Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Side 17
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 17
BENEDIKT BÖAS HINRIKSSON
bladamadur skrifar: benni@dv.is
Manchester United er eitt þekktasta
lið í heiminum. Fyrir 50 árum
þegar liðið var að koma heim úr
Evrópukeppni klekktist flugvélinni,
sem flaug með liðið heim, á í
Miinchen með þeim afleiðingum að
8 leikmenn liðsins létust.
Manchester var á leið heim
eftir leik við Rauðu stjörnuna sem
endaði 3-3. Flugið til Englands
tafðist um klukkustund vegna þess
að einn leikmaður liðsins, Johnny
Berry, hafði týnt vegabréfinu. Frá
Júgóslavíu átti að stoppa í Munchen
til að taka bensín.
Eftir áfyllinguna átti að halda af
stað. Tvisvar sinnum var reynt að
taka á loft en hætt við. I þriðja sinn
var allt gefið í botn en vélin náði
ekki nægum hraða eða hæð og féll
til jarðar. Rann á hús sem stóð tómt
náíægt flugvellinum og eldur braust
út.
Sjö leikmenn liðsins létust
samstundis og Duncan Edwards fór
sömu leið skömmu síðar. Johnny
Berry og Jackie Blanchflower
meiddust það alvarlega að' þeir
spiluðu aldrei aftur fótbolta.
Stjórinn, Matt Busby, meiddist
einnig alvarlega og dvaldist á
sjúkrahúsi í tvo mánuði. Margir
héldu að Manchester United myndi
ekki ná sér eftir slysið en Jimmy
Murphy þjálfari tók við og stýrði
liðinu til loka tímabilsins. Liðið
vann aðeins einn leik eftir slysið og
það endaði í níunda sæti. Það komst
hins vegar í bikarúrslit en beið lægri
hlut fyrir Bolton.
Sir Alex Ferguson, núverandi
stjóri liðsins, sagði að leikmenn liðs-
ins hefðu orðið ákaflega hissa þegar
þeim var sýnt myndbrot frá slysinu.
„Við sýndum þeim myndina og
það mátti heyra saumnál detta inni
í vídeóherberginu. Það var ótrúlegt
andrúmsloftið sem myndaðist. Yfir-
leitt eru brandarar og ýmis skot látin
flakka en ekki þarna."
Næsti leikur Manchester United
er gegn grönnunum í Manchester
City. Liðið mun leika í eftirlíkingu
við búninginn sem liðið lék í 1958
í þeim leik, með engar merkingar
styrktaraðila og númerin verða frá
1-11. Engin nöfn verða heldur á
bakinu.
Enska landsliðið leikur í lcvöld
við Sviss á Wembley og verða
leikmenn landsliðsins með svart
armband. Fyrir leik munu síðan
birtast myndir af þeim sem létust í
slysinu. Mínútuþögn á að vera íyrir
leik en margir óttast að hún verði
ekki virt. Leikurinn verður í beinni
útsendingu á Sýn.
Geoff Bent
Roger Byrne
Eddie Colman
Duncan Edwards
Mark Jones
David Pegg
TommyTaylor
Liam'Billy'Whelan
SAGAN KYNNT Sir Alex Ferguson
sýndi leikmönnum sínum myndband
af sögu Manchester-liðsins.
50 ár eru liðin frá einum
svartasta degi í sögu
Manchester United.
Þegar Miinchen-slysið
átti sér stað voru 44
farþegar um borð. 23
létust, þar af 8 leikmenn
liðsins.
FIFA er við það að samþykkja umdeild lög sem koma mörgum liðum í koll:
6 + 5-REGLAN NÁNAST KOMIN Á
FIFA hittist á fundi í gær og var
margt um manninn. Þar var rædd 5
+ 6-reglan sem Sepp Blatter, forseti
FIFA, vill koma á laggirnar. Auk
reglunnar voru gervigras, marklínu-
tæknin frá Hawk eye og dómaramál
rædd á fúndinum.
5 + 6-reglan er þannig að lið
verður að stilla upp að minnsta
kosti sex leikmönnum sem eiga
möguleika á því að komast í landslið
viðkomandi lands. Þannig myndi
Arsenal nánast lognast út af enda
ekki mikið um enska leikmenn í
því liði. „Undanfarið ár hafa margir
erlendir leikmenn gert innrás í
mörg stórlið og þau þannig tapað
einkennum sínum. Sum lið stilla
stundum upp byrjunarliði með
engan heimamann í liðinu. Ungir
strákar sem alast upp hjá þessum
liðum missa fljótt áhugann því þeir
sjá að þeir fá ekki sénsinn," sagði
Blatter og bætti við að hann hefði
einnig áhyggjur af peningunum
sem eru í fótboltanum í dag.
