Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Page 11
DV Frittir
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 11
Á baðherberginu má sjá
leikfangafíl uppi á hillu
auk þess sem veggir eru
skreyttir með teikning-
um afdýrum afýmsu
tagi. ísvefnherberginu
hafa verið teiknaðar
stjörnur á veggi.
sjúkrahús alveg í skýjunum yfir
að fá að sitja í alvöru bíl, því hann
hefði hingað til aðeins séð bíl í
sjónvarpinu.
Elísabet, böm hennar sex og
móðir hittust í fyrsta skipti öll síðast-
liðinn sunnudag.
Athugar möguleika
á vitorðsmanni
Lögreglan hefur fengið áhuga á
tíðum ferðum Jósefs til Taílands, en
þau ferðalög stóðu í margar vikur í
senn. Nú velta menn fyrir sér hver hafi
séð um bandingjana í kjallaranum á
þeim tíma. Eins og fyrr segir útilokar
lögreglan aðild eiginkonu Jósefs að
málinu, og hann fúllyrðir sjálfur að
hann hafi verið einn. En á vörum
almennings brennur spumingin
hvemig Jósef gat án vitundar hennar
lifað í tvöfeldni öll þessi ár.
Enn á eflaust margt eftir að koma
í ljós í þessu óhugnanlega máli sem
hefur neytt austum'sku þjóðina
til naflaskoðunar því ótrúlega
mörg svipuð mál hafa komið upp
undanfarin ár. Ber þar hæst mál
Natösju Kampusch sem haldið var
fanginni í átta ár og þriggja systra,
sjö, ellefu og þrettán ára, sem ólust
upp í prísund af hálfu móður sinnar
við viðbjóðslegar aðstæður í myrkri
og sb't og léku sér við mýs og töluðu
eigið tungumál. Natasja Kampusch
hefur nú boðið fram aðstoð sína við
Eh'sabetu og böm hennar. Embætt-
ismenn í Amstetten sögðu að Elísa-
betu og bömum hennar sex yrði
boðinn sá möguleiki að hefja nýtt
líf undir nýjum nöfiium og myndu
„álcveða sfna eigin ffamtíð".
Kínverjar láta ekki skeika að sköpuðu:
Innsiqla heila borg
Kínversk stjómvöld munu ekki
taka nokkra áhættu þegar hlaupið
verður með ólympíukyndilinn í gegn-
um Lhasa, höfuðborg Tíbets. Höfuð-
borgin verður einfaldlega innsigluð
frá og með 1. maí og nú þegar er búið
að tilkynna bændum sem allajafna
koma til borgarinnar með aftirðir
sínar að það verði ekki leyfilegt eftir
þann dag. Gert er ráð fyrir að kynd-
illinn komi til borgarinnar 20. júní og
íbúum í nágrenni borgarinnar hefur
verið sldpað að gera ekki tilraun til að
koma inn í borgina.
Sem dæmi um hinn gífurlega við-
búnað sem stjórnvöld standa fyr-
ir verða allir borgarbúar að skrá sig
til að fá ný skilríki og ekki einu sinni
skólabörn em undanþegin þeirri
kvöð. Verulegs taugatitrings gætir á
meðal borgarbúa sem hafa hiaupið til
og hamstrað nauðsynjar þar sem sýnt
er að frjáls för um götur borgarinnar
verður ekki í boði á meðan kyndillinn
verður innan borgarmarkanna.
Stjómvöld fylgjast ekki aðeins vel
með þeim sem lifa, því liðin lík em
einnig könnuð. Á fréttavef Times er
sagt frá fjölskyldu sem var á leið með
látinn ættíngja til austurhluta Lhasa,
en þangað er farið með látna og þeir
hlutaðir sundur og verða að ætí fyrir
hrægamma. Það er gert vegna þess
hve erfitt er að grafa í frosna jörðina
og skortur á trjám gerir líkbrennslu
óffamkvæmanlega. För fjölskyld-
unnar var stöðvuð af lögreglu, sem
heimilaði þeim ekld frekari för fyrr
en búið var að staðfesta að líkið bæri
ekki áverka sem gætu hafa komið tíl í
óeirðum undanfarið.
Víða annars staðar hafa kínversk
stjómvöld hafið aðgerðir sem tryggja
eiga öryggi á ólympíuleikunum, með-
al annars með hertu eftírliti á hótel-
um í Beijing og í leiguíbúðum í höf-
uðborginni.
HPI Savage X 4,6 fjarstýrður
bensín torfærutrukkur
smsmBMúsio
Tómstundahúsið.Nethyl 2,sími 587-0600,
www.tomstundahusid.is
mmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmtmmm
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðíli
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
ww w. birkiaska.is
FOSFOSER
MEMORY Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
Jeep
CHRYSLER
bílJöfur
DOQGE
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is