Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Qupperneq 7
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 30. APRlL 2008 7
einum né neinum, enda er þetta mitt
eigið sjálfskaparvíti. Vonandi geta
einhverjir litið á mína sögu sem víti til
vamaðar," segir hann.
Erfitt að sjá ekki börnin
reglulega
Kalli Bjami er þriggja bama faðir.
Hann á Sigríði Elmu, tíu ára, Maríus
Mána, sem varð sjö ára um daginn og
Jón Emil þriggja ára. Þau em honum
afar kær en til stóð að hann fengi að
hitta strákana sína í gærkvöldi. „Ég
hélt afmælisveisluna með Maríusi
Mána um daginn, rétt áður en ég fór
út. Það var frábært. Það er mér einn-
ig mikilvægt að fá að kveðja þá á eft-
ir. Það verður erfitt að takast á við að
hitta þá ekki reglulega," segir hann.
Kalli Bjarni virðist ótrúlega
yfirvegaður þótt hann sé á leið í
fangelsi. Aðspurður hvað sé erfiðast
við fangelsisvist hugsar hann sig
um svolitla stund og segir svo. „Það
sem ég kvíði mest er að geta ekki
umgengist börnin mín eins og ég
myndi vilja. Það verður erfitt að horfa
upp á þau leidd í gegn um stálhliðin,
vitandi það að þau em að fara að
heimsækja pabba sinn. Það tekur á,"
segir KaÚi Bjami niðurlútur. Hann
vonast eftir því að fá að sleppa út
þegar hann hefur aíþlánað tvo þriðju
hluta tímans en fangar hafa rétt á því
að óska eftir reynslulausn að þeim
tíma liðnum. „Vonandi bætist við
afþlánunina refsingin fyrir efnin sem
ég var tekinn með í Síðumúla. Það
væri ömurlegt að þurfa að fara út og
svo aftur inn. Ég vil bara klára þetta í
eitt skipti fyrir öll," segir hann.
Viðskiptafræðin heillar
Kalli Bjami vonast til þess að fá
tækifæri til að mennta sig, á meðan
hann afplánar dóminn. „Mig langar
að taka nokkra áfanga í viðskiptafræði.
Ég hef aldrei kunnað með peninga að
fara og það væri kærkomið tældfæri
að geta aflað sér þekkingar á því sviði,"
segir hann og bætir við að slík þekking
gæti reynst honum vel í tónlistinni.
„Ég veit að ég hef hæfileika á ýmsum
sviðum. Mig langar að fást við það
sem ég geri best, það er að spila og
semja tónlist. Vonandi get ég dútlað
eitthvað við það í fangelsinu," segir
hann. Hann segist líka ætla að nýta
sér þau meðferðarrúrræði sem em
í boði í fangelsinu, í þeirri viðleytni
sinni að koma lífinu á réttan kjöl.
Þakklátur fjölskyldunni
Kalli Bjarni er ekki bitur út í
samfélagið eða samferðamenn sína.
„Ég er fýrst og ffernst óendanlega
þakklátur fjölskyldu minni og vinum
fýrir þann stuðning sem þau hafa sýnt
mér. Mamma er búin að standa sig eins
og hetja. Hún hefur þurft að ganga í
gegnumýmislegtundanfarnamánuði
og ég er henni ótrúlega þakklátur, rétt
eins og fjölskyldu minni íNoregi. Það
hafa allir sýnt mér skilning nú þegar
ég er edrú," segir Kaili Bjami. Hann er
líka þakklátur Fangelsismálastofnun.
„Þeir sýndu mér skilning til að fara
úr landi, ganga frá mínum málum og
kveðja fjölskylduna. Það skiptir miklu
máli fýrir mig að geta farið sæmilega
rólegur inn í fangelsið. Ég er búinn
að koma þessu þannig fyrir að ég
verð hissa ef fjölskylda mín fær ekki
frið meðan ég er inni," segir hann en
fjölskyldunni bárust hótanir þegar
skuldunautar hans héldu að hann
ætlaði að svíkjast undan skuldum
sínum. „Eins og ég sagði áður skipti
öllu máli fýrir mig að vinna aðeins í
mínum málum áður en ég færi inn.
Ég kem vonandi frjáls maður út og
get byrjað lífið upp á nýtt," segir Kalli
Bjami að lokum.
m w■ '
i \
"Annaðhvort hættir
maðuralveg eða
endarýmist geðveikur
eða dauður.”