„Bilið á milli rflcra og fátækra
liða er alltaf að aukast og það hef-
ur myndast gjá á milli sumra liða.
Sumar deildir eru þannig að tvö til
þrjú lið keppa um titilinn og hin eru
í raun að berjast um fallið."
Blatter mun leggja þetta fyrir
FIFA-þingið sem fer fram í Ástralíu
29. maí næstkomandi.
Franz Beckenbauer styður for-
seta FIFA. „Við lifum í heimi sem er
alltaf að minnka. Hins vegar er það
ekki rétt fyrir framtíð fótboltans. Það
er hægt að vera sigursæll með heim-
alninga og peningar færa liði ekki
alltaf árangur og titla."
Sumir hafa hins vegar lýst yfir
áhyggjum af þessari þróun. Þannig
hefur Arsene Wenger verið mótfall-
inn tillögunni og sagt að hann velji
í lið eftir getu, ekki vegabréfi. Mörg
lið í dag stilla upp fleiri údending-
um en heimalningum og einskorð-
ast það ekki bara við England.
benni@dv.is
FYRIRLIÐAR ENSKA
LANDSLIÐSINS
Fabio Capello stýrir enska landsliðinu
í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið mætir
Sviss á Wembley. Steven Gerrard
verður væntanlega fyrirliði (leiknum í
fjarveru Johns Terry en (talinn á enn
eftir að ákveða hvaða leikmaður
verður hans fyrirliði númer 1. Að vera
fyrirliði enska landsliðsins þykir mikill
heiður en ekki allir hafa staðið sig. The
Sun setti saman topp 10 lista yfir þá
leikmenn sem hafa staðið sig best
sem fýrirliðar enska landsliðsins.
10. PAULINCE
Varð fyrsti
þeldökki leikmað-
urinn sem varð
fyrirliði Englands.
Varfyrirliði aðeins
í sjö leiki en naut
mikillar virðingar.
FáirEnglendingar
geta gleymt því
þegar blóðið fossaði úr hausnum á
honum gegn ítaliu í undankeppni EIM
1998 þar sem Englendingar tryggðu
sérfarseðilinn inn í keppnina.
9. KEVIN KEEGAN
Helsta stjarna Englands en það kom
mjög á óvart þegar hann var gerður
að fyrirliða árið 1980. Leiddi enska
landsliðið út á völl 31 sinni og var
aldrei hræddur við að segja sfna
skoðun.
8.GARY í
LINEKER
Tókvið armband- Bl
inu f kringum HM I
1990 og leiddi
liðið f EM árið W
1992. Þótti mikill
herramaðurog
framkoma hans
við fjölmiðlamenn góð
7. JOHNNY HAYNES
Pele sagði eitt sinn að Haynes væri
maðurinn sem gæfi bestu sending-
arnar. Hann var fyrirliði Englands 22
sinnum, meðal annars á HM 1962 þar
sem England tapaði fýrir Brasilíu.
6.TONY ADAMS
Mikill leiðtogi og
gafsig allan í
leikinn.Tókvið
sem fyrirliði árið
1994 og leiddi
liðið á EM 1996
en skilaði
armbandinu
þegar hann
viðurkenndi að hann væri alki.
5. DAVID BECKHAM
Breytti fyrirliðastöðunni og hefur
verið fyrirliði í 58 leikjum af þeim 99
sem hann hefur spilað. Frábær
leiðtogi hvort sem mönnum líkar
betur eða verr.
4. BRYAN ROBSO
KallaðurCaptain
Marvel, það segir
meira en mörg
orð.Varfýrirliði
65 sinnum, meðal
annars á þremur
stórmótum. EM
88 ogHM 1986
og 1990. Meiðsli
komu f veg fyrir
að hann spilaði
fleiri landsleiki.
3. BILLY WRIGHT
Var fyrirliði 90 sinnum, sem er met
enn þann dag í dag. Var fyrsti
leikmaðurinn sem lék 100 lelki fýrir
England og fyrsti maðurinn til að vera
fyrirliði þrjú stórmót í röð. HM 1950-
1958. Fékk aldrei spjald allan sinn
feril.
2.ALAN
SHEARER
Stórbrotinn
framherji sem tók
við armbandinu
afTony Adams.
Leiddi England til
HM1998 og EM
árið 2000. Skoraði
mikið sem
leikmaður Englands og lagði sig alltaf
allan fram.
1. BOBBY MOORE
Eini fyrirliði Englands sem hefur unnið
eitthvað. Lyfti Jules Rimet-styttunni
frægu á Wembley 1966 þegar
Englendingar unnu HM. Frábær
leiðtogi sem spilaði með West Ham.