Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008
SUÐURNES DV
við komuna í land á laugardag.
þess að stöðva þá Sigurð Ármanns-
son og Jónas Árnason til þess að
halda á veiðar í stífum norðaust-
ankalda og bjartviðri síðastliðinn
laugardag. Sigurður og Jónas róa
á Betu VE 36 og landa sínum afla
hjá Fiskmarkaði Suðurnesja í Sand-
gerði. „Við lögðum 24 bala af línu.
Þetta eru eitthvað í kringum tvö
og hálft tonn sem við náðum," seg-
ir Sigurður. „Það var bölvuð bræla
þarna úti," bætir hann við. Aflinn
var falleg blanda af steinbít, karfa,
ýsu og lýsu.
Fiskmarkaður Suðurnesja hóf
starfsemi í Sandgerði í septemb-
er 1987. Árið 1996 var ákveðið að
byggja hús undir starfsemi Fisk-
markaðarins í Sandgerði. Árið 1997
var tæplega tvö þúsund fermetra
hús Fiskmarkaðarins við höfnina
tekið í notkun. Starfsmenn eru sjö.
Lítil sem engin viðskipti
eru nú með kvóta. Bankar
iána ekki til kvótakaupa:
Kvótaverð hefur lækkað um allt að
35 prósent frá áramótum. Sam-
kvæmt upplýsingum ffá kvótamiðl-
urum er verðið á kílói af þorskkvóta
komið úr 4.100 krónum og jafnvel
allt niður í 2.700 krónur. Lítil sem
engin viðskipti hafa verið með kvóta
undanfarnar vikur og því er engin
verðmyndun á kvóta.
Kvótamiðlari sem blaðið ræddi
við segir að bankakreppan sem rið-
ið hefur yfir valdi þessu. Bankarnir
haldi að sér höndum og veiti engin
lán til kvótakaupa. Öll viðskipti með
kvóta séu því stopp.
Bankakreppan varð þó ekki til
IWlSVhl : I
GENGIÐ FRÁ
Bátarnir þrifnir og gerðir
klárir fyrir næstu veiðiferð.
Verið hjartanlega velkomin
alla daga í Salthúsið hvort sem þið viljið fá ykkur kaffibolla,
öllara, hitta vini og spjalla í notalegu umhverfi, borða
góðan mat, halda veislur, koma með fjölskylduna, vini og
vinnufélöga, halda afmæli fyrir börn eða fullorna, horfa á
Enska Boltann í góðum hóp, Bandið hans Bubba eða hvað
sem ykkur dettur í hug.
Okkar er ánægan að finna viðburði við allra hæfi.
LESIÐ NÁNAR UM VIÐBURÐI SALTHÚSSINS
Á HEIMASÍÐU OKKAR www.salthusid.is
Salthúsið er staðsett í Grindavík.
Veislusalir Fullkominn bar
Glœsileg aöstaða Hlýlegur A la Carté salur