Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
Athafna- og framkvæmdastjórnmál eru ekki vænleg nema
stefnan sé fyrirfram ákveðin og skýr. Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, situr undir harðri gagnrýni fyrir að
vinna álveri í Helguvík brautargengi og fleiri málum sem
lúta að einkarekstri. Orkumál á Reykjanesi eru í brenni-
, depli. Sveitarstjórnir á Suðurnesjum komust lífs af þegar
fara átti í útrásarverkefni með REI í Reykjavík. „Stefnan
þarf að vera skýr og ákvarðanatakan fumlaus," segir Árni.
W/.
■
Árni Sigfússon
Umræöa um umhverfis-
mál er nauösynleg til
þess að við nýtum
auðlindirnarmeð
skynsamlegum hætti,"
segir Árni.
„Ef menn ætla að stunda svokölluð
athafnastjórnmál er algjört skilyrði
að stefnan þar að baki sé alveg tær
og klár," segir Árni Sigfusson, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ. Bæjarstjórnin í
Reykjanesbæ með Árna í broddi íylk-
ingar hefur bæði komið á óvart og
verið gagnrýnd, meðal annars fyrir
að vinna sleitulaust að því að koma
álveri í Helguvík á koppinn. Fram-
kvæmdir eru nú hafnar í Helguvík
þrátt fyrir áköf mótmæli umhverfis-
verndarsamtaka og yfirlýsta óánægju
umhverfisráðherrans.
Bæjarfélagið, sem einnig er að-
aleigandi Hitaveitu Suðurnesja, hef-
ur lagt sitt af mörkum til stofnun fé-
lagsins Geysis Green Energy, sem er
útrásarfélag í orkugeiranum. Frek-
ari samvinna stóð fýrir dyrum með
sameiningu Geysis Green Energy og
Reykjavik Energy Invest, félags í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur. Þekkt er orð-
ið að ekkert varð af útrásarhugmynd-
um REI. Borgarstjórnin í Reykjavík
splundraðist. Á Reykjanesinu sátu
menn og drukku kaffi á meðan upp-
lausnarástand skapaðist í Reykjavík
sem ekki sér fýrir endann á. „Stefnan
þarf að vera skýr og ákvarðanatakan
fumlaus," segir Árni.
Umhverfi sem fólkið elskar
„Einkaframtakið er mín pólitíska
sýn. Ég er sannfærður um að menn
fari betur með eigið fé en annarra,"
segir Árni. Grundvallarhugmynd-
in í sveitarstjórnarstarfi sé að stuðla
að heill og hamingju íbúanna. „Heill
og hamingja eru reyndar hugtök sem
kunna að hljóma innantóm og sumir
gætu talið mig vera sósíalískan með
þessum orðum." Árni segir þessi
hugtök engu að síður lykilinn að því
að byggja upp lífvænlegt samfélag.
„Til þess að ná þessum takmörk-
um þurfum við að leggja áherslu á
þrennt. Hér þarf að vera atvinna,
menntun og visdegt umhverfi. Þetta
þrennt þarf að byggja upp þannig að
umhverfið sé í jafnvægi." Velferðar-
málin skipi vissulega sinn sess, en
það sé eftir sem áður sín trú að að-
ferðafræðin við að ná þessum tak-
mörkum liggi miklu frekar í einka-
framtaki en opinberri framkvæmd.
„Fyrir utan atvinnu og menntun
þarf að vera til staðar umhverfi sem
fólk elskar að búa í. Svo vinnum við
bara grimmt og fast og gefúm ekkert
eftír í þessum efnum."
Atvinnuleysið á Suðurnesjum
Á síðustu árum hafa Suðurnes-
in þjáðst af miklu atvinnuleysi. Sjö
hundruð störf hurfu, svo að segja á
einni nóttu árið 2006, þegar Banda-
ríkjamenn drógu herafla sinn ffá
landinu. f aðdragandanum höfðu
umsvif í sjávarútvegi á Reykjanesi
snarminnkað á tíu árum eða svo.
„Við höfúm ekki vælt hátt og ekki
hrópað á hjálp," segir Árni. „Miklu
frekar höfum við reynt að vinna úr
þeim tækifærum sem myndast hafa
á sama tíma." Hann segir að um langt
skeið hafi það verið svo að atvinnu-
leysi á Reykjanesi sé yfir landsmeð-
altali. „Suðurnesin eru nokkurs kon-
ar mælistika á þróun atvinnuleysis
í landinu. í andránni eru til staðar
ýmis hættumerki og mér er sagt af
forkólfum í sjómanna- og verkalýðs-
félögum að þar á bæ verði menn var-
Framhald
á næstu síðu