Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
Stóraukin gufuvirkni og
leirgos eru þessa dagana í
Gunnuhver á Reykjanesi:
Stóraukin gufuvirkni er nú á hvera-
svæðinu við Gunnuhver á Reykja-
nesi. Almannavarnir hafa gefið út
viðvörun og biðja fólk um að fara
sérlega gætilega á ferðum sínum um
svæðið. Umferð hefur verið lokað
um veginn að svæðinu, en hverinn
hefur breitt úr sér og hefur nú nán-
ast grafið veginn í sundur.
VEGURINN í SUNDUR
Hér gefur að líta hvernig hverinn hefur fært sig
undir veginn og er byrjaður að éta hann í sundur.
Lokað hefur verið fyrir umferð um veginn.
GONGUPALLURINN
LOKAÐUR
Gunnuhver hefur
breitt úr sér og
kraumar nú undir
þessum göngupalli
sem áður var utan við pU
jaðra hversins.
Undanfarna daga hefur verið
leirgos í gangi í sjálfum Gunnuhver.
Slíkum leirgosum geta fylgt spreng-
ingar sem þeyta sjóðandi eðju
tugi eða jafnvel hundruð metra frá
hvernum, að því er Almannavarnir
greina frá. Leirgosum fylgja gjarn-
an minni slettur sem þó ná að spýt-
ast tvo til fjóra metra í loft upp. „Það
er erfitt að reikna út hversu hátt eða
langt hverinn eys leirnum svo það
er vissara að halda sig fjarri honum,"
segir á heimasíðu Almannavarna.
Náttúrufegurð er mikil á svæð-
inu í nágrenni við hverinn og er það
vinsælt til útivistar. Reykjanesviti er
í næsta nágrenni og fallegar göngu-
leiðir. Það er því full ástæða til þess
að biðja ferðalanga og útivistarfólk
að fara varlega á hverasvæðinu.
FLOTTUSTU GRILLIN í BÆNUM
LANDMANN
' Þetta er N
aðeins brot af
úrvalinu
Skoðið www.
grillbudin.is
Þýsk
framl
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
VERÐ AÐUR
69.900
VERÐ AÐUR
54.900
VERÐ AÐUR
79.900
Grillbúðin
VERÐ AÐUR
19.900
WÆ