Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Sport PV
Boro naestum öruggt mefi
úrvalsdeildarsæti
Jermaine Aliadiere, sóknarmaður úr
Middlesbrough, er fullur sjálfstrausts og
telur að liöið sé næstum öruggt um að
bjarga sérfrá falli. Engu að síðurer
félagið einungis fimm stigum fyrir ofan
fallsæti. Aliediere telur liðið vera að
bæta sig og
vendipunkturinn
hafi komið þegar
Middlesbrough
vann Arsenal á
heimavelli í
desember.
„Næsti leikurer
okkur afar
mikilvægur. Ef
viðvinnum hann
og við verðum að gera það, náum við
að færa okkur enn frekar frá liðunum
sem eru fyrir neðan okkur. Við erum (
erfiðri stöðu en ef við náum sigri tel ég
okkur vera búna að bjarga okkur.
Margir spáðu okkur falli fyrir tímabilið
en við höfum afsannað þessar hrakspár
að undanförnu," segir Aliediere.
Friedel skrifar undir samning
Brad Friedel skrifaði undirnýjan
samning við Blackburn Rovers í gær og
verður hjá liðinu til 2010. Bandaríkja-
maðurinn hefði orðið samningslaus (
lok leiktímabilsins en nú er Ijóst að hinn
36áraFriedel
verður áfram hjá
félaginu.
„Blackburn er
heimilið mitt.
Þettaermitt
félag og það er
sérstakurandi
hérna. Þv( var
auðveld
ákvörðun að
ákveða að vera hérna áfram," segir
Friedel sem ekki hefur misst af
nokkrum leik það sem af er leiktíðar hjá
Blackburn. (nóvember siðastliðinn sló
hann metTims Sherwood yfirflesta
leiki spilaða (ensku úrvalsdeildinni fyrir
Blackburn.
O'Neill hefur áhyggjur af
hópnum
Martin O'Neill, framkvæmdastjóri
Aston Villa, hefur áhyggjur af því að ekki
sé næg dýpt í hópi liðsins til þess að ná
að gera almennilega atlögu að fjórða
sætinu (ensku
úrvalsdeildinni.
Þótt meiðsli
Agbonlahorséu
ekki alvarleg
þarf O'Neill að
horfast í augu
viðað liðiðer
fámennt.„Við
misstum Gabby
Agbonlahor (
hálfleik gegn Fulham og náðum aldrei
að koma okkur inn (leikinn eftir það.
Kannski erum við ekki nægilega sterkir
á vissum sviðum leiksins og þurfum að
huga að þv( að bæta í hópinn í sumar"
segir O'Neill.
Kuyt efast um saeti sitt í EM-
hópnum
Dirk Kuyt, framherji hjá Liverpool,
viðurkennir að hann efist um það að
vera valinn (hóp Hollendinga fyrir EM í
■ knattspyrnu
næstkomandi
sumar. Kuyt var
ekki valinn í
síðasta
leikmannahóp
MarcosVan
Basten
landsliðþjálfara
og hann var
vonsvikinn yfir
þeirri niðurstöðu.„Ég þarf t(ma til þess
að komast yfir þessi vonbrigði sem
fýrst. Ég hef spilað (39 af síðustu 42
leikjum mfns lands og ég verö að bæta
mig til þess að komast (hópinn," segir
Kuyt. Hann hefur skoraö sjö mörk það
semafer
leiktíðar (ensku
knattspyrnunni.
Það þykir Marco
Van Basten ekki
nægilega gott
fyrirhollenska
landsliðið enda
með marga
frábæra
framherja til
kallaða. Ber þar fyrst að nefna Ruud van
Nistelrooy hjá Real Madrid sem og
Klaas-Jan Huntelaar sem þykir einn
efnilegasti sóknarmaður heimsins en
hann spilarmeð Ajax.
V
H lynur Bæringsson, Snæfelli, var kosinn besti leikmaður umferða 9-15 í Iceland Express-
deild karla en valið var tilkynnt í gær. Þjálfari Skallagríms, Ken Webb, var kosinn besti
þjálfarinn og Kristinn Óskarsson besti dómarinn.
