Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
Fréttir DV
Fíkniefnasali
ífangelsi
Fíkniefnasalinn Brynjar Guð-
mundsson var dæmdur í mánað-
arlangt fangelsi skilorðsbundið
til tveggja ára fyrir að hafa haft
undir höndum 114 grömm af
maríjúana sem var ædað til sölu-
dreifíngar. Hann játaði brotin
skýlaust en áður hefur hann ver-
ið sektaður fyrir umferðarlaga-
og fíkneifnabrot. Þá lagði lögregl-
an hald á skæri og grammavog
sem hann notaði til þess að
vinna og vigta efnin auk sautján
þúsund króna sem hann fékk fyr-
ir fíkniefnasöluna.
Banaslys í
umferðinni
Banaslys varð á Eyrar-
bakkavegi rétt fyrir hádegi í
gær. Þar lést fullorðinn öku-
maður jepplings eftir að hann
lenti í árekstri við vörubíl.
Lögreglu-, sjúkra- og björg-
unarlið var sent á vettvang
strax eftir að tilkynning barst
um stysið. Ökumaðurinn var
úrskurðaður látinn á vettvangi
slyssins eftir að lífgunartil-
raunir báru ekki árangur.
Ökumaður vörubílsins slas-
aðist ekki en hlaut viðeigandi
aðhlynningu.
Lögreglan lýsir eftir vitnum
að árekstrinum og eru þau
beðin um að hafa samband í
síma 480 1010.
Laus úr haldi
Maðurinn sem veitti örygg-
isverði í verslun 10-11 við Aust-
urstræti lífshættulega áverka
um helgina verður látinn laus úr
gæsluvarðhaldi í dag. Hæsti-
réttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um
gæsluvarðhald yfir manninum.
I greinargerð lögreglu segir að
læknum hafi með naumindum
tekist að bjarga lífi öryggisvarð-
arins þar sem blæddi inn á heila
eftir fólskulega árásina, en vörð-
urinn var barinn með glerflösku
í höfuðið.
Amfetamín
ítöskunni
Ungur karlmaður var hand-
tekinn í fyrradag í Leifsstöð eftir
að þrjú kíló af amfetamíni fund-
ust í tösku hans. Maðurinn var
að koma frá París þegar lögreglu-
og tollgæslumenn höfðu hendur
í hári hans. f gær var maður-
inn úrskurðaður í þriggja vikna
gæsluvarðhald vegna gruns um
fíkniefnasmygl. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Suð-
urnesjum er rannsókn málsins
skammt á veg komin og því ekki
hægt að veita frekari upplýsingar
um málið að svo stöddu.
Óprúttinn dóni er sakaður um að hafa áreitt tvær stúdínur á Stúdentagörðunum
nærri Eggertsgötu. í öðru tilfellinu hafði hann teygt sig inn um sturtuglugga á með-
an rúmlega tvítug stúdína var í sturtu og tekið myndir af henni. Hún sá höndina sér
til mikillar hrellingar þegar hún var að ljúka við sturtuna.
D0NISKELFIR
STUDINUR
VALUR GRETTISSON
blaðomaður skrifar:
Félagsstofnun stúdenta hefur feng-
ið tvær tilkynningar á tveimur mán-
uðum varðandi meintan dóna sem
áreitir stúdínur á nemendagörð-
um Háskóla íslands við Eggerts-
götu. f öðru tilfellinu var stúdína í
sturtu þegar hún varð vör við dón-
ann. Þá hafði hann teygt höndina
inn og hélt á farsíma og tók mynd-
ir af stúlkunni. Henni var veru-
lega brugðið og bauð Félagsstofn-
un henni aðra íbúð sem ekki væri
á jarðhæð í kjölfarið. Stuttu eftir að
það mál kom upp tilkynnti önn-
ur stúdína til Félagsstofnunar að
hana grunaði að einhver einstakl-
ingur lægi á bréfalúgunni heima
hjá henni og njósnaði um hana.
Bæði atvikin áttu sér stað á Stúd-
entagörðunum.
Dóni tekur sturtumyndir
Það var í síðasta mánuði sem
rétt rúmlega tvítug stúdína fór
grunlaus í sturtu. Hún býr á Stúd-
entagörðunum nærri Reykjavíkur-
flugvelli. fbúð stúlkunnar er á jarð-
hæð en glugginn í sturtunni snýr
að bakhlið hússins. Þegar hún var
að ljúka við sturtuna leit hún við
og henni til mikillar furðu sá hún
hönd teygja sig inn um gluggann.
Og það sem verra var, höndin hélt
á farsíma og hafði augljóslega tekið
myndir af stúlkunni í sturtu. Hugs-
anlega tók óprúttni dóninn upp
myndband en ómögulegt er að
segja til um það.
