Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Side 54
54 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
ÆttfræBi DV
30 ÁRA
■ Wattanee Boodudom Hverfisgötu 50,
Reykjavík
■ Irene Greenwood Povisen Bæjartúni 17,
Kópavogur
■ Már Grétar Arnarson Ásabraut21, Sandgerði
■ Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir Langholtsvegi
122, Reykjavik
■ Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Ystaseli 19,
Reykjavík
■ Davíð Þorsteinsson Grettisgötu 22b,
Reykjavík
■ Heiðar Þór Eyþórsson Garðabraut 16,
Akranes
40 ÁRA
■ Harpa Ríkharðsdóttir Fannafold 190,
Reykjavík
■ Gunnar Árnason Óðinsgötu 20a, Reykjavík
■ Guðjón Garðar Sigurðsson Aski, Djúpivogur
■ Ólöf Ásta Karlsdóttir Helgugrund 1,
Reykjavík
■ Karvel Halldór Árnason Svöluhöfða 23,
Mosfellsbær
■ María Guðlaug Hrafnsdóttir Þorláksgeisla
60, Reykjavík
■ Hanna Júlía Kristjánsdóttir Hamrabergi28,
Reykjavík
■ María Lea Guðjónsdóttir Súluhöfða 3,
Mosfellsbær
■ Óskar Páll Óskarsson Kristnibraut 53,
Reykjavík
■ Örlygur Andri Ragnarsson Þrastarási46,
Hafnarfjörður
■ Hildur Loftsdóttir Njálsgötu 82, Reykjavík
50ÁRA
■ Wieslawa Maria Kluk Vitastíg 13, Bolungar-
vík
■ José Carlos Mendes Bæjarhrauni4, Hafnar-
fjörður
■ Örn Sigurhansson Kirkjubraut 8, Seltjarnar-
nes
■ Friðrik Þorbjörnsson Grenimel39, Reykjavík
■ Ari Arason Lækjargötu 1, Hvammstangi
60 ÁRA
■ Helga Eygló Guðlaugsdóttir Seljabraut36,
Reykjavík
■ Hrafn Harðarson Meðalbraut2, Kópavogur
■ Herdís Zophoníasdóttir Bjarkarstíg 3,
Akureyri
■ Haraldur Bragi Ólafsson Hjarðarhvoli,
Egilsstaðir
■ Ingibjörg Andrésdóttir Einbúablá 25,
Egilsstaðir
■ Siqurður Kristjánsson Birtingakvísl 42,
Reykjavík
■ Guðlaug Þ Guðmundsdóttir Reiðvaði 7,
Reykjavík
70 ÁRA
■ Sigurður Baldvinsson Herjólfsgötu 6,
Hafnarfjörður
■ Ari Eggertsson Álfaskeiði 102, Hafnarfjörður
75 ÁRA
■ Einar Haraldsson Mánasundi 3, Grindavík
■ Pálmi Jón Guðmundsson Hraunvangi 7,
Hafnarfjörður
■ Kjartan Bjarni Kristjánsson Norðurbyggð 31,
Akureyri
80 Ara
■ Erla S Guðmundsdóttir Gullsmára 9,
Kópavogur
■ Þorbjörg Jóhannesdóttir Holtagerði 61,
Kópavogur
■ Ingibjörg F Hjartar Háholti 7, Akranes
■ Jón Rósberg Stefánsson Furugerði 1,
Reykjavík
85 ÁRA
■ Ingibjörg Daðadóttir Norðurbrún 1,
Reykjavík
■ Sveinn Sæmundsson Kópavogsbraut 96,
Kópavogur
■ Jón Bogason Sæbólsbraut 32, Kópavogur
90 ÁRA
■ Sesselja Þórðardóttir Kirkjuvegi 11, Reykja-
nesbær
95 ÁRA
■ Unnur Guðjónsdóttir Hjallaseli55, Reykjavik
Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir er þrítug í dag:
Keypti sér íbúð í tilefni afmælis
„Mér líður ekki eins og ég sé þrítug," seg-
ir Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir, afmælis-
barn dagsins. Hólmfríður fagnar þrítugs-
afmæli í dag, en vill ekki kannast við að
þrítugsafánginn setji sér einhverjar höml-
ur. „Eg kann ekki alveg hvernig aldursfor-
múlan gengur, svo ég fer ekki eftir neinum
reglum." Hólmfríður hefur ekki enn ákveð-
ið hvernig hún ætli að fagna áfanganum, en
býst þó heldur við að bjóða til veislu, en að
halda til útlanda, eins og móðins er í dag.
