Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Side 32
Litlar samlokur 399 kr.
+ lítið gosglas 100 kr.
= 499 u,
FRETTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrirfréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
Kristínerforstjóri
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra hefur skipað
Kristínu Lindu Árnadóttur í embætti
forstjóra Umhverfisstofnunar til
fimm ára. Kfistín hefur starfað sem
lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun
í vetur. Hún er menntuð í
umhverfisfræðum og lögfræði og
starfaði áður í umhverfisráðuneytinu.
Aðeins tíu mánuðir eru síðan Ellý
Katrín Guðmundsdóttir tók til starfa
sem forstjóri Umhverfisstofnunar.
Jónína Bjartmarz, þáverandi
umhverfisráðherra, skipaði Ellý í
starfið. 23 sóttu um stöðuna að þessu
sinni.
*:
Hvar er Rakel?
Lögreglan á Selfossi lýsir eftir
Rakel Ómarsdóttur, fæddri 1986,
til heimilis á Kálfhólum 3 á Sel-
fossi. Rakel er 171sentímetri á hæð,
grannvaxin, með svart sítt hár og
brún augu. Síðast er sást til Rakelar
var hún klædd í gallabuxur, ljósgráa
gönguskó og ljósgræna mittisúlpu.
Síðast er vitað um ferðir Rakelar
seinnipart föstudagsins 1. febrúar
síðastíiðins. Þeir sem vita hvar Rakel
er eða hafa upplýsingar um ferðir
hennar eru beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna á Selfossi í síma
480-1010.
Furðufærslur
á greiðslukort
fándsbankanum hafa borist
kvartanir vegna tokennilegra
færslna á kreditkortareikninga
nokkurra viðskiptavina um síðustu
mánaðamót. Um er að ræða eitt
þúsund króna færslur frá fyrirtæki
sem heitir Digital Company og er til
húsa í Húsalind.
Ekki var hægt að nálgast upplýs-
ingar um fjölda slíkra færslna
hjá Valitor, umboðsaðila VISA,
en upplýsingafulltrúi segir að
allar kvartanir séu rannsakaðar í
kjölinn. Ekki náðist tal af eigendum
Digital Company, en þau eru hin
sömu og reka íslensk-spænsku
fasteignasöluna Gloria Casa.
Voru þetta rangfærslur?
/
Risakónguló klöngraöist út úr búri sínu hjá Heilbrigðiseftirlitinu:
TARANTÚLA REYNDIAÐ
FLÝJA ÚR HALDILÖGREGLU
lögreglumaðurinn hafi gert honum
viðvart þegar tarantúlan reyndi að
klöngrast á milli rimlanna út í frelsið.
Henni varð ekki að ósk sinni heldur
kom Magnús henni aftur inn í búrið.
Aðspurður segir Magnús að
Heilbrigðiseftirlitið á Suðurnesjum
hefði ágæta reynslu af svona kvik-
indum. Einu sinni fengu þeir krókó-
díl í hendurnar sem óprúttinn aðili
reyndi að smygla í gegnum
toll Keflavíkurflugvallar.
Ráðgert var í gær að
koma kóngulónni í hendur
Náttúrufræðistofnunar sem mun
rannsaka hana.
Raunstærð Tarantúla sem lögreglan
lagði hald á reyndi að flýja út í frelsið.
DV-mynd Víkurfréttir
vALUR GRETTISSON
„Hún reyndi að koma sér út úr
búrinu þegar ég var að tala í sím-
ann," segir Magnús Guðjónsson,
heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja, um
djarfa flóttatilraun tarantúlu-kóngu-
lóar sem fannst á mánudagskvöld-
inu þegar lögreglan gerði húsleit á
heimili í Reykjanesbæ. Tarantúl-
an var nokkuð stór og var vistuð í
hvítu búri. Hún var vöktuð af lög-
reglumanni ásamt fréttamanni Vík-
urfrétta, Hilmari Braga Bárðarsyni,
sem tók myndir af henn þegar flótta-
tilraunin átti sér stað. Lögreglu-
maðurinn þorði ekki að koma nærri
kóngulónni og var Magnús því kall-
aður aftur inn í herbegið og kom
hann kóngulónni aftur inn í búrið.
