Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2008
Ferðir DV
Ylfa Ýr Steinsdóttir skellti sér í ferðalag til Suður-
Afríku ásamt kærasta sínum þar sem þau meðal
annars fóru í safaríferðir á fílsbaki og leigðu sér
bíl og keyrðu um svæðið. Hún segir að mest hafi
sér komið á óvart hversu ríkjandi aðskilnaðar-
stefnan er enn í Jóhannesarborg.
Ylfa í safaríferð
I þjóðgarðinum
Kapama í Suður-Afríku.
„Við flugum til Jóhannesarborgar
í janúar þegar það var sumar þar
en hávetur hér. Frænka mín býr þar
og mig hafði bara alltaf langað til
að heimsækja hana," segir Ylfa Ýr
Steinsdóttir sem hélt í tveggja vikna
ferðalag til Suður-Afríku ásamt
kærastanum sínum í byrjun síðasta
árs. „Við flugum fyrst til Parísar og
vorum þar í nokkra daga og flugum
svo þaðan til Jóhannesarborgar.
Við fórum ekkert í gegnum neina
ferðaskrifstofu eða neitt slíkt og það
var í rauninni alls ekkert svo dýrt
að fljúga þangað. Við borguðum
fimmtíu og flmm þúsund krónur fyrir
flugið til Jóhannesarborgar og svo er
náttúrulega alveg rosalega ódýrt að
lifa þarna."
Tvær safaríferðir á dag
Ylfa og Bjarni flugu sem áður
segir til Jóhannesarborgar en
ferðuðust þó mikið um svæðið í
kring. „Við vorum búin að ákveða að
fara í safaríferðalag í einum stærsta
og flottasta þjóðgarðinum þarna
og gista þar í nokkra daga en okkur
var ráðlagt að fara í einhvern annan
garð því það væri svo mikil malaría
sem geisaði í þessum garði," segir
Ylfa en þau Bjarni fóru því í staðinn
í einkarekinn þjóðgarð sem nefnist
Kapama þar sem þau gistu í þrjár
nætur.
„Kapama-garðurinn er alveg
risastór og af því að hann er í einka-
eigu kaupa eigendurnir í rauninni
bara dýrin í garðinn og svo lifa þau
villt þar. Við gistum á stórglæsilegu
hóteli með sundlaug og rosalega
flottri svefnaðstöðu og fórum alltaf í
tvær safaríferðir á dag."
Á fætur klukkan fimm
á morgnana
Til að gera safaríferðirnar sem
mest spennandi og til að sjá sem
flest þurftu ferðalangarnir að
vakna klukkan fimm á hverjum
morgni og leggja af stað í jeppaferð
um skóginn. „Við fórum alltaf í
fyrri ferðina klukkan fimm um
morguninn og þá seinni klukkan
fimm um daginn. Þetta var gert til
að fara ekki á heitasta tíma dags-
ins því þá eru dýrin flest í felum
einhversstaðar í skugganum. Það
var mjög fagmannlegur fararstjóri
í öllum jeppunum og annar sem
sá um að leita uppi dýrin því þetta
er svo stórt svæði að dýrin eru oft í
felum og það þarf oft að hafa mikið
fyrir því að finna þau," segir Ylfa.
í návígi við fílinn
En það er að sjálfsögðu ýmislegt
sem þarf að huga vel að þegar maður
keyrir um skóginn í opnum jeppa
innan um villt dýr. „Við máttum
alls ekki hreyfa okkur neitt í bílnum
því meðan við sitjum alveg kyrr og
erum ekkert að standa mikið upp sjá
dýrin okkur bar sem eina stóra heiíd
og halda að við séum bara eitthvað
stórt dýr þarna á veginum
Ylfa segir farastjórann hafa sagt
þeim sögur af fólki sem ekki hefði
fylgt réttum fyrirmælum og þar af
leiðandi hefði safaríferðin þeirra ekki
endað sem skyldi. „Það kemur alveg
fyrir að dýrunum hefur brugðið og
hafa ráðist á farþegana í bílnum
en þá eru fílarnir einna verstir. Þeir
eru svo risastórir að þeir trampa
bara ofan á bílunum. En annars eru
buffalóamir víst hættulegustu dýrin í
skóginum því þeir vara mann ekkert