TÓMAS ÞOR ÞÖRÐARSON
skrifar frá Þrándheimi: tomas&dv.ls
Yfir veglegum hádegisverði í gær
tilkynnti körfuknattleikssamband
Islands úrvalslið umferða 9-15 í
Iceland Express-deild karla. f úrvals-
liðinu voru þrír erlendir leikmenn.
Þeir Adama Darboe, Grindavík, og
Brenton Birmingham, Njarðvík ásamt
Darrel Flake úr Skallagrími. Hregg-
viður Magnússon úr IR var einnig
í liðinu og Hlynur Bæringsson úr
Snæfelli en Hlynur var einnig valinn
besti leikmaður umferðanna.
Besti þjálfarinn var valinn Ken
Webb úr Skallagrími. Skallagrímur
vann fimm leiki og tapaði tveimur
á þessu tímabili en var í miklum
meiðslavandræðum og var samróma
álit þeirra sem kusu að Ken skyldi
hljóta verðlaunin. Besti dómarinn
var valinn Kristinn Óskarsson frá
Keflavík.
Farinn að leika stærra
hlutverk í sókninni
Það kom engum á óvart þegar
Hlynur Bæringsson var kosinn besti
leikmaður umferðanna. Hlynur er
búinn að leika stórkostíega síðustu
vikur og að mörgum talinn besti
leikmaður deildarinnar. Hann var
hógværðin uppmáluð að vanda
þegar DV talaði við hann eftir viður-
kenninguna í gær. „Ég er búinn að
vera allt í lagi síðustu vikur. Ég var að
glíma við meiðsli fyrir áramót og náði
mér ekki alveg á strik þá. Aðallega
er þetta samt að liðið hefur verið
að skána mikið en ég er með mikið
sjálfstraust núna og er í fi'nu formi.
Liðinu er byrjað að ganga betur og
við komumst í bikarúrslitaleikinn en
með því kemur smá athygli. Ég hef
tekið meira hlutverk í sókninni eins
og þjálfarinn bað mig um og er farinn
að skjóta meira. Ætli þetta séu ekki
einhverjar afleiðingar af því.
Snæfell hefur unnið tvo stórsigra á
Njarðvík eftir áramót. „Ef við skoðum
liðin, fyrst okkur og svo Njarðvík, þá
ætti Njarðvík ekkert að henta okkur
vel til að spila við hvað varðar menn-
ina sem eru í liðunum. Það hefur þó
gert það í vetur en við höfum verið í
basli með önnur lið eins og BCR. Þetta
tak á hinum og þessum er samt of-
metið. Við spiluðum einfaldlega vel í
þessum leikjum gegn Njarðvík.
Nú er að halda áfram að spila vel
og við þurfum við að skila bikarnum
í hús. Við þurfum að byggja okkur svo
upp svo við verðum samkeppnishæf-
ir þegar úrslitakeppnin byrjar. Það er
kannski ekki gott að toppa núna en ég
vil að þegar úrslitakeppnin byrjar að
við getum sett raunhæft markmið að
hirða titilinn. Það er enginn dauða-
dómur að vera ekki með heimavallar-
réttindi í úrslitakeppninni þó það sé
augljóslega betra. Ég treysti okkur
fullkomlega til að vinna hvaða lið sem
erenefviðspilumeinsogvið gerðum
fyrir áramót getum við einnig tapað
fyrir hverjum sem er," sagði Hlynur.
Getum unniðalla
Hinn einkar geðþekki þjálfari
Skallagríms, Ken Webb, var kos-
inn besti þjálfarinn. Hann var mjög
ánægður með viðurkenninguna og
segir síðustu vikur hafa byggt mik-
inn karakter fyrir sitt lið. „Það er alltaf
gaman að fá viðurkenningar fyrir sín
störf en leikmennimir eiga nú mest-
an heiður skilinn. Þetta em búnar að
vera erfiðar vikur með meiðslin sem
við lentum í. Aðrir leikmenn þurftu
því að stíga upp sem og þeir gerðu og
við kláruðum þá leiki sem við þurft-
um að klára.
