Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Suðurland DV
Vetrarríkið setur svip á rekstur sveitarfélagsins Árborgar:
MOKA SNJÓ FYRIR
FIMMTÍU MILLJÓNIR
Bæjarstjórinn Ragnheiður Hergeirsdóttir,
bæjarstjóri í Árborg, segir að iðbærinn á Selfossi sé
nánast óskrifað blað og það hafi gefið yfirvöldum
færi á metnaðarfullu skipulagi fyrir nýjan miðbæ.
DV myndir Sigtryggur
„Ég held að við höfum þurft að
moka snjó fyrir um fimmtíu millj-
ónir króna frá því að það byrjaði að
snjóa. En það er ekki hægt að kvarta
yfir þessu, þetta er eðlileg þjónusta
og við búum nú einu sinni á Islandi,"
segir Ragnheiður Hergeirsdóttir,
bæjarstjóri í Árborg.
í andránni búa ríflega 7.600
manns í sveitarfélaginu Árborg og
segir Ragnheiður að á fimm árum
hafi íbúum fjölgað um 1.400 manns.
„Við erum að tala um 23 prósenta
fjölgun í bæjarfélaginu, sem er um-
talsvert," segir Ragnheiður. Fjölgunin
hefur verið mest á Selfossi á meðan
íbúatala Stokkseyrar og Eyrarbakka
hefur haldist nokkurn vegin óbreytt.
„Það er í rauninni jákvætt, því það
eru þessi smærri þorp um allt land
sem hafa þurft að glfma við fólks-
flótta."
Sóknarfæri og miðbær
Ragnheiður segir að sveitarfélagið
hafi mikil sóknarfæri og bendir á
uppbyggingu miðbæjarins, sem nú
stendur fyrir dyrum. „í rauninni er
miðbærinn á Sefossi nánast óskrifað
blað og það gefur okkur færi á að
móta okkur einstaklega fallegan og
vel upp byggðan miðbæ. Hingað til
hefur fólk þekkt miðbæinn á Selfossi
sem þessa einu götu, sem í rauninni
er þjóðvegur númer eitt. Þessi
svipur á eftir að gjörbreytast," segir
Ragnheiður.
Umdeild mál hafa komið upp í
aðfraganda nýs miðbæjarskipulags
í Árborg. Sveitarfélagið keypti til
að mynda veitingastað sem þá var í
rekstri, til þess að geta lagt út í sldpu-
lagsbreytingar á svæðinu. „Það voru
fluttar af þessu fréttir og hálfpart-
inn gert grín að okkur fyrir að kaupa
veitingastað. Staðreyndin var þó alla
tíð sú að rekstrinum átti að hætta og
þetta var bara húsið sem við keypt-
um. En við þurfum heldur ekki að
taka það nærri okkur þótt hlutunum
sé snúið upp í grín," segir Ragnheið-
ur.
Nýr knattspyrnuvöllur
Ragheiður víkur að framlögum
bæjarins til íþróttamála, sem Sævar
Þór Gíslason gagnrýnir annars
staðar í blaðinu. „Á þriggja ára
áætlun sveitarfélagsins gerum
við ráð fýrir því að leggja alls um
níu hundruð milljónir króna til
uppbyggingar á íþóttamannvirkjum.
Reyndar verðum við að sætta okkur
við að hér er um áætlun að ræða og
fjárhagsáætlun hvers árs ræður því
hvort þetta takmark okkar næst"
Húðsegiraðeinhverseinkunkunni
að verð á byggingu knattspyrnuvallar
sem áformað var að taka í notkun í
sumar. „Við stefnum þó eindregið að
því að þennan völl verði hægt að taka
í notkun fyrir tímabilið á næsta ári,"
bætir Ragnheiður við.
sigtryggur@dv.is
Dyrhólaeyjarferðir
Sjó- og landferðir
Upplifið einstakar ferðir um Dyrhólaeyjarsvæðið
á hjólabáti - í návígi við stórbrotna nátturu og fjölbreytt fuglalíf.
Förum með stóra og smáa hópa eftir samkomulagi.
Upplýsingar f síma 487 8500 & 893 6800 www.dyrholaey.com