Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Qupperneq 21
DV FerSir
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 21
*
Á munaðarleysingjahælinu.
Stjórnvöld hirða alla peninga sem
safnað er fyrir uppbyggingu á
munaðarleysingjahælinu.
við áður en þeir leggja til atlögu,
öíugt við fílana."
En varð Ylfa aldrei neitt skelkuð á
ferðalaginu? „Nei, nei, í rauninni ekki.
Við reyndar vorum í svona opnum
safaríjeppum og í eitt skiptið kom ffll
alveg upp að andlitinu á kærastanum
mínum, það var frekar skondið.
Það var reyndar búið að vara okkur
mikið við því áður en við færum út
að glæpatíðnin væri svo rosalega há
þama en við urðum svo sem ekki vör
við neitt slíkt."
Ferðast um á fílsbaki
Eitt af því sem Ylfa segir að standi
upp úr úr í safaríferðinni er það þegar
hún sat á fílsbaki og ferðaðist þannig
innan um villt dýrin í skóginum. „Þá
fór safaríferðin í rauninni bara ffam á
fflsbakinu í staðinn fyrir á jeppanum.
Það var mjög skemmtilegt því þá fékk
maður betra tækifæri til að sjá dýr-
in því ffllinn rölti auðvitað bara um í
skóginum eins og ekkert væri og hin
dýrin voru auðvitað ekkert að kippa
sér neitt upp við það."
Ylfa þurfti þó ekki sjálf að stýra ffln-
um um skóginn. „Nei, nei, það var
leiðsögumaður sem sá um að stýra og
ég þurfti ekkert annað að gera en að
sitja bara fýrir aftan hann og fylgjast
með umhverfinu. Fflamir eru nú ekk-
ert mikið að æsa sig neitt og fara yfir-
leitt mjög hægt en þeir geta hinsvegar
tekið á sprettinn ef því er að skipta."
Aðskilnaðarstefnan ríkjandi
Ylfa segir að það hafi komið sér
mikið á óvart hversu mikill munur
virðist ríkja á milli svartra og hvítra
í suður-Afríku en eftir safaríferðina
leigðu þau Bjarni sér bíl og óku um
svæðið í grennd við Jóhannesar-
borg. „Mér fannst merkilega skrít-
ið að sjá það að það eru til dæmis
sérstakar verslunarmiðstöðvar fyr-
ir hvíta fólkið og sérverslunarmið-
stöðvar fyrir svarta fólkið og svo
sáum við bara eina sem virtist vera
frekar blönduð."
Þar sem aðskilnaðarstefnan
er enn svo ríkjandi er stéttaskipt-
ingin einnig mikil milli svartra og
hvítra. „Eina smndina var maður
staddur í algjörri fátækt þar sem
fólkið býr í einhverjum hræjum úr
gömlum gámum þar sem var ekk-
ert rennandi vatn. Fimm mínút-
um síðar var maður svo kominn
yfir í hverfi hvíta ríka fólksins þar
sem húsin voru bara eins og hallir.
Mér fannst líka mjög sjokkerandi
að fara í heimsókn á munaðarleys-
ingjahæli en öll börnin sem þar
voru höfðu misst foreldra sína úr
alnæmi. Svo er spillingin í landinu
svo mikil að alltaf þegar búið var
að safna upp einhverjum smá pen-
ingum til að byggja vegg á munað-
arleysingjahælinu komu stjórnvöld
og heimtuðu hluta af peningunum
eða brutu niður vegginn."
Taíland næst á dagskrá
Eins og gefur að skflja var ferðin til
Suður-Afríku alveg heilmikið ævintýri
en Ylfa og Bjarni em þó hvergi hætt og
er á stefnunni að skella sér tfl Taílands í
vor. „Ég er að fara þangað í útskriftarferð
með skólanum mínum," segir Ylfa en
hún er að ljúka námi í viðsldptafræði við
Háskólann í Reykjavík. „Það er aldrei að
vita nema maður skelli sér bara á bak á
asískum ffl þar og beri hann saman við
afrískafflinn!"
kristaQdyJs
Sviðamessa
dags. 23/02 2008
Arshátíðir
Heill dagur á Strandarvelli.
Gisting í tveggja manna herbergi.
4 rétta hátíðarmatseðill.
Árshátíðir.
Brúðkaupsveislur.
Afmælisveislur.
Fermingaveislur.
Gerum tilboð í veislur og veitingar.
Aðalréttir
Svið, reykt og ný; sviðasulta, sviðalappir og
aðrir réttir.
Gisting í tveggja manna herbergi.
Dinnertónlist og dansleikur.
3 rétta kvöldverður.
Brunch.
Morgunverður.
Kvöldið byrjar kl. 19:00 með fordrykk I
Sögusetrinu þar sem verður messað yfir fólki.
kl. 20:00 byrjar borðhald með ýmsum
skemmtiatriðum.
Pinnamatur/brauðtertur/snittur/hlað-
borð/a la carte/kökuhlaðborð/hádegis-
verður/kvöldverður og fleira.
Salur fyrir allt að 240 manns.
Föstudag til laugardags. kr. 8.400.-
Laugardag til sunnudags. kr. 9.400.
Á leiðini heim: Komið við á Strandavelli og
tekinn einn hringur.
Bjóðum upp á fordrykk
í Sögusetrinu. kr. 950.-
Óvissuferðir/Jeppaferðir/Njáluferðir/
strandferð með hertrukk/fjórhjólaferðir/
hestaferðir
Eftir borðhald og skemmtiatriði er dansleikur.
Verð án gistingar kr. 3.900.-
Verð með gistingu kr. 8.400.-
Verð án gistingar kr. 4.900.
Ath: Öll verð miðast við gistingu í tveggja manna herbergi á mann. Auka fyrir einsmanns herbergi kr. 3.500