Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. APR(L 2008
Fréttir DV
Dísilbílar auka
svifryk
Á ársfundi Umhverfisstofn-
unar, sem haldinn var í gær,
kom fram í fyrirlestri Þorsteins
Jóhannssonar að dísilbílar væru
meiri mengunarvaldar varðandi
svifryk en engu að síður um-
hverfisvænni heldur en bens-
ínbílar. Þá vildi hann meina að
sótmengun væri meiri hjá dís-
ilbflum og þar af leiðandi kæmi
meira svifryk vegna þeirra. Aftur
á móti væri dísilbfllinn umhverf-
isvænni þegar horft er til lofts-
lagsbreytinga. Fyrirlestur Þor-
steins má finna inni á heimasíðu
Umhverfisstofnunar.
í endur-
komubanni
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu handtók í gær lithá-
ískan karlmann framan við
verslun á Nýbýlavegi. Ástæðan
er sú að maðurinn er í endur-
komubanni hér á landi eftir að
hafa verið dæmdur í þriggja
ára fangelsi árið 2005 fyrir
fflcniefnasmygl. í framhaldi af
þessu var manninum vísað úr
landi og bannað að snúa aftur
fyrir fullt og allt.
Það var árverkni lögreglu-
manna að þakka að maðurinn
náðist en þeir könnuðust við
manninn eftir að hann gekk
fram hjá lögreglubifreiðinni.
Eldur útfrápotti
Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út að Vestur-
bergi 30 seinni partinn í gær.
Barst slökkviliðinu tilkynning
um að eldur hefði komið upp
á þriðju hæð í fjölbýlishúsi.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu lék grunur á því
að um mikinn eld væri að ræða,
en þegar slökkviliðsmenn komu
á staðinn reyndist tilfellið vera
minna en hljómaði í fyrstu.
Hafði eldur komið upp út frá
potti á eldavél og var ftjúðin
reykræst í kjölfarið.
Banaslys
Karlmaður á þrítugsaldur
lést um sjö leytið í gærkvöldi
eftir að hann varð undir bfl
sem féll af tjakki sem hann
var að gera við. Samkvæmt
upplýsingum frá lögregl-
unni varð slysið í húsnæði
flugfraktarinnarvið Reykja-
víkurflugvöll.
Þegar lögreglumenn
komu að manninum um
klukkan hálf sjö var hann
látinn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni
er málið nú komið yfir til
Vinnueftirlitsins sem kannar
tildrög slyssins.
r\ llla farið lamb við
F Laugaból Tófan hefur
•> tekið tugi fjár frá Rögnu.
Fé af öllum stærðum
Tófan hlífir engu.
Búskapur og afkoma Rögnu Aðalsteinsdóttur líður
mjög fyrir ágang tófu. Ragna, sem er bóndi að Laugabóli
við ísafjarðardjúp, hefur misst fimm tugi fjár á undan-
förnum fimm árum. Sigmar B. Hauksson hjá Skotvis
segir umhverfisráðherra ekki enn hafa svarað erindi
félagsins um að aflétta friðlandi á Hornströndum.
LÖMBIN ÞAGNA
llla farið Tófan hefur hér skilið eftir sig
hálfétið lamb á vfðavangi.
ur ráðið sér mann sem hún væntir á
næstu dögum, enda sé stuttur tími
til stefnu. „Það er til lítils að hugsa
vel um Iömbin sín þegar þeirra bíð-
ur ekkert nema dýrbítur þegar út er
komið," segir hún.
)j
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur&dz.is
„Ég er búin að missa yfir fimm-
tíu kindur á síðustu fimm árum.
Ég get auðvitað ekki svarið fyrir að
tófan hafi tekið þær allar með tölu
en mörg lömbin hef ég fundið illa
til reika, bæði innan girðingar og
utan. Tófan er auk þess búin að út-
rýma öllu fuglalífi hér í sveitinni,"
segir Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi
að Laugabóli í Ögurhreppi við fsa-
fjarðardjúp. Tófan hefur haft mik-
il og slæm áhrif á afkomu hennar
undanfarin ár en Ragna hefur búið
að Laugabóli frá árinu 1955. Hún
býr þar ein í dag en segir tófuna ekki
auðvelda sér lífið.
Særð lömb í haga
Ragna segist margoft hafa fund-
ið lömbin sín dauð eða særð eft-
ir tófuna. Hún hefur einnig kom-
ið að kindum sem vantar á útlimi
en eru enn á lífi. „Ég hef komið að
lifandi lömbum og rollum sem eru
illa bitnar. Einu sinni var tófan búin
að brytja lambið upp að augum.
Illu heilli á ég ekki myndir af þeim
ósköpum," segir hún og bætir við
að ástæður fjölgunar tófunnar und-
anfarin ár megi rekja til friðlands á
Hornströndum, en þar er bannað
að veiða dýrin. í fyrradag fór Ragna
snemma morguns að girðingu við
bæinn. Slóðir eftir tófur voru á víð
Ragna Aöalsteinsdóttir bóndi Segist
búin aö fá sig fullsadda á ástandinu.
og dreif en alls taldi hún sex slóðir
sem komu úr mismunandi áttum,
niður af fjöllunum.
