Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. APRlL 2008
Sport PV
Verðmiði kominn á Ameobi
Newcastle krefst 4 milljóna punda
fyrir Shola Ameobi sem hefur verið
á láni hjá Stoke slðan í mars.
Ameobi hefur
staðiði sig
vonum framar
hjá Stoke sem
þarf aðeins eitt
stig til viðbótar
til þess að
tryggja sér saeti
í ensku
úrvalsdeildinni
á nætu leiktíð.
Talið er að Stoke hafi tekið á sig
kostnað að verðmæti 575 þúsund
pund auk þess að ganga að háum
launakröfum Ameobis til þess að
styrkja sig fyrir lokaátökin 11.
deildinni. Það virðist hafa borgað
sig þar sem Tony Pulis er við það að
stýra liðinu upp um deild. Ameobi
fæddist í Nlgerlu en hefur leikið
með U-21 árs liði Englands. Hann á
enn eftir að skora fyrir Stoke.
Hleb og Flamini til Mílanó?
Svo gæti farið að Alexander Hleb
og Mathieu Flamini verði I sitt
hvorum hluta Mllanóborgar ef
sögusagnir reynast réttar um að AC-
Milan ætli sér
Flamini en
Inter Milan ætli
sér að kaupa
Hleb fyrir
næsta tímabil.
Flamini verður
samningslaus I
lok leiktíðar en
sögusagnir eru
uppi um að
Flamini hafi þegar samið við Milan
en þar sem stutt er eftir af samningi
hans við Arsenal má hann gera það.
Talið er að Flamini sé hugsaður sem
arftaki Generaos Gattuso sem
sitjandi miðjumaður.Talið varað
Juventus myndi fá Flamini en AC-
Milan ku hafa boðið honum um 4
milljónir evra á ári. Hleb hefur verið
boðinn fjögurra ára samningur hjá
Inter en hann mun vera þreyttur á
þvi að hafa ekki unnið neitt með
Arsenal (langan t(ma.
Kranjcar til Arsenal?
(kjölfar sögusagna um að Hleb og
Flamini séu á förum frá Arsenal leita
fjölmiðlar nú eftir miðjumönnum til
þess að fara til Lúndúnaliðsins í stað
þeirra tveggja.
Upp úr
pottinum hefur
komið nafn
Króatans Nicos
Kranjcar, .
leikmanns
Portsmouth, en
Arsene Wenger
er mjög hrifinn
af honum.
Slavan Bilic, landsliðsþjálfari
Króatíu, telur Kranjcar vera að fara
til Arsenal og segist hann viss um að
Arsene Wenger kunni að meta
kappann. Talið er að Arsenal sé að
undirbúa 15 milljóna punda boð í
miðjumanninn sem þykir leikinn og
henta leikstíl Arsenal vel.„Nico er
búinn að sanna sig hjá Portsmouth
og Wenger veit vel af þvi hvað hann
hefur fram að færa," segir Bilic.
United á eftir Cruz?
Roque Santa Cruz, leikmaður
Blackburn, hefur vakið mikla athygli
fyrir góða frammistöðu (ensku
úrvalsdeildinni. 17 mörk hans (
ensku úrvalsdeildinni eru frábær
árangur á fyrsta leiktímabili og nú
eru meistarar Manchester United að
sækjast eftir skotskóm Cruz. Alex
Ferguson leitar Ijósum logum að
öðrum sóknarmanni með Wayne
Rooney þar sem Louis Saha hefur
margsinnis sýnt það að ekki er hægt
að treysta á hans veikburða líkama.
Talið er að United ætli að bjóða
Blackburn um tíu milljónir punda
fyrir Cruz þó llklegt sé að Blackburn
vilji meira.
BENEDIKT BOAS HINRIKSSON
10. MAÍ2005
Paul Scholes hefur væntanlega lagst
sæll og glaður á koddann í gær. 1999
fékk hann gult spjald gegn Juventus
og var því í banni í úrslitaleiknum eins
og Roy Keane. Báðir voru þeir í gráu
jakkafötunum gegn Bayern Munchen
í úrslitaleiknum sem Manchester
vann 2-1. Keane er hættur og stýrir
Sunderland þannig að ekki er hann á
leið í úrslitaleik í bráð en það er hins
vegar Paul Scholes. Scholes skoraði
eina mark 180 mínútna einvígis á
milli Manchester og Barcelona með
engu smá marki.
Sir Alex Ferguson gerði sex breyt-
ingar á sínu liði frá því gegn Chelsea
á laugardag og sótti til sigurs. Það var
samt enginn Wayne Rooney og eng-
inn Nemanja Vidic í liði Manchester
og munaði um minna. Þegar Rooney
er ekki með hefur liðið undantekn-
ingarlaúst tapað. Vidic og Rio Ferdin-
and hafa myndað eitt allra skemmti-
legasta miðvarðarpar síðari ára en
Wes Brown var í miðverðinum og
Owen Hargraves var í bakverðinum.
Það voru því möguleikar fyrir Barca.
Stemningin á Old Trafford var
mögnuð, en hún hefúr oftar en ekki
verið gagnrýnd bæði af leikmