Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 SUÐURNES DV 1.100 manns búa á Vallarheiði þar sem skólinn Keilir heldur úti frumgreinanámi. Fyrir dyrum er að koma á fót flugakademíu og tækninámi á háskólastigi með möguleikum á rannsóknarverkefnum í samstarfi við íyrirtæki á Suðurnesjum. Á svæðinu er barnaskóli, leik- skóli, verslun og brátt verður opnaður veitingastaður. Alls fimm þúsund manns geta búið á svæðinu. i$Í8*saÉaS!| ÍIMÉDiaaléÆ Vallarheiði Tvö þúsund íbúðir eru á Vallarheiði. Þar geta allt að fimm þúsund manns búið sér heimili. 1.100 manns búa nú í fimm hundruð ' íbúðum á gamla vamarsvæði Bandaríkjahers á Vallarheiði. Inn á svæðið er ekið í gegnum margfalt öryggishlið hersins. Af ósjáiffáðri tillitsemi virðast allir sem aka í gegnum hliðið athuga hvort einhver ætli að skoða vegabréfið. Vitanlega situr enginn vörður í lúgunni. f húsnæði kirkjunnar inni á Vallarheiði er skólinn Keiiir. Hann sækja tvö hundruð nemendur og gert er ráð fyrir að þeir verði fj ögur hundruð strax næsta vetur. Á Valiarheiðinni er einnig bamaskóli sem rekinn er í anda Hjallastefnunnar svonefndu. «t>ar er einnig leikskóli sem Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, segir vera þann stærsta á iandinu. „Kannski það skemmtilegasta við þetta verkefni er að hafa á aðeins einu ári breytt draugabæ í lifandi samfélag. Hér er íþróttahús og verslun og brátt verða opnuð veitingastaður og kaffihús," segir Runólfur. Landsins stærsti leikskóli Á Valiarheiði em tvö þúsund íbúðir. Aðeins fimm hundruð em þegar í notkun. Alls rúmar svæðið því um fimm þúsund íbúa og gera stjórnendur Keilis ráð fyrir að þeirri íbúatölu verði náð fyrr en varir. „Það sem vakir fyrir okkur er að bjóða upp á gott og ódýrt < leiguhúsnæði. Miðað við stöðuna á leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu er eftirspurnin sannarlega fyrir hendi," segir Runólfur. Þegar hefur myndast biðlisti eftir húsnæði á Vallarheiði. Það em ekki aðeins nemendur við Keili sem búa á svæðinu, heldur einnig nemendur í háskólum höfuðborgarinnar og aðrir sem sjá sér hag í því að búa á Vallarheiðinni, þar sem hægt er að leigja 170 fermetra íbúð á 80 þúsund krónur á mánuði. Ókeypis er í strætó til Reykjavíkur. Fjórir klasar og rannsóknir m í vetur hefur verið boðið upp á svokaliað frumgreinanám við Keili. Námið er hugsað sem tenging og undirbúningur fyrir háskólanám, «einkum fyrir fólk sem af einhveijum ástæðum hvarf ffá menntaskólanámi eða hefur bakgmnn í annars konar námi. Námsframboð verður aukið talsvert næsta vetur en Runólfur er ekki tilbúinn til þess að segja frá því í smáatriðum. „Við emm að ljúka við að setja þetta saman og verðum tilbúin til þess að kynna námsframboðið innan mánaðar." Árni Sigfússon, stjómarformaður Keiiis, segir ffamtíðarsýn skólans byggjast á fjórum svokölluðum námsklösum. Einn þeirra snýr sérstaklega að auðlindum og tækni þar sem áherslan verður á samstarf við hátæknifyrirtæki á Suðurnesjum. Við skólann verður svo sérstakur samgöngu- og öryggisklasi, þar sem áætlað er að komið verði á fót sérstakri flugakademíu þar sem hægt verður að læra nánast allar hiiðar á flugi og flugrekstri. Þegar er hafin kennsla í íþrótta- og heilbrigðiskiasa í sérstakri íþrótta- akademíu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Að endingu verður komið á laggirnar klasa skapandi greina, þar sem áhersla verður lögð á listgreinar og nýsköpun. Flugakademía í smíðum Fréttir af fýrirhugaðri flugakad- emíu fara hátt meðal nemenda við Keili og starfsmanna í flugi á Keflavflcurflugvelli. Samkvæmt heim- ildum DV verður kennsla flugþjóna og -freyja í samstarfi við Icelandair, sem þegar heldur úti öflugri þjálfunardeild. Einnig er fyrirhugað að kaupa eða leigja sex kennsluflugvélar, tvær „VIÐ HUGSUM FYSTOGFREMST UMTÆKIFÆRI Á MARKAÐI. EF EFTIRSPURNIN ERTILSTAÐAR REYNUMVIÐAÐ SINNA HENNI" tveggja hreyfla vélar og fjórar eins hreyfils. Keilir hefur þegar falast eftir aðgangi að flugskýli á Keflavíkur- flugvelli undir þessar flugvélar auk þess sem rætt hefur verið um kaup á flughermi. Stjórnendur Keilis vilja ekki segja nánar frá þessu flugnámi fyrr en allir lausir endar hafa verið hnýttir. „Ég get hins vegar sagt það að við hugsum fyrst og fremst um tækifæri á markaði. Ef eftirspumin er til staðar reynum við að sinna henni," segir Rimólfur. sigtryggur@dv.is Keilir Skólinn á Vallarheiöinni er starfræktur í kirkju bandaríska hersins. Sjálf kirkjan er nú í eigu Þjóðkirkjunnar en flestar eignir á Vallarheiði eru í eigu fasteignafélagsins Háskólavalla. Keilir Atlantic Center of Excellence Verslunin Verslun hefur verið opnuð þar sem íbúar geta sótt sér flestar nauðsynjar. Líkamsræktin Á svæðinu hafa íþróttahúsið og líkamsrætin þegar verið tekin I notkun. Einhver bið verður á að sundlaugin verði opnuð vegna bilunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.