Refaskyttur bregðast
Ragna segist hafa reynt að ráða
sér refaskyttu til að halda tófunni í
skefjum. Hún hafi hins vegar ekki
góða reynslu af þeim, þar sem þeir
hafi verið gjarnir á að svíkja gefin
loforð. „Það er búið að draga mig
á asnaeyrunum í allan vetur og nú
fer að styttast í sauðburð. Hing-
að kom reyndar maður um daginn
sem lagði bflnum sínum með full-
um ljósum við brúna sem er hér rétt
hjá bænum. Það skipti engu máli,
tófan fór yfir brúna þó að hún yrði
vör við mannaferðir," segir Ragna en
tófan sú fékk fyrir ferðina. Hún hef-
Tvöfalt siðgæði
„Það er engin skynsemi í því að
greiða mönnum fyrir að veiða tófu
á einum stað, en banna veiðar á
henni 100 kflómetrum í burtu. Það
er út í hött," segir Sigmar B. Hauks-
son, formaður Skotveiðifélags fs-
lands. Hann segir erlendar rann-
sóknir sýna glögglega að friðland
á ref geri það að verkum að þaðan
flæði tófan yfir á önnur svæðin, þar
sem hún sé þannig gerð að hún helgi
sér óðöl. Þegar of þröngt verður um
hana á einu svæði, þá leiti hún yfir
á næsta. Sigmar segir að þetta séu
æðarbændur og sauðfjárbændur að
líða fyrir. Tófan hafi veruleg áhrif á
afkomu þeirra. „Fyrir 16 mánuðum
sendum við umhverfisráðherra er-
indi þar sem við skoruðum á hann
„Það er til lítils að
hugsa vel um lömbin
sín þegar þeirra bíður
ekkert nema dýrbítur
þegar út er komið"
að aflétta friðun refs á Hornströnd-
um. Því hefur ekki enn verið svar-
að," segir Sigmar. „Við viljum ekki
útrýma tófunni. Hún er frumbyggi
á íslandi og á rétt á því að vera hér.
Við viljum hins vegar halda henni í
skefjum," segir hann.
Tófusetur í Súðavík
Iðandi fuglalíf heyrir sögunni
til í sveitinni fyrir vestan að sögn
Rögnu. „Hér áður fyrr var blómlegt
fuglalíf. f fyrrasumar voru hér tvær
heiðlóur, þrír þrestir og ein maríu-
erla. Það var allt og sumt. Hér sést
ekki rjúpa lengur. Það var engin síð-
asta haust og ein árið á undan. Tóf-
an drepur allt sem hún nær í,“ segir
Ragna og vandar hreppstjórn Súða-
víkurhrepps ekki kveðjurnar. „Það
gengur ekkert að leita til hrepps-
ins. Þeir gorta sig af því að vera að
byggja tófusetur í Súðavík. Ég held
að þeir ættu að hafa sig hæga. Það
er verið að útrýma öllu lífi á kostn-
að tófunnar," segir hún og bætir við
að hún muni aldrei kenna sig við
Súðavík. „Það er enginn að tala um
að fara illa með tófuna, heldur bara
fækka henni," segir hún.
Jóhanna Sigurðardóttir vill tryggja öllum foreldrum fæðingarorlof:
Réttlæti fýrir námsmenn
„Ég mun láta yfirfara þær reglu-
gerðarheimildir sem unnið er eft-
ir í þessum málum, þannig að réttur
námsmanna í sambærilegum tilvik-
um verði betur tryggður. Markmið-
ið með lögunum er að tryggja öllum
foreldrum aðstæður til töku fæðing-
arorlofs og það er mikilvægt að það
lukkist sem best," segir Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra.
DV ræddi í gær við Hörpu Hrönn
Stefánsdóttur, móður fjögurra mán-
aða drengs. Harpa býr í Danmörku
ásamt fjögurra mánaða syni sínum
en samkvæmt reglugerð um úthlut-
un fæðingarstyrks fær hún þó engan
slíkan styrk þar sem mat Fæðingar-
orlofssjóðs er að hún hafi ekki verið í
nægjanlega miklu námi. Þar sem hún
er með lögheimili erlendis fær hún
heldur ekki fæðingarstyrk sem móðir
FÆDINGARSTYRK
DV IGÆR.
utan vinnumarkaðar. í samtali við DV
í gær sagðist hún þurfa að leita á náðir
félagsmálayfirvalda í Danmörku.
Jóhanna vísar til þess að í fæð-
ingar- og foreldraorlofslögunum er
gert ráð fyrir því að námsmenn sem
eru í fullu námi í a.m.k. sex mánuði
á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu
bams eigi rétt á fæðingarstyrk: „Þær
skilgreiningar sem liggja til grundvall-
ar fullu námi eru hinsvegar þannig
að lítið má útaf bregða til að réttur-
inn falli niður, eins og tilfelli Hörpu.
Sem betur fer eru slík dæmi undan-
tekningartilfelli. í mínum huga erþað
hinsvegar réttlætismál að einstakling-
ar detti ekki á milli skips og bryggju í
þessum efrium," segir hún.
Skýringin á synjun styrksins til
Hörpu er að á viðmiðunartímabilinu
stundaði hún fullt nám í fimm mán-
uði í stað sex. Aðra mánuði skólaárs-
ins var hún í um 60 prósenta námi.
Úthlutunarreglur Fæðingarorlofs-
sjóðs eru stigsskiptar. Námsmenn
sem uppfýlla ekki skilyrði sjóðsins
um námsffamvindu falla um flokk
erlendis
og fá fæðingarstyrk sem foreldri utan
vinnumarkaðar. Skilyrði fyrir því er
þó að viðkomandi sé með lögheimili
á Islandi.
Harpa er hins
vegar með lög-
heimili í Dan-
mörku eins og
hennierskyltþar
sem hún hugðist
dveljaþarlengur
en þrjá mánuði
þegar hún fluttist
þangað í septemb-
erbyrjun. erla@dv.is
Félagsmálaráðherra
Markmiðið með lögunum er að
tryggja öllum foreldrum
aðstæður til töku fæðingarorlofs.