fólk snertir hvert ann-
að lítið. Ég kyssti til dæmis japanska
vinkonu mína afmæliskossi þegar
hún átti afmæli og hún fór alveg í
kerfi!"
Hvað ert þú að gera í Barceiona?
„Vinna að skáldsögu sem kemur út um
næstujól."
Af hverju þessi borg?
„Vegna þess að kærastan mín er í
meistaranámi héma."
Hvernig er verðlagið í borginni?
„Það er dýrt að leigja og kaupa íbúð,
en verð á bjór og mat er með skárra
móti."
Hvað skoða ferðamenn helst
þegar þeir koma til Barcelona?
„Sagrada Familia, Römbluna, Guell-
garðinn, dómkirkjuna, Eið Smára."
Veist þú um einhverja falda
perlu?
„Það eru svo sem nóg af þeim, tíl
dæmis öll „hin" hverfin í borginni sem
túristar fara ekki að sjá, eins og Raval
og Poble Sec, bæði virkilega falleg, og
svo Sant Antom-bókamarkaðurinn á
sunnudögum. Mæli líka með Bom og
Graciu."
Hvað hefur komið þér mest á
óvart við borgina?
„Hvað hverfi hennar eru ólík, eiginlega
ólíkar borgir í hverju hverfi fyrir sig."
En hvað hefur komið þér mest á
óvart við menninguna?
„Hvað Katalónar eru rosalega ólíkir
öðrum Spánverjum."