Annað tilvik tilkynnt
Þegar haft var samband við Fé-
lagsstofnun stúdenta fengust þau
svör að stúlkan hefði kvartað til
þeirra vegna málsins. Þá var stúlk-
unni strax boðin ný íbúð í sama
húsi sem er ekki á jarðhæð. Hún
eftir að sturtuatvikið kom upp hafi
þeim borist tilkynning frá annarri
stúdínu sem býr nálægt þeirri fyrri
en hún sagðist hafa orðið var við
undarlegan umgang hjá sér. Vildi
hún meina að einhver hefði ver-
ið að kíkja inn um bréfalúguna hjá
henni.
Formanni bugðið
„Mér bregður við að heyra um
þetta," segir Björg Magnúsdóttir,
formaður stúdentaráðs, um mál-
ið en henni var ekki kunnugt um
málið þegar haft var samband við
hana. Hún segir fregnirnar slá-
andi og hvetur íbúa á Stúdenta-
görðunum að hafa aúgun opin á
meðan dóninn gengur laus. Hún
segir menn þó þurfa að gæta still-
ingar í þessum efnum og bendir á
að Stúdentagarðar séu engu að síð-
ur öruggari en miðborgin þrátt fyr-
ir dónaskapinn.
„Ég man ekki til þess að svona
nokkuð hafi gerst áður en mér sýn-
ist þetta ekkert til þess að hafa stór-
ar áhyggjur af enn sem komið er"
segir Björg sem hvetur til stillingar
vegna málsins.
Dónans leitað
Að sögn heimildaýmanns höfðu
stúlkurnar samband við lögregl-
una á höfuðborgarsvæðinu og til-
kynnm málið. Samkvæmt Félags-
stofnun stúdenta héfur lögreglan
ekki haft samband við þau. Þá er
illmögulegt að finna út hver dón-
inn er en engar eftirlitsmyndavélar
eru á svæðinu sem gætu hugsan-
lega vaktað bakglugga að íbúðun-
um. Þá er alls óvíst hvort um sama
manninn sé að ræða í bæði skipt-
in þó ekki sé loku skotið fyrir neitt
í þeim efnum.
Nemar hafa ekki verið varaðir
sérstaklega við dónanum af hálfu
háskólayfirvalda enn sem komið
er.
Stúdínuhrellir
Óprúttinn dóni
teygði hönd s(na
inn umgluggaá
meðan stúdína
var í sturtu og tók
myndiraf henni.
hafði ekki enn þegið boðið en hún unar stúdenta hafði lögreglan ekki
óskaði sjálf eftir flutningum. Að haft samband við þá vegna máls-
sögn forsvarsmanna Félagsstofn- ins. Þeir staðfestu hins vegar að
Utanríkisráðherra fengið á annað hundrað vilyrða um atkvæði til öryggisráðs SÞ:
Mikill stuðningur við ísland
„ísland hefur nú þegar feng-
ið skrifleg vilyrði um stuðning frá á
annað hundrað af 192 aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna," sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanríkis-
ráðherra á Alþingi í gær. Þar kynnti
hún nýja skýrslu ráðuneytisins um
utanríkis- og alþjóðamál.
f skýrslunni leggur Ingibjörg Sól-
rún mikla áherslu á mikilvægi virkr-
ar utanríkisstefnu. Hún segir ímynd
íslands veika og að of fáir viti hversu
traustir innviðir íslensks samfélags
eru. f því samhengi nefndi hún að
samskipti við ríki Afríku væru sífellt
mikilvægari. „Ekki skal vanmeta þá
staðreynd að ríkin eru 53 talsins og
hafa því umtalsvert vægi í atkvæða-
greiðslum á alþjóðavettvangi," sagði
Ingibjörg meðal annars og bætti við
að Svavar Gestsson sendiherra hefði
tímabundið verið ráðinn áheyrnar-
fulltrúi íslenskra stjórnvalda hjá Afr-
íkusambandinu.
Ingibjög talaði einnig um stuðn-
ing við réttindabaráttu kvenna og
aukinn hlut þeirra í friðarferlum auk
þess sem hún talaði um dvöl sína í
Mið-Austurlöndum. „Ég hef ítrek-
að sett fram áhyggjur fslands og at-
hugasemdir í beinum samtölum
við ráðamenn, ýmist á fundum eða
með símtölum. fsland á ekki að slíta
stjórnmálasambandi, heldur beita
því í þágu friðsamlegrar lausnar
deilumála.
Steingrímur I. Sigfússon steig í
pontu á eftir Ingibjörgu og gagn-
rýndi harkalega NATO-væðingu ís-
lands. Hann spurði hvenær sú af-
staða íslands hefði verið mótuð, að
ísland styddi uppsetningu hern-
aðarbúnaðar í Austur-Evrópu. Það
hefði í það minnsta ekki verið rætt
í utanríkismálanefnd. Hann sagði
ekki ágreining um virka utanríkis-
stefnu, heldur miklu frekar inntak
stefnunnar. batdumdv.is