Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Side 30
X
30 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Slöast en ekki slst DV
Við mælum með...
*
Nú er Vetur konungur í essinu sínu
og blæs kulda sem mest hann má
ofan í óvarin hálsmál Islendinga.
Orsök þess finnum við í bólgnum
hálsum og aumum kverkum. Því
hefur sjaldan verið mikilvægara að
draga trefilinn upp úr neðstu skúff-
unni og vefja honum þéttingsfast
um hálsinn. Þannig má íyrirbyggja
mein þau sem áður eru nefnd. Trefl-
ar eru stórlega vanmemar flíkur, rétt
eins og ömmuprjónaðir vettlingar.
Þótt engar smáauglýsingar séu til
staðar í þessu ágæta dagblaði, er
ekki nema sjálfsagt að mæla með
þeim. í smáauglýsingum er til dæm-
is hægt að gera afbragðs kaup á
sjónvarpstækjum. Naumaseggir eru
duglegir að skipta út ónotuðum við-
tælq'um fyrir háskerpuflatskjá. Það
er því lítið mál að eignast fyrirtaks
sjónvarp fyrir kúk og kanil, ef þannig
má að orði komast. En gættu þín,
það að hika er það sama og að tapa.
Ekki flokka allt sem þú borðar í hollt
og óhollt, sérstaklega ekki ef börn
eru á heimilinu. Ef þau eru undir
stöðugum áróðri um mettaðar fitu-
sýrur og kolvetni er voðinn vís. Um
leið og þau sleppa úr augsýn for-
eldra sinna fara þau á sætmdafýll-
irí. Þú getur bölvað þér upp á það.
Eldaðu frekar góðan heimilismat
(með sósu) og gættu þess gaum-
gæfiiega að gefa þeim ís, sykrað gos
eða súkkulaði endrum og ems. Ekki
gera sælgæti að bannvöru.
SWDKOKN
Halldór Aðalsteinsson
varð fyrir fólskulegri árás á Laugaveg-
inum um hábjartan dag. Halldór var á
leið í herrafataverslun Guðsteins
þegar árásin átti sér stað. Halldór
segist þó vera búinn að ná sér og það
þakkar hann jákvæðu hugarfari sínu.
IvlAÐUR
DAGSINS
Ert þú búinn að jafna þig eftir
árásina?
„Já, já, ég jafnaði mig strax á
þessu."
Hver er maðurinn?
„Ég er bara Halldór Aðalsteins-
son."
Hvar ólst þú upp?
„Ég ólst upp um allt land. Foreldr-
ar mínir flutm úr sveitinni til Akureyr-
ar en ég varð eftir. Það má því segja
að ég hafi verið sjálfs míns húsbóndi
frá sjö ára aldri. Það er engin ástæða
að hanga í foreldrahúsum fram eftir
öllu. Ég var ýmist í sveit eða á sjó en
ég flutti til Reykjavíkur þegar ég var
fimmtán ára en þá náði Reykjavík nú
bara upp að Rauðarárstíg."
Hver eru þín áhugamál?
„Allt sem ég tek mér fýrir hendur.
Ég spila til dæmis bridds alla mánu-
daga. Ég hugsa mikið og einbeiti mér
að því að vera jákvæður. Svo heim-
sæki ég bömin mín sjö og ýmislegt
fleira skemmtilegt."
Uppáhaldsmatur?
„Mér finnst allur matur góður,
sérstaklega venjulegi íslenski mat-
urinn. En ég er alveg hættur að elda
eftir að konan mín lést en hún eldaði
ofsalega góðan mat."
Á hvað horfir þú helst í sjón-
varpi?
„Ég horfi á fréttir og fótbolta. Ég
held samt ekki með neinu ákveðnu
liði, ég hef bara gaman af því að fylgj-
ast með því hvemig þeim gengur að
leika með boltann."
Hefur þú ferðast mikið til
útlanda?
