Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Qupperneq 61

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Qupperneq 61
DV Fálkið MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008 61 NALGAST 60 MILLJONIR: Rúmlega 53.000 manns hafa lagt leið sína á myndina Brúðguminn eftir Baltasar Kormák. Myndin er orðin töluvert stærri en Astrópía sem átti árið í fyrra en lítið hefur farið fyrir þessari vel- gengni Brúðgumans. Baltasar, sem er staddur i Los Angeles að undirbúa næstu mynd sína, segir velgengnina hafa komið sér á óvart. „Ég bjóst nú ekki við þessu," segir Baltasar Kormákur leikstjóri um velgengni myndarinnar Brúðgumans. „Ég hefði verið mjög sáttur við svona 15 til 20 þús- und manns," segir Baltasar en Brúðguminn nálgast 60 milljónir króna í aðgangseyri. Á þeim 12 vikum sem myndin hefur verið sýnd hafa 53.437 manns lagt leið sína á myndina og hún þénað 58.465.370 krónur í aðgangseyri. Þetta verður að teljast mjög gott, ekki síst í ljósi þess að Astrópía, sem var tekju- hæsta mynd síðasta árs, var með rúmar 45 milljónir króna í tekjur. Brúðguminn er byggður upp á verkinu Ivanoff eff- ir Tsjekhov en myndin var unnin samhliða sýningu á Ivanoff sem Baltasar setti upp í Þjóðleikhúsinu á síðasta ári. „Þar sem þessi mynd er svona meira art- house þá miðaði ég hana ffekar við myndir eins og Nóa Albínóa og þannig myndir sem eru að fá í kring- um 15 til 20 þúsund manns," en aðsóknin á myndina hefur verið jöfn og þétt. „Hún byrjaði reyndar ekk- ert vel og þriðja vikan var stærri en sú fyrsta. Síðan bara hélt hún fluginu." Baltasar tekur fram að þó að hann hafi búist við minni aðsókn og gert myndina á öðrum forsendum en vanarlega þá sé hann mjög sáttur. „Maður vonast auðvitað alltaf til þess að fólk komi að sjá myndimar manns. Það kemur þó nokk- uð á óvart hvað íslendingar em hrifnir af myndum sem gætu kallast í þyngri kantinum eins og til dæm- is Hafið á sínum tíma. Þetta er nú ekki beint Jim Carrey-brandarar og sprengingar." Það lítur allt út fyr- ir að Brúðguminn sé þegar búinn að tryggja sér titilinn „Stærsta mynd ársins 2008" en ekki er margra mynda að vænta á árinu sem gera tilkall til meiri aðsóknar. Stóra plan Ól- afs Jóhannessonar er þó líkleg til alls en hún hefur á tæpum tveimur vikum þénað rúmlega 13 milljónir þó ólíklegt sé að hún slái Brúðgumann út. Baltasar er staddur útí í Los Angeles um þessar mundir þar sem hann undirbýr . myndina Run for Her Life. „Ég er í undir- ' búningi á fullu núna og fer til Nýju-Mex- íkó um helgina," en þar verður myndin tekin upp. Dermot Munroley leik- ur aðalhlutverkið í myndinni en ekld hefur verið ráðið í kven- lilutverldð. „Við erum búnir að finna hana," en Baltasar seg- ir að eftir eigi að ganga fr á samn- ingum og því geti hann eldt- ert meira sagt. asgeir@dv.is BRÚÐGUMINN Myndin hefur hægt og hægt malað gull. j fTí I W hti ií * Í4 f o'4 I m I ! ____L H w m :-«o- /' - BALTASAR Gerir það .1 , fc gott með Brúðgumanum SENN LÍÐUR AÐ LOKUM LEITARINNAR AÐ SÖNGVARA í BANDIÐ HANS BUBBA: 13.000Á STÓRAPLANIÐ Nýjasta íslenska myndin, Stóra planið eftír Ólaf „de Fleur" Jó- hannesson sem skartar þeim Pétri Jóhanni Sigfússyni og Egg- erti Þorleifssyni í aðalhlutverk- um, heldur áffarn að laða ís- lendinga í kvikmyndahúsin. Eftir helgina sem leið höfðu 12.568 manns lagt leið sína á myndina en hún hafði þá verið í sýningu í 10 daga. Miðað við að rúmlega 1.000 manns hafi séð myndina á dag fram að því má gera ráð fyrir að rúmlega 13.000 manns hafi nú séð myndina. Eftír sunnu- daginn hafði myndin þénað 13.386.900 krónur. RAKAR PUNGINN DAGLEGA í nýjasta tölublaði Monitors sem kemur út í dag er poppstjarnan og einkaþjálfarinn Egill „Gillzenegg- er" Einarsson í hinu svokallaða Satt og logið viðtali. Þar senda lesendur Monitor-ritstjórninni spurningar sem viðmælandinn svarar síðan. Ein spurningin var hvort Gillz færi reglulega í brasilískt vax og svaraði hann þá: „Ég raka nú yfirleitt á mér punginn á hverjum degi en það er fínt að breyta til og skella sér í bras- ilískt af og tíl." BUBBI Eftir rúmar tvær vikur kemur i Ijós hver veröur sönqvarinn i bandi kongsms. „Það hefur aldrei verið gefið upp að það ætti eitthvað að fara að túra. Ef maður les það sem sagt hefur verið þá á vinningshafinn að fá þrjár milljón- ir króna og plötusamning," segir Páll Eyjólfsson hjá Prime og umboðsmað- ur Bubba Morthens. Senn líður að lok- um þáttarins Bandið hans Bubba á Stöð 2. Nú standa þrír söngvarar eft- ir sem munu keppa í úrslitaþættinum þann 25. apríl. Sigurvegarinn á að fá plötusamning og þrjár milljónir króna í verðlaun en DV hefur heimildir fyrir því að ekkert hafi verið rætt við hljóm- sveitarmeðlimi um að halda áfram spilamennsku með sigurvegaranum eftir að þáttaröðinni lýkur. Páll segir að ekki hafi komið til tals að fara á sveitaballarúnt eftir að þátt- unum lýlcur. „Að sjálfsögðu verður eitthvað gert en það hefur ekki ver- ið ákveðið hvernig það verður gert. Er ekki rétt að finna vinningshafann fýrst, hafa þetta allt í réttri röð og svona?" spyr Páll. Aðspurður segir hann heldur ekld ákveðið hvenær farið verði í stúdíó til að taka upp plötuna sem um ræðir, til dæmis hvort planið sé að gera það strax í vor eða bíða með það fram á haust. „Það verður bara tekin ákvörðun um það með vinningshafanum," segir Páll. „Það er erfitt að velja sér tíma með einhverjum sem maður veit ekki hver er. Þetta eru því pínulítíð ótímabærar pælingar." kristjanh@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.