í gegnum tíðina hafa lið sem ég
tek við alltaf verið betri eftir jól á
fyrsta ári. Nú em menn að ná því
almennilega sem ég er að leggja upp
í varnarleiknum og svo í sókninni
höfum við frábæran leikmann í Darrel
Flake sem við getum byggt í kringum.
Nú fömm við líka að fá leikmenn til
baka úr meiðslum og þá hafa hinir
sem hafa spilað síðustu vikur öðlast
ómetanlega reynslu. Þessar vikur
hafa byggt upp mikinn karakter hjá
okkur sem við þurfum að nota á
næstu vikum því við eigum erfiða leiki
framundan.
Ég er á því að við getum unnið öll
lið hvaða dag sem er. Til þess þurfum
við samt að verða aðeins stöðugri í
okkar leik. Við verðum lflca að komast
yfir tapið í bikarnum. Það var erfitt að
kyngja því en ég tek hatt minn ofan
fyrir Fjölni, þeir vom frábærir í þeim
leik. Það er mikilvægt fyrir okkur að
stjóma okkar eigin örlögum og halda
áfram að bæta okkur. Við þurfum
að bæta okkar spilamennsku með
hverjum leik og sjá hvar við stöndum
þegar úrslitakeppnin byrjarþannig við
getum sett okkur endanlegt markmið
þá," sagði Webb við DV í gær.
BESTIR KenWebbog
HlynurBæringsson.
Fjöldi fólks fagnaði Superbowl-meisturunum New York Giants við heimkomuna:
• •
RISAFOGNUÐUR
Það var mikill fögnuður í New
York þegar hetjur borgarinnar, New
York Giants, keyrðu á opinni rútu
um Broadway-hverfið í borginni.
Tilefnið að sjálfsögðu ein óvæntustu
úrslit í NFL-sögunni þegar Giants
lagði NewEngland Patriots, 17-14, í
Superbowl á sunnudaginn. Patriots
hafði ekki tapað leik allt tímabilið
og hafði áður en það tapaði sigrað í
átján leikjum í röð. Giants sem var
hvergi spáð sigri eyðilagði því leit
New England að hinni fullkomnu
leiktíð.
Það var við hæfi að fremstir í
flokki færu ungi leikstjórnandinn Eli
Manning og varnarjaxlinn Michael
Strahan. Hinn hlédrægi Eli lét hvern
manninn á fætur öðrum éta allt það
slæma ofan í sig sem hafði verið
sagt um hann fyrir úrslitakeppnina.
f úrslitakeppninni blómstraði hann
W*
Gleði, gleði Risarnir frá NewYork
fengu höfðinglegar móttökur.
og var enginn erftirbátur stóra
bróður síns, Peytons Manning, sem
vann Superbowl með Indianapolis
Colts árið áður. Strahan, 36 ára
reynslubolti, hefur leitt vörn New
York í gegnum súrt og sætt, þó
aðallega sætt undanfarnar vikur.
Ekki hefur verið farin svona rútu-
ferð um bæinn síðan hafnaboltalið-
ið New York Yankees varð meistari
árið 2000. Fólk í gluggum borgarinn-
ar lét rigna yfir skrúðgönguna papp-
írsdóti í bláum og hvítum lit en talið
er að um fimmtíu tonn af rusli verði
eftir á götunum þegar svona veislu-
höldum er lokið.
New York-búum finnst ekkert
leiðinlegt að vera ofan á í baráttu
við lið frá Boston en mikill rígur er
á milli borganna. Fólkið á götunum
öskraði 18-1 í gríð og erg og minnti
þannig granna sína á að þeir hefðu
eyðilagt fyrir þeim tfmabilið. Þegar
amerískir fjölmiðlar spurðu fólk í
áhorfendaskaranum af hverju það
væri svona gaman að stríða Boston-
búum var svarið: „Það er einfalt,
þeir eru svo rosalega hrokafullir og
því er gott að hafa eyðilagt allt fyrir
þeim." tomas@dv.is