Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 SUDURNES DV GLÆPAALDA ÍVOGUM VAR STÓRLEGAÝKT Róbert Ragnarsson, bæj- arstjóri í Vogum, gerir grein fyrir stöðu mála. „Fréttir um að hérna hafi hreiðr- að um sig samfélag glæpamanna eru ýktar og ónákvæmar," segir Ró- bert Ragnarsson, bæjarstjóri í Vog- um á Vatnsleysuströnd. „Við héldum hérna íbúafund með aðstoð Jóhanns R. Benediktssonar lögreglustjóra og hans manna. Þessi fundur snerist fyrst og fremst um forvarnir og hvernig við ædum okkur að byggja upp heilbrigt samfélag," segir Róbert. Margt hafði þó lagst á eitt. Annþór Karlsson, margdæmdur ofbeldis- og fíkniefnamaður, hafði búið sér heim- ili í Vogum. Seint í haust hafði Ann- þór komið fyrir nokkrum fjölda glæsi- bifreiða á iðnaðarsvæði við höfnina í Vogum, fyrir félaga sinn, veitinga- mann í Reykjavík. Kveikt var í bflun- um og brunnu þeir til kaldra kola. Málið er óupplýst. Skömmu seinna birtist þjóðinni saga af handrukkun og ofbeldi í Vogunum í sjónvarps- þættinum Kompási. Annþór Karlsson var svo handteldnn nú eftir áramótín, grunaður um aðild að umfangsmiklu fíkniefrtasmygli. „Málið er það að það sem birtist í Kompás-þættinum var einangrað til- vik, erjurfjögurra unglinga. Lögreglan greip inn í þetta og það mál er núna afgreitt út af borðinu," segir Róbert. Átak bæjarbúa gegn ofbeldi og glæpum segir Róbert að sé eðlilegt. „Núna er í gangi sérstakt sex vikna langt foreldranámskeið. Þetta starf Bæjarstjórinn í Vogum Róbert Ragnarsson segir að fréttir um glæpasamfélag (Vogum á Vatnsleysu- strönd hafi verið ónákvæmar. Hins vegar vanti sárlega aðstöðu fyrir lögregluna f bænum. miðast við að hlúa að og hvetja börn- in til að stunda íþróttir og heilbrigt líf- erni. Það sem okkur vantar kannski sárast hérna er aðstaða fyrir lögregl- una." Bæjarstjómin í Vogum hefur enda sent frá sér ályktun um að slflct sé nauðsynlegt. Skapa verði stöðug- leika í samfélaginu. Sjálfur er hann önnum kafinn við að reka bæjarfélag sem er í örum vexti. Ibúum í Vogunum hefur fjölg- að um tuttugu prósent frá því árið 2006 og eru nú um 1.200. Róbert og bæjarstjórnin vinna að skipulagi nýs miðbæjar íbænum, ásamt íbúabyggð með 230 nýjum íbúðum. „Hér hefur í rauninni aldrei verið miðbær. Það verður loksins núna. Þetta nýja hverfi hringast í kringum klett sem er í ná- grenni við aðalæðina inn í bæinn. GARÐUR 100 ara 1908 - 2008 KOMDU útIGARÐ Á Garðskaga er byggðasafn, veitingahús og tjaldstæði. Einstakt svæði til fuglaskoðunar. ( bænum eru einnig listasmiðjur, íþróttamiðstöð, sundlaug og 18 holu golfvöllur. I \ Reykjanmbwr r —^y^jcr www.svgardur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.