Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2008, Side 15
DV Sport
SEINNI LEIKIR í 16 LIÐA ÚRSLITUM MEISTARADEILDAR EVRÓPU FARA FRAM í KVÖLD OG ANNAÐ KVÖLD.
FJÖGUR ENSK LIÐ BERJAST UM SÆTI í 8 LIÐA ÚRSLITUM. MAN. UNITED OG ARSENAL HEFJA LEIK. BLS. 17.
Emil Hallfreðsson gengur í gegnum tíð þjálfaraskipti hjá Reggina:
Reggina, lið Emils Hallfreðsson-
ar á ítalíu, er búið að reka þjálfarann
öðru sinni á leiktíðinni og verður sá
næsti þriðji í röðinni. Renzo Ulivieri
var látinn taka pokann sinn en í hans
stað tók Nevio Orlandi, þjálfari ungl-
ingafélagsins, tímabundið við stjóm
liðsins.
Ekki er algengt í knattspymuheim-
inum að skipt sé svo ört um þjálfara
en Emil segir þetta dæmigert fyrir ít-
alíu. „Svona er ítalía og þetta kom svo
sem ekkert sérstaklega á óvart. Við
vorum komnir með ellefu stíg f þrett-
án leikjum og maður vissi af óánægju
manna," segir Emil.
Emil segir mikið rót hafa verið á
liðinu og miklar breytíngar. „Hann
var alltaf að skipta um lið og ég held
að við höfum skipt um leikkerfi fyr-
ir hvem einasta leik. Hann ætlaði að
taka þetta á taktíkinni en það gekk
ekki alveg upp hjá karlinum.
Ég er rólegur yfir þessu og horfi
bara á þetta utan ffá þótt ég sé leik-
maður í liðinu. Ég er ekki búinn að
heyra í neinum í liðinu ennþá enda
kom þetta upp í gærkvöldi og við
fengum frí í dag (gær).
Reggina vann stórlið Juventus fyr-
ir skömmu en hefur svo tapað ein-
um og gert eitt jafntefli. Emil telur sig
eiga nokkuð inni og hann er búinn að
jafna sig á meiðslum sem hafa hrjáð
hann.
„Ég tel mig eiga að vera í þessu liði.
Mér fannst ég spila vel á mótí Lazio
á miðvikudag en hann var með ein-
hveijar aðrar meiningar og tók mig úr
liðinu um helgina. Kannski var hann
að hvíla mig, en það skiptír engu máli.
Núna er bara að koma aftur inn og
nýta tækifærið."
Reggina á í harðri fallbaráttu og
Emil segir mikilvægt að ná í stíg gegn
liðunum í kringum liðið. „Við eigum
eftír að spila við Catania, Siena, Cagli-
ari og Parma svo einhver lið séu nefnd
þannig að við eigum góða möguleika
á því að bjarga okkur. Því er ekki að
neita að það verður erfitt og við þurf-
um að bæta leik okkar en þetta er í
okkar höndum," segir Emil að lokum.
vidar@dv.is
Lítil þolinmæði Reggina,
lið Emils Hallfreðssonar, lét
annan þjálfarann fara á
leiktiðinni.
DÆMIGERT FYRIR ÍTALÍU