Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍl 2008 SUÐURNES DV „ÉGHEFALDREI REYNT AÐ FJÖTRA EINN EINASTA LISTAMANN HJÁ MÉR, ÞAÐVÆRI FÁRÁNLEGT" Iþróttamaðurinn Rúnar Júlíusson réð sjalfur við dekkri hliðarnar á tónlistarbransanum, sem alltaf hefur verið brennimerktur áfengis- og fíkniefnaneyslu. Hann hefur til að mynda aldrei reykt. „Éghefaldrei þurft að fara í meðferð. Mig langar ekkert til þess að hætta að drekka og þarf þess í rauninni ekkert." Þegar Rúnar var að færa sig úr knattspyrnunni yfir í tónlistina, rétt um tvítugt, þótti beinlínis til fyrirmyndar að reykja. „Þessi bransi hefur lítið breyst að þessu leyti, en ég hef aldrei fallið fyrir þessu líferni," segir Rúnar, en viðurkennir að auðvitað hafi stundum verið sukkað, einkum hér áður fyrr. Elsta útgáfan Það er einhver náttúruleg auðmýkt í fari Rúnars sem strax vekur athygli. Hann hefur spilað í frægustu rokkhljómsveitum landsins en aldrei verið of merkilegur til þess að veita öðrumathygli.EftirferilmeðHljómum og Trúbrot, sem var samsuða úr Hljómum og hljómsveitinni Flowers, stofnaði Rúnar útgáfuna Geimstein. Þetta var árið 1976. Undir merlqum Geimsteins hefur Rúnar gefið út fleiri plötur en hann man eftir. Á vegg í Upptökuheimilinu, hljóðveri Rúnars, hanga rétt um 130 geisladiskar sem Geimsteinn hefur gefið út. „Það vantar talsvert þarna. Sum tónlistin kom auðvitað bara út á vínylplötum." Landsþekktir listamenn hafa gefið út hjá Rúnari. Þar má nefna GylfaÆg- isson, en hann og Rúnar stóðu sam- an að baki Áhöfninni á Halastjörn- unni, ásamt því að gefa út nokkrar barnaplötur upp úr ævintýrum H.C. Andersens. „Svo kom náttúrlega kót- ilettukarlinn hans Bjartmars Guð- laugssonar fyrst fram á sjónarsviðið héma," segir Rúnar. I dag er Geims- teinn elsta útgáfufýrirtækið á land- inu. Önnur fyrirtæki sem störfuðu samhliða Geimsteini á áttunda ára- tugnum hafa ýmist orðið gjaldþrota eða verið sameinuð öðmm nýrri fé- lögum. Skandinavískt reggí Enda þótt reggí-tónlisst hafi ekld verið mest áberandi tónlistarstefn- an í lífi og starfi Rúnars er langt síð- an augu hans opnuðust fýrir þessari afslöppuðu stefnu. Árið 1974 samdi hann reggí-lagið Come into my life, þá heillaður af þessari tónlist sem hefur áherslurnar á fýrsta og þriðja slagi í hverjum takti, öfugt við venju- lega vestræna popptónlist. Hann var því fljótur að kveikja á perunni þeg- ar í Keflavík spratt upp hljómsveit að nafni Hjálmar. „Ég varð mjög fljótt hrifinn af því sem þeir vom að gera. Kiddi í Hjálm- um var með skúr og upptökugræjur hérna við Hringbrautina. Sonur minn stakk svo upp á því að við sameinuð- um stúdíóin. Þessari samvinnu fylgdi alls kyns tilraunastarfsemi." Skömmu seinna gerðust tveir Svíar, trommari og bassaleikari, meðlimir í hljóm- sveitinni. Úr varð fullmótað skandin- avískt reggí-band. „Þetta em einstakir tónlistarmenn. Nú em Svíamirreynd- ar famir og aðrir komnir í staðinn. Tónlistin mun breytast við það, eins og alltaf gerist. Það er ekki endilega slæmt." Með Hjálmunum tók Rúnar upp lagið Gott er að gefa, enn eitt framlag hans til fágætrar flóm íslenskrar reggí- tónlistar. „Þessi tónlist byggist á öðm h'fsviðhorfi en við eigum að venjast. I Karíbahafinu er ekki rekið á eftir hlut- unum að nauðsynjalausu." í pflagrímaferð Hvað tekur svo við? „Ég er nú bara að hugleiða þetta allt saman." I lok maí fara félagarnir í Hljómum í nokk- urs konar pflagrímaferð til Liverpool á Englandi. Þar verður farið á tónleika með sir Paul McCartney og Hljóm- ar munu stíga á svið í hinum gamal- gróna Cavem-klúbbi. „Við spiluðum þama síðast fyrir hátt í 45 ámm. Ég hef ekki komið til Liverpool síðan þá. Þetta gæti orðið virldlega góð ferð hjá okkur." Rúnar segir að auðvitað séu ýmis verkefni í vændum. Hljómar komi eitthvað fram í sumar og Hljómsveit Rúnars Júlíussonar komi fram eftir pöntunum. „Svo er það náttúrulega útgáfan. Á síðasta ári gáfum við út átta plötur, sem er töluvert fýrir svona lítið fyrirtæki. Það skemmtilega við þetta er að ég er ekki sokkinn ennþá. Og það er ekki öllum sem einu sinni tekst að verða 63 ára." sigtryggur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.