Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2008
Ferðir DV
Hrafnhildur Lilja Georgdóttir hafði gengið með þann draum lengi maganum að fara í bakpokaferðalag. Einn
daginn sagði hún upp vinnunni, fór að skipuleggja og lét drauminn rætast.
ÞRIGGJA MANAÐA
BAKPOKAFERÐALAG
í lok september árið 2006
lagði Hrafnhildur af stað í mikla
ævintýraferð. 1. október hitti Hrafn-
hildur svo ferðafélaga sinn, hana
Helenu í Amsterdam. „Þar byrjuðu
ævintýri okkar strax því við fórum út
að borða og enduðum á að hlaupa
í burtu frá „latino"-þjónunum
okkar, báðar með rós í hendi,
skellihlæjandi í rigningunni," segir
Hrafnhildur þegar hún byrjar að
rifja upp ævintýrið. Frá Amsterdam
héldu þær stöllur til Buenos Aires í
Argentínu.
Örlagaríkt spænskunám
„Ég fór til Granada á Spáni til
þess að læra spænsku árið 2001.
Var þar í 3 mánuði og náði nokkuð
góðum tökum á tungumálinu, var
allavega farin að tjá mig um allt á
milli himins og jarðar. Síðan þá
hef ég reglulega fundið fyrir þeirri
löngun að ferðast með bakpoka.
Eftir sumarfrí til Mexíkó árið 2005
var ég enn ákveðnaðri að ég þyrfti
að láta drauminn rætast og fara
í bakpokaferðalag." Einn daginn
ákvað Hrafnhildur að segja upp
vinnunni, þó með þriggja mánaða
fyrirvara ogfór að skipuleggja ferða-
lagið.
„Ég var svo einstaklega heppin
að vinkona mín spurði mig hvort
hún mætti koma með, eftir að hafa
heyrt mig tala um ferðina fram og
til baka. Það var eins og skrifað
í stjörnurnar, hún var hinn full-
komni ferðafélagi."
Góðir ferðafélagar
Ferðafélagarnir Hrafnhildur og
Helena hittust eins og fyrr segir í
Amsterdam. Þaðan flugu þær til
Washington og svo áfram til Buenos
Aires í Argentínu. „Við ferðuðumst
síðan upp álfuna í rútuferðum,
ferjum og flugvélum. Ferðin hélt
áfram til Úrúgvæ, þaðan til Brasilíu,
Paragvæ, Bólivíu, Perú, Kólumbíu,
Panama, Kúbu, Jamaíku og loks
Mexíkó sem var loka áfangastaður.
19. desember lentu ferðalangarnir
svo á íslandinu góða. „Við
millilentum í London en þar skildust
leiðir þar sem ég fór frá Heathrow
yfir til Stansted og heim en Helena
fór aftur til Amsterdam og þaðan til
Keflavíkur. Ég var komin heim um
klukkutíma á undan henni og fékk
Salteyðimörkin Slegið á
létta strengi i Salteyði-
mörkinni í Bólivíu
ég leyfi til að bíða við landganginn
og hljóp upp á móti henni þegar hún
kom, svo mikið var ég strax farin að
sakna hennar."
Vikulegir fundir
Ferð sem þessi þarfnast mikils
undirbúnings að sögn Hrafnhildar.
„Við eyddum miklum tíma í undir-
búning. Við höfðum vikulega
fundi sem snerust eingöngu um
ferðina og hvað þyrfti að gera ffam
að næsta fundi. Þetta voru þeir
skemmtilegustu fundir sem ég hef
upplifað. Við settum niður óskalista
með löndunum sem okkur langaði
til að heimsækja, stöðum sem við
vildum sjá og síðast en ekki síst,
„fun stuff to-do"-lista með öllu því
sem okkur langaði að prufa." Á lista
draumórastúlknanna var að finna
eitt og annað eins og brimbretti,
köfun, sæþotur, flúðasigling, fallhlíf-
astökk, læra salsa og fara á stóran
fótboltaleik. „Það eina sem við
náðum ekki að gera var að fara í
fallhlífastökk og á hestbak, en við
fórum í alvöruhestvagnaferð um
gömlu Havana á Kúbu í staðinn, "
segir Hrafnhildur.
