Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Qupperneq 27
DV Bló
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 27
íslenski myndskreytirinn
Siggi Eggertsson sem
búsettur er í London
var fenginn til að
hanna plötuumslágið
fyrir aðra breiðskífu
sveitarinnar Gnarls
Barkley en platan
kemur út í apríl.
Siggj EggertssonTeiknaði piötuumslag
fyrir hljómsveitina Gnarls Barkley.
GERÐI
UMSLAG
FYRIR
BARKLEY
„Ég er búinn að búa í London síð-
an í janúar í fyrra og vinn sem mynd-
skreytir hérna," segir Siggi Eggerts-
son en hann teiknaði á dögunum
plötuumslagið fyrir aðra breiðskífu
hinnar geysivinsælu sveitar Gnarls
Barkley. Platan sem ber heitið The
Odd Couple kemur út í apríl en Siggi
var beðinn fyrir verkefnið af hönnuði
plötuumslagsins, Tom Hingston.
„Ég kynntist Tom fyrir svolitlu síð-
an og sendi honum verkin mín. Eft-
ir það höfum við alltaf verið í góðu
sambandi og hann vildi fá mig til
að teikna plötuumslagið, það var nú
eiginlega ekkert flóknara en það."
Gnarls Barkley sendi frá sér sína
fyrstu plötu, St.Elsewhere, árið 2006
en fyrsta smáskífulag plötunnar,
Crazy, rataði í spilun árið 2005 og
toppaði vinsældalista um heim all-
an. Hljómsveitin naut ekki síður vin-
sælda hérlendis og var vart hægt að
stíga fæti inn á skemmtístað í upp-
hafi árs 2006 án þess að heyra lagið
Crazy spilað svo sveitin ætti að vera
vel kunnug fslendingum.
Vann verkfyrir Nike í NewYork
„Ég talaði nú aldrei við þá sjálfa,
ég var ailtaf bara í sambandi við Tom,
þetta fór alit í gegnum hann. Rétt fyr-
ir jólin sendi ég honum svo nokkr-
ar teikningar og þetta þróaðist bara
einhvern veginn út í umslagið eins
og það lítur út í dag," segir Siggi en
skömmu fyrir jólin vann hann einnig
að öðru ekki síður spennandi verki.
„Ég gerði mósaíkverk sem er
þrír sinnum fjórir metrar fyrir Nike-
versiun í New York, það var mynd
af körfuboltamanninum Patrick
Ewing," segir Siggi sem þó virðist ein-
staklega afslappaður yfir því að hafa
unnið verkefrii fyrir bæði eitt þekkt-
asta fatamerki heims sem og eina
heitustu hljómsveit samtímans.
„Ég spái ótrúlega h'tið í það.
IrÍÍdfiÍftlK >
APRIL2008 CSf
Teikningin sem Siggi gerði The Odd
Couple, önnur breiðskífa Gnarls Barkley,
kemur út í apríl
Þetta er einhvern veginn ekkert eins
merkilegt og það hljómar, þetta er
bara vinna rétt eins og það að vinna
sem sjómaður."
Kominn með ógeð
á stórborginni
Siggi útskrifaðist sem grafi'skur
hönnuður frá Listaháskóia fslands
árið 2006 en ákvað að fókusera
meira á myndskreytingar fremur en
grafíska vinnu en hann segir mark-
aðinn fyrir þá iðju mun opnari í
London en á íslandi.
„Ég er samt komin með ógeð á
því í bili að búa í þessari gráu borg
og er að fara að flytja aftur heim til
fslands í þrjá mánuði í mars. Ég flyst
örugglega til Hríseyjar því það er
svo mikill kraftur þar og góð nátt-
úra og ég þarf oft á því að halda inn
á milli."
Fram undan hjá Sigga er svo gerð
annars plötuumslags fyrir bresku
hljómsveitina Delays. „Ég er að
vinna að því með hönnunarstúdíói
sem heitir Big Active. Þetta er hljóm-
sveit sem gaf víst út plötu sem varð
frekar stór hér í Bretlandi en gaf svo
út aðra sem var mjög léleg og mér
skilst að nú ætli þeir að reyna aftur
að gefa út eina góða," segir hann að
lokum. krista@dv.is
Hjartaknúsarinn Matthew
McConaughey heldur áfram að
leika í rómantískum gaman-
myndum og er myndin The
Ghosts of Girlfriends Past næst á
dagskrá. (henni leikur McCon-
aughey mikinn glaumgosa sem
lendir í þó nokkrum fyrrverandi
kærustum þegar hann fer í
brúðkaup litla bróður síns.
Einnig leika í myndinni Jennifer
Garner, Breckin Meyer, Lacey
Chabert, Anne Archer og
Amanda Walsh. Tökur hefjast 19.
febrúar í Boston.
mm,u
Guillermo Del Toro, leikstjóri
Pan's Labyrinth, sem hefur verið
orðaður við Hobbitann að
undanförnu, segir enn mikla
óvissu ríkja um verkefnið. Del
Toro segir að enn hafi ekkert
verið staðfest og því ekki einu
sinni víst hvort af gerð myndar-
innar verði. Del Toro segist þó
mjög áhugasamur um verkefnið
og vildi glaður leikstýra
myndinni.„Ég hef ekki ennþá
fengið staðfestingu og ekkert er
víst fyrr en hún kemur," segir
glaðlegi, spænski leikstjórinn.
TOHIyne
Tökur á myndinni Max Payne
hefjast í byrjun mars og þeim
lýkur um miðjan maí. Myndin er
byggð á samnefndum tölvuleik
sem var gríðarlega vinsæll fyrir
nokkrum árum en það er Mark
Wahlberg sem leikur Max
sjálfan. Myndin segir sögu
lögregluþjóns sem nær að koma
sér i raðir mafíunnar. Þegar hann
er ranglega sakaður um að
drepa samstarfsmann sinn þarf
hann að berjast gegn glæpum
einn síns liðs með mafíuna og
lögregluna á hælunum.
Sirkushopurinn Oki Haiku Dan syna 1 Borgarleikhusmu:
LJÓÐRÆN BEINAGRIND
Vetrarhátíð fer af stað á fimmtudaginn kem-
ur og stendur yfir helgina. Eitt atriðið í kræsi-
legri dagskránni er sýning framsækna sirkus-
hópsins Oki Haiku Dan í Borgarleilkhúsinu.
Sýningin heitir Beinagrindin og er sögð stór-
kostlegt, ljóðrænt ferðalag um möguleika
mannslíkamans þar sem tónlist, ljós, dans- og
sirkusatriði bráðna saman á krassandi hátt.
Árið 2004 kom hópurinn til Islands með verk-
ið „Hreyfa ekki hreyfa" sem síðan hefur verið
sýnt hundrað og sextíu sinnum víðs vegar um
heiminn.
Japanski listamaðurinn Keisuke Kanai flétt-
ar ljós í skugga, tónlistarmaðurinn Rui Owada
sér um tónlistina og leikstjóri er Sébastien Lal-
anne.
Beinagrindin verður sýnd tvisvar á Nýja
sviði Borgarleikhússins, klukkan 20.00 dag-
ana 6. og 8. febrúar. Nýsirkusinn, eins og hann
er kallaður, tekur einnig þátt í opnunaratriði
Vetrarhátíðar fimmtudagskvöldið 7. febrúar
og stýrir auk þess sirkussmiðju fyrir börn og
unglinga í Gerðubergi laugardaginn 9. febrúar
frá klukkan 13.00 til 16.00.
SIRKUS Úrframsaeknu
sirkussýningunni Beinagrind.