Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
DEKUR FYRIR DÝRIN
Atli Þorsteinsson og
Kristín Davíðsdóttir
, reka Hundaskólann K9
í Reykjanesbæ. í sumar
flytja þau í stærra hús-
næði og ætla að stórefla
þjónustuna.
Hundaskólinn K9 í Keflavík flytur
í nýtt og glæsilegt húsnæði í sum-
ar. Nýja húsið er fjórum sinnum
stærra en það gamla og allt stefnir í
að starfsemin verðir fjórum sinnum
^öflugri.
Nú þegar býður K9 upp á hót-
elgistingu, þjálfun, snyrtingu og
hundanudd. K9 getur tekið við
þrettán hundum í dag en plássin
verða alls fjörutíu eftir stækkunina.
Á nýja staðnum verður líka boðið
upp á hótelgistingu fyrir ketti en alls
verða um tuttugu búr fyrir þá.
Mikið frjálsræði
„Hundamir eru alsælir hjá okk-
ur," segir Atli Þorsteinsson sem rek-
ur hundaskólann ásamt eiginkonu
sinni, Kristínu Davíðsdóttur. Að-
spurður segist Atli ekki geta kvartað
undan miklum hávaða. Það sé að-
allega þegar nýir hundar koma inn.
„Á nýja staðnum verður uppbygg-
ingin á búrunum hins vegar þannig
að hundarnir sjá ekki hver annan."
Hundarnir eru þó alls ekki lokaðir
inni í búrum allan daginn. Allir hafa
þeir sitt útisvæði og geta ráfað inn
og út. „Sumir fá að fara út saman en
það fer þó allt eftir því hvernig þeim
semur."
Á útisvæðinu
Á hótelinu hefur hver
hundureittbúrinni
og eitt búr úti.
Áhyggjulaust frí
Þetta verður sannkallað lúxus-
hótel samkvæmt lýsingum Atla og
ljóst er að þeir sem elska hundana
sína meira en flest annað geti far-
ið áhyggjulausir í fríið sitt. Mikið af
fólki sem nýtir sér hótelaðstöðu K9
er fólk alls staðar af landinu, á leið
til útlanda í frí. „Við bjóðum líka upp
á þá þjónustu að geyma bíla fólks á
meðan það er í útlöndum. Við keyr-
um það þá út á völl og geymum svo
bflinn hjá okkur. Svo þegar fólk kem-
ur aftur heim sækjum við það á flug-
völlinn á bflnum með hundinn, nú
eða köttinn um borð."
Hundasund
í nýja húsnæði K9 verður sérhönn-
uð sundlaug fyrir hunda. í henni verð-
ur hlaupabretti. „Það er mjög gott fyr-
ir hunda sem vinna mikið, eins og til
dæmis veiðihunda." Auk þess að láta
dekstra við sig geta hundarnir líka
verið í þjáifun á meðan eigendurn-
ir eru í ffíi. Þeir geta auk þess fengið
læknishjálp ef þörf er á en dýralækn- asta aðstaða fýrir þessar tegundir
arnir Hrund Hólm og Gísli Sverr- af dýrum og sú flottasta. Það er ekki
ir Halldórsson ætla að flytja stofuna nokkurspurning,"segirAtliaðlokum,
sína, Dýralæknastofu Suðurnesja, í og spenningurinn fyrir verkefninu
nýja húsið. „Þetta verður fullkomn- leynir sér ekki. berglind&dv.is
Mikill hundavinur Kristín
Davíðsdóttir rekur hundaskólann
K9 í Reykjanesbæ ásamt eigin-
manni sínum, Atla Þorsteinssyni.
Mibid
líftint í nuddpotti frá
úrval af nuddpottum á lager
1S
Poulsen Skeifan 2 Sími: 530 5900 Fax: 530 5910
www.poulsen.is / poulsen@poulsen.is
óulsen
partur af lífinu
&