Það er bara eitthvað við Ríó
Eftir þriggja mánaða ferðalag
leikur blaðamanni forvimi á að vita
hvort hægt sé að gera upp á milli
viðkomustaðanna. „Það eru tveir
staðir sem koma stráx upp í hugann
og ég get hreinlega ekki valið á milli,"
segir Hrafnhildur hugsi. „Havana
á Kúbu og Rio de Janero. í Havana
er svo friðsælt og fallegt, fólkið svo
glaðlynt, nægjusamt og orkan samt
svo ffumstæð. „Slow down, you're
in Cuba," sagði maður við okkur
þar sem við flýttum okkur niður
verslunargöm í miðri gömlu Havana.
Hvert sem maður kom var einhver
dansandi, syngjandi eða spilandi á
hljóðfæri. Ríó er borg öfganna. Það er
satt sem sagan segir að konumar séu
með sílikon- brjóstogkarlamirkunna
allir að dansa. Langríkasta hverfið er
INTERNE1
íoauoiui
ríxiCOiif/c'iv
alveg ofan í fátækasta hverfinu þar
sem eiturlyfjabarónarnir ráða ríkjum
en það er bara eitthvað við Ríó!
Ekki ákveða heimkomuna
Að lokum nefnir Hrafnhildur
hvað ber að hafa huga áður en lagt
er af stað í svona ferð. „í fýrsta lagi
skiptir máli að vera búinn að safna
peningum og fara án þess að ákveða
hvenær maður kemur tilbaka.
Ástæðan fyrir því er sú að ef maður
kynnist fólki, sem veit af einhverju
skemmtilegu sem maður ákveður að
prófa er ferðin þar með gjörbreytt ffá
því sem planað var. Svona óvæntar
ákvarðanir hafa orðið af stærstu ævin-
týmm ferðarinnar. Eins er mjög lítið
mál að stoppa á einum stað í smátíma
og vinna fýrir gistingu og jafnvel fæði.
Dæmi em um að fólk hafi stoppað í
einhverja mánuði á sama staðnum,"
segir Hrafnhildur sem jafnffamt seg-
ir mikilvægast að dæma ekki aðstæð-
ur fyrirfram, treysta eigin innsæi og
njóta ferðarinnar. „Hún er allt of
stutt, alveg sama hversu löng hún
er."
Á SLÓÐIR HOBBITA OG DVERGA
í Nýja-Sjálandi er hægt að ferðast um slóðir Hringadróttinssögu:
Kvikmyndirnar um Hringadrótt-
inssögu sem gerðar vom eftir sam-
nefndum bókum Tolkiens skörtuðu
stórbrotinni náttúm og einstöku
landslagi sem vakti víðast hvar at-
hygli. Myndirnar vom teknar upp í
heimalandi leikstjórans Peters Jack-
son í Nýja-Sjálandi og hefur landið
notið töluverðrar hylli ferðamanna
síðan þá. Ferðaskrifstofur víðs veg-
ar um heiminn hafa tekið upp á því
að að selja ferðir á slóðir Hringa-
dróttinssögu. Ef lagt yrði í slíka ferð
frá Islandi þyrfti að ferðast yfir hálf-
an hnöttinn. Ferðast þyrfti fýrst til
Evrópu en bæði London og París eru
aðgengilegar stórborgir frá íslandi
og bjóða upp á flugferðir til Nýja-
Sjálands. Þaðan þyrfti að fljúga með
Thai Air en það er eitt af fáum flug-
félögum sém fljúga til Nýja-Sjálands.
Millilent yrði í Bangkok og verið
þar yfir eina nótt en svo yrði haldið
áfram til Auckland en það er næsts-
tærsta borg Nýja-Sjálands. Ferða-
lagið á milli íslands og Nýja-Sjá-
lands tekur næstum því sólarhring í
flugi. Á Nýja-Sjálandi eru svo margir
staðir sem bjóða upp á útsýnisferð-
ir og göngutúra um náttúru Hringa-
dróttinssögu. Ferðast þyrfti suður
eftir landinu frá Auckland og þá em
staðir á borð við Matamata, Tongar-
iro National Park, Wellington sem er
höfuðborg Nýja-Sjálands, Geraldine,
Christchurch, Queentown og Wan-
aka sem allir bjóða upp á ferðir um
mismunandi landsvæðT sem krist-
ölluðust í kvikmyndunum. Ferð til
Nýja-Sjálands væri kostnaðarsöm en
ódýrt verðlag er á Nýja-Sjálandi og
er einn nýsjálenskur dalur um 54 ís-
lenskar krónur. Ferð frá meginlandi
Evrópu til Nýja-Sjálands myndi kosta
um 100 þúsund krónur.