Játar nauðgunina
en ekki morðið
Mark Dixie, 37 ára kokk-
ur, hefur viðurkennt fyrir rétti
í London að hafa stundað
kynmök við
lflc hinnar
myrtu 18 ára
fyrirsætu
Sally Anne
Bowman, en
þvertekur
fýrir að hafa
orðið henni
að bana. Dix-
ie er ákærður
fyrir morðið á stúlkunni, en
samkvæmt vitnisburði hans
fyrir rétti var hann undir áhrif-
um lyfja og áfengis þegar hann
„notfærði sér aðstæðurnar"
þar sem stúlkan lá í eigin blóði
við sundlaugarbakka.
Saksóknarinn í málinu, Bri-
an Altman, sagði hreint með
ólíkindum að þetta væri mál-
svörnin hans. „Það er ekki eitt
sannleikskorn í þessari þvælu.
Þetta er hrein örvænting af
hans hálfu."
Það var á mánudags-
kvöldið sem lögreglan á
Suðurnesjum gerði húsleit
á heimili í Reykjanesbæ, Við
leitina fundust þrjú grömm af
hassi. Við nánari leit, og lögreglu-
mönnum til mikillar furðu,
fundu þeir tarantúlu í búri á
heimilinu. Kóngulóin var
geymd í glerbúri og hafði
verið fóðruð á músum.
Mennirnir sem þarna
bjuggu voru færðir á
lögreglustöðina og
kóngulóin með.
Eftiryfirheyrslurvar
mönnunum sleppt
lausum og mega þeir
búast við ákæru vegna
fíkniefnanna. Aftur á
móti fékk kóngulóin
ekki að fara út í frelsið því
henni var komið í hendur Magnúsar,
heilbrigðisfulltrúa á Suðurnesjum.
„Lögreglan vaktaði hana á meðan
hún reyndi að komast út," segir
Magnús og bætir við að
HÉíÉ , ...
Tignarlegur vetur Napurt hefur verið í veðri undanfarna daga. (dag er gert ráð fyrir éljagangi og hita um eða undir frostmarki.
Jón Trausti Lúthersson ákærður fyrir líkamsárás:
Sakaður um að lemja unga konu
Leiðtogi mótorhjólaklúbbsins
Fáfnis, Jón Trausti Lúthersson, hef-
ur verið ákærður fyrir að hafa lamið
konu á bar í Reykjanesbæ. Hann er
einnig ákærður fyrir að hafa lamið
mann sama kvöld en aðalmeðferð
málsins átti að fara fram í Héraðs-
dómi Reyjaness í gær. Málinu var
hins vegar frestað í mánuð þar sem
Jón Trausti er staddur erlendis.
Það var í september árið 2006
sem Jón Trausti hitti fyrir karlmann
á barnum H-punktinum í Keflavík.
Svo virðist sem ósætti hafi kom-
ið upp en Jón Trausti er ákærður
fyrir að skalla manninn í andlit-
ið. Hann á að hafa nefbrotnað við
aðförina og fallið svo niður stiga á
skemmtistaðnum. Þá er Jón Trausti
einnig ákærður fyrir að henda konu
í gólfið á samá stað. Þar á hann
að hafa sparkað ítrekað í
hana þannig að hún
hlaut skurð við eyra.
Þá hlaut hún mar á
brjóstkassa eftir að-
förina.
Þegar aðalmeð-
ferð málsins átti að
fara fram mætti Jón
Trausti ekki í dómsal.
Hann mun vera er-
lendis og því var málinu
frestað í mánuð.
Jón Trausti hef-
ur margsinnis verið
ákærður og dæmdur j
fyrir ofbeldisglæpi
en Fáfnir hefur oftar
en ekki verið tengd-
ur við skandinavísku glæpasamtök-
in Hells Angels. I haust tók hann á
móti liðsmönnum Vítisenglanna
en þeir voru allir handteknir
þegar þeir komu til landins.
Eftir yfirheyrslur var mönn-
unum svo vísað úr landi. Það
var í annað sinn sem Vítis-
englarnir reyndu að kom-
ast inn í landið.
Áætíuð aðalmeð-
ferð málsins mun
fara fram í byrjun
mars.
valur@dv.is
Jón Trausti Luthersson Erákærður
fyrir að lemja unga konu og karlmann
á skemmtistað í Reykjanesbæ.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4