„Ég er alltaf tilbúin til að halda veislu, það
væri skemmtilegra en að fara til Kanarí og
gera ekki neitt. Heldur að fá ættingja og vini
og eiga gleðistund með þeim sem mér þykir
vænt um." Eitt gerði þó Hólmfríður í tilefni
afmælisins og það var að fjárfesta í sinni
fyrstu íbúð, en þrátt fyrir ástand íslenska
efnahagsins, segir hún að annað hafi ekki
verið í boði en að kaupa sér íbúð núna. „Ég
var að klára að mennta mig síðasta vor. Nú
er ég löglegur félagsráðgjafi eftir fimm ára
nám." Hólmfríður segir starfið mjög gef-
andi og skemmtilegt, en bætir við að launin
mættu þó vera örlítið betri.
Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir Útskrifaðist frá
Háskólanum sem félagsráðgjafi siðasta vor.
„Ég er búin að vera á smá ellibömmer
í eiginlega allan vetur en er búin að hrista
hann af mér núna," segir Hildur Loftsdótt-
ir, nemi og frílans blaðamaður, sem er fer-
tug í dag. „Ég held að það sé yfirleitt þannig
þegar fólk stendur á svona tímamótum að
þá fari það að íhuga lífið og tilveruna. Hvar
það stendur á öllum vígstöðvum, miðað
við aðra og eigin væntingar. Svo fattaði ég
að það þýðir ekkert að taka sjálfa sig og líf-
ið of alvarlegra og er bara hress með þetta
allt saman."
Hildur segist vera mjög sátt við þann
stað sem hún er á í lífinu nú þegar fimm-
tugsaldurinn er fram undan. „Ég hélt nátt-
úrlega að ég yrði ótrúlega rík og alit svo-
leiðis á þessum tímamótum. En það fer
eitthvað mjög lítið fyrir þessu ríkidæmi.
Ég verð þó að segja að ég er ótrúlega sátt.
Ég á tvö æðisleg börn og er í háskólanum
að læra bókmenntir og ritlist sem er alveg
hrikalega skemmtilegt, auk frílansskrifa á
Mogganum. Svo er ég að fara að flytja til
Ameríku í haust sem mér finnst ákaflega
spennandi. Þannig að það er bara allt að
gerast og allt mjög skemmtilegt."
HildUr og fjölskylda ætla að flytja til
New Jersey en maðurinn hennar er það-
an. „Við ætlum að leyfa stelpunum okk-
ar að vera smá Ameríkanar líka. Annars
erum við hjónin bæði að hugsa um að fara
í framhaldsnám í ritlist."
Með kampavín í annarri
Og afmælisbarnið er ekki við eina fjölina
fellt hvað varðar útlönd því afmælisdeg-
inum verður varið fjarri heimahögunum.
„Dagurinn verður geðveikur. Það fyrsta sem
ég geri þegar ég vakna á morgun [í dag] er
að taka flug til Parísar með kampavín í ann-
arri. Það verður geðveikt stuð," segir Hildur
og má greina milda tilhlökkun í röddinni.
Hún ætlar að dvelja í stórborginni í
nokkra daga ásamt manninum sínum en
Hildur bjó í Suður-Frakklandi í mörg ár.
„Maðurinn minn hefur aldrei komið til Par-
ísar þannig að ég ætla að kynna hann fyrir
borginni. Mér finnst þetta ein af þeim borg-
um sem maður bara má ekki missa af, ef
þetta er hreinlega ekki bara fallegasta borg
í heimi. Það er líka svo skemmtileg stemn-
ing þarna."
Draumurinn að verða
barnabókahöfundur
Á Hildi er að heyra að hún sé ekki mjög
spennt fyrir að halda veislu til að fagna af-
mælinu. „Æ, ég veit það ekki. Á ég ekki bara
að geyma það í tíu ár?" spyr hún og hlær. Þó
segist Hildur vera mikið afmælisbarn. „Ég hef
mjög gaman af afmælum. Þá ekkert síður af-
mælum hjá öðrum." Þrítugsafmælið sitt segist
Hildur hafa haldið upp á heima hjá foreldrum
sínum á Akureyri. „Þetta var svona á seinustu
stundu veisla. Ég bauð bara hinum og þess-
um. Það kom jafnvel fólk sem ég þekkti ekki
neitt. Það var bara mjög gaman."
Og Hildur lítur áratuginn fram und-
an nokkuð björtum augum. „Það er margt
spennandi fram undan, tíl dæmis flutningur-
inn til Bandaríkjanna og vonandi flyt ég aft-
ur til baka," segir Hildur. Hvað skrifin varðar
segist hún ætla að læra að skrifa fyrir börn.
„Ég verð vonandi búin að koma einhverju
skemmtilegu frá mér, helst sem mestu. Það
er samt ekkert niðurneglt. Svo rífur lífið líka
stundum í mann og hendir manni þangað
sem maður ætlaði sér ekkert að fara. Það er
líka bara ágætt." kristjanh@dv.is
HILDUR L0FTSDÓTTIR
HÁSKÓLANEMI OG BLAÐAMAÐUR