„Ég gerði það mikið þegar ég var í
siglingum. Svo fór ég ásamt konunni
minni tvö ár í röð til sólarstranda.
Það var flott á Mallorka."
Fallegasti staðurinn?
„Mér þótti nú alltaf fallegast á Ak-
ureyri. Útsýnið þar er svo fallegt."
Af hverju ert þú stoltastur?
„Ég er nú stoltastur af því að hitta
mína elskulegu konu heitina. Hún
hugsaði svo vel um börnin, var alltaf
prjónandi og hugsaði vel um heimil-
ið. Hún var góð kona."
Ertu óöruggur á götum úti?
„Ég fer aldrei orðið út á kvöldin.
En það var sérlega skrýtið að lenda
í því um hábjartan dag að ráðist hafi
verið á mig."
Hafa tímarnir breyst mikið frá því
þú varst ungur?
„Þeir em algjörlega svart og
hvítt og breytingarnar hafa verið til
hins verra. Ég hreinlega skil þetta
ekki. Allar þessar fólskulegu árásir
og þessi árans fíkniefni. Hér áður
fyrr sá maður menn etja kappi og
þá var hnefahöggum stundum
beitt en menn gengu þó ekki svo
langt að hálfdrepa hvor annan."
Hvað er fram undan?
„Ég ætla bara að vera glaður og
kátur."
ÆTLAR AÐ GLEÐJAST
ÞRÁTTFYRIRALLT
■ Benni Hemm Henun og
hljómsveit hans em á tónleika-
ferðalagi þessa dagana og spila
á Pusterviksbaren í Gautaborg í
kvöld. í gær
sló flokk-
urinn upp
konsert á
VegaíKaup-
mannahöfri
og á morgun
liggur leiðin
til Ósló þar
sem hljóm-
sveitin kemur ff am á Spasibar. Á
föstudag troða Benni og félagar
$vo upp á „Restless Romance"-
kvöldi á klúbbnum Debaser
Slussen í Stokkhólmi, en það eru
síðustu tónleikar ferðarinnar áður
en sveitin snýr aftur til höfuð-
stöðva.
■ Þau gleðitíðindi bámst hljóm-
sveitinni Soundspell í nótt að
hún væri komin í úrslit Alþjóð-
legu lagasmíðakeppninnar (e.
Intemational
Songwriting
Contest), en
keppnin er
p . , O gerðútfrá
n Nashville og
í dómnefnd
Bg sitjaekki
minnimenn
enTom
Waits, Jerry Lee Lewis, Robert
Smith og Frank Black, forsprakki
Pixies. Það er lagið Pound af nýj-
ustu plötu Soundspell, An Ode to
The Úmbrella, sem keppir nú við
framúrskarandi lagasmíðar alls
staðar að úr heiminum. Tilkynnt
verður um sigurvegarann í apríl,
en strákamir keppa í táninga-
flokknum við tólf önnur bönd.
Aðdáendur hljómsveitarinnar
geta hjálpað tÚ með því að kjósa
lagið áfram á heimasíðu keppn-
innar: http://www.songwriting-
competition.com/winners
■ Hörður Sveinsson, ljósmynd-
ari tónlistarfólksins, fagnaði af-
mæli sínu á Bamum um síðustu
helgi. Haukur S. Magnússon,
meðlimur
hljómsveitar-
innar Reykja-
vík!, nýtti sér
tækifærið þar
sem hann á
nú bráðum
afmæli og
fékk að bjóða
nokkrum
gestum líka. Hljómsveitin Reykja-
vík! spilaði auk þess fyrir sveittan
lýðinn en meðal gesta voru meðal
annars meðlimir úr hljómsveit-
inni Jakobínarína sem hafa verið
þöglir sem gröfin varðandi sam-
starfsslitin. Bjórinn virðist þó hafa
losað um málbeinið um helgina
en þeir kepptust víst við að deila
því með afmælisgestum að Jakob-
ínarína sé hætt.
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði