Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008
Fréttir DV
Húnvetningum
borgið
Læknar á Blönduósi sem
sögðu upp störfum sínum
frá 1. aprfl vegna deilna við
heilbrigðisstofnun staðarins
hafa fallist á að fresta uppsögn
sinni til 1. maí. Þetta þýðir
að ekki verða breytingar
á læknisþjónustunni sem
Húnvetningum hefúr staðið
til boða. Deila læknanna var
við heilbrigðisstofnunina á
Blönduósi vegna túlkunar á
kjarasamningi.
Endurskoðar
meðlag
Ríkisstjórnin samþykkti
í gærmorgun tillögu Björns
Bjarnasonar dómsmálaráð-
herra um endurskoðun á kerfi
meðlagsgreiðslna. Saman-
burðarrúttekt dómsmála-
ráðuneytisins hefur leitt í ljós
að íslenska kerfið hefur þróast
mun minna en sambærileg
kerfi í nágrannalöndunum.
Björn Bjarnason hefur
ákveðið að skipa nefnd sem
feryfir ákvæði um framfærslu
barna í lögum. Nefndin at-
hugar hvort núverandi fyrir-
komuleg sé sanngjarnt fyrir
börn og foreldra. Nefndinni
verður uppálagt að kalla eftir
sem flestum sjónarmiðum.
Þrjátíu sagt upp
Þrjátíu starfsmönnum hjá
steypustöðinni Mest hefur verið
sagt upp störfum. Forsvarsmenn
fyrirtækisins segja að um neyð-
araðgerð sé að ræða. Uppsagn-
ir óumflýjanlegar vegna bágrar
afkomu undanfarið og ástands-
ins í efnahagsmálum. Á þriðja
hundrað manns hafa til þessa
unnið hjá fýrirtækinu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnu-
málastofrmn hefur stofnuninni
ekki borist ábendingar um fleiri
hópuppsagnir. Þeir hafi kann-
að málin í kjölfar þessara fregna
en ekki hafi heyrst af svipuðum
aðgerðum annarsstaðar úr at-
vinnulífinu.
Ávíttir
starfsmenn
Átta starfsmenn Land-
spítalans hafa verið ávíttir af
stjórnendum fýrir alvarlegt
trúnaðarbrot í starfi. Brotið
felst í því að hnýsast í sjúkra-
skýrslu frægs einstaklings
sem hlotið hafði þjónustu á
spítalanum. Upphaflega var
tugur starfsmanna grunað-
ur um trúnaðarbrot en tveir
þeirra náðu að sýna fram á
gildar ástæður þess að hafa
skoðað skýrsluna. Upp komst
um athæfi starfsmannanna
við reglubundna innanhússr-
annsókn og fagna stjórnendur
því að eftirlit innan spítalans
virki sem skyldi. Þeir fordæma
engu að síður hnýsni und-
irmanna sinna en töldu of
flókið lagalega að þessu sinni
að beita öðrum refsingum en
ávítum.
Sökum tækjabilunar í kortalesara bensínstöðvar Atlantsolíu voru bensínkaup við-
skiptavina fyrirtækisins í tvo daga árið 2006 ekki gjaldfærð. Nú, tveimur árum síðar,
er fyrirtækið að rukka skuldina með því að færa tveggja ára gamla bensinúttekt á
kreditkort viðskiptavinanna. Guðmundur Ingólfsson lífeyrisþegi er einn þeirra og
skilur ekkert í þessum vinnubrögðum.
RUKKA2ARA
GAMLASKULD
rw
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: traustiaxdv.is
Guðmundi Ingólfssyni lífeyrisþega
brá heldur betur í brún á dögunum
er hann varð var við úttekt á kredit-
kortið sitt vegna bensínúttektar hjá
Atlantsolíu. Þessi úttekt er nefnilega
2 ára gömul að sögn olíufýrirtækis-
ins.
„Þetta er dálítið skrítinn
reikningur sem ég fékk sendan þar
sem Atlantsolía er að rukka inn 2 ára
gamla skuld. Mér finnst mjög skrítið
að fá þetta í hausinn núna en þeir
segja að þetta sé vegna tækjabilunar
sem átti sér stað fyrir tveimur árum,
árið 2006," segir Guðmundur.
Fyrir tveimur árum er Guðmundi
gefið að hafa tekið bensín á bensín-
stöð Atíantsolíu með því að greiða
með kreditkorti sínu, Mastercard-
korti. Núna, tveimur árum síðar, rak
hann augun í umrædda bensínút-
tekt á kreditkortayfirliti sínu.
Harma mistökin
„Fyrst hélt ég hreinlega að
fýrirtækið væri að reyna að ná sér í
aukapening en síðan kom í ljós að
þetta er svona gömul skuld. Ég er
mjög hissa á því, hafi verið um bilun
að ræða, hvers vegna þetta var ekki
lagfært þá um næstu mánaðamót.
Mér finnst þessi vinnubrögð ansi
merkileg og velti fyrir mér hvort
bilunin hafi verið víða þannig að
fýrirtækið þurfi að rukka fjölda
viðskiptavina um þessar gömlu
skuldir. Þegar ég leitaði skýringa á
þessum vinnubrögðum kenna þeir
hvor öðrum um, Atlantsolía og
Mastercard," segir Guðmundur.
Haukur Oddsson, forstjóri Borg-
unar, umboðsaðila Mastercard á
íslandi, tekur fulla ábyrgð á tækni-
mistökunum og harmar þau.
Aðspurður segir hann á bilinu
sjö til átta hundruð viðskiptavini
hafa orðið fyrir óþægindum vegna
mistakanna og tugur þeirra hafi
„í rauninni hefur fólk-
ið fengið mjög góðan
gjaldfrest á þessum
viðskiptum, við rukk-
um enga vexti að sjálf-
sögðu og engan inn-
heimtukostnað."
leitað skýringa hjá fýrirtækinu.
„Upphæðirnar hlaupa á einhverjum
milljónum. Kerfið okkar er mjög
umfangsmikið og þarna áttu sér stað
vinnslumistök. Við erum einfaldlega
að skuldfæra kortin núna og höfum
sent öllum viðskiptavinunum bréf
vegna málsins," segir Haukur.
Gerist sjaldan
Kortakerfi
bensínstöðva
Atíantsolíu tók við
greiðslukortum
tvo daga án þess að
greiðslurnar hafi
náð á leiðarenda.
Haukur segir slík
mistök í kortakerfi
geta komið upp. „Það
er náttúrlega erfitt að koma í
veg fyrir svona mistök en á heildina
séð gerist þetta afar sjaldan. Það
getur alltaf komið fýrir að búðir
gleymi að senda ffá sér bunka en
í þessu tilviki klikkaði kerfið. Við
berum ábyrgð á þessum mistökum,"
segir Haukur. Aðspurður segir hann
mistökin hafa uppgötvast í byrjun
þessa árs.
„Við höfum lagt gríðarlega
vinnu í að stemma
þetta af og
koma í veg fyrir
frekari mistök.
Viðskiptavinimir
tóku út bensínið
á sínum tíma og
við erum að
innheimta það
núna. I rauninni
hefur fólkið
fengið mjög góðan gjaldfrest á
þessum viðskiptum, við rukkum
enga vexti að sjálfsögðu og engan
innheimtukostnað. Auðvitað eru
þetta hins vegar óþægindi fýrir
viðskiptavinina og okkur þykir
afar leiðinlegt að þetta hafi komið
fyrir."
Við vinnslu fréttarinnar fengust
ekki svör frá Huga Hreiðarssyni,
markaðsstjóra Atlantsolíu.
AO
ATLANTSOLÍA
Bæjarfulltrúar ísafjarðarbæjar samþykkja kaup á fleiri fartölvum á kostnað bæjarins:
■■■■
Fartölvur fyrir bæjarfulltrúana
Bærinn kaupir
Bæjarráð (safjarðar
samþykkti kaup á
fartölvum fyrir
bæjarfulltrúa
bæjarins, líkt og
fyrir grunnskóla-
kennara bæjarins.
mz-i
'....ACrJL « -V
r '■X'.
Bæjarráð ísafjarðarbæjar hef-
ur samþykkt að kaupa fartölvur fýr-
ir alla bæjarfulltrúa bæjarins. Tölv-
urnar verða í eigu fsafjarðarbæjar
en þær verða afhentar bæjarfulltrú-
um til afnota vegna starfa sinna eins
og segir í samþykkt bæjarráðs frá 14.
apríl síðastliðnum. Ráðgert er að far-
tölvukaupin fyrir bæjarfulltrúana
kosti 850 þúsund krónur.
Á dögunum fengu kennarar við
Gmnnskóla Isafjarðar nýjar fartölv-
ur til afnota. Alls verða nálægt 100
vélar keyptar til allra gmnnskóla
Isafjarðarbæjar vegna yfirstandandi
fartölvuvæðingar gmnnskólakenn-
ara sveitarfélagsins. Fartölvur kenn-
aranna eru eign ísafjarðarbæjar, líkt
og fartölvur bæjarfulltrúanna, en
fastráðnir kennarar fá afnot af þeim
allan ársins hring. Fyrst samþykkti
bæjarráð að kaupa ríflega 60 fartölv-
ur fýrir kennarana en ákvað síðar að
kaupa 35 vélar til viðbótar. í kjölfarið
var samþykkt að bærinn keypti líka
fartölvur fýrir hina 9 bæjarMlrúa á
ísafirði. Varamenn fá ekki tölvu.
Svanlaug Guðnadóttir, formað-
ur bæjarráðs ísafjarðarbæjar, seg-
ir þessa ákvörðun hafa verið tekna í
kjölfar þess að kennarar fengur tölv-
ur sínar og það sé gert til að draga úr
pappírsnotkun í stjórnkerfinu. Hún
bendir á að mörg sveitarfélög hafi
fariðþessaleið.
„Þetta er bara sjálfsagt mál og ég
hef ekki orðið vör við neina gagnrýni.
Tölvurnar em vinnutæki og okkar
áform em að fara inn í pappírslaust
umhverfi þannig að fundargerð-
ir verði ekki útprentaðar. Það er um
að gera að spara regnskógana. Sum-
ir bæjarfulltrúar áttu tölvu og þurftu
því ekki að fá frá bænum og það er
alveg skýrt að bæjarfulltrúarnir eiga
ekki þessar tölvur," segir Svanlaug,
formaður bæjarráðs ísafjarðarbæjar.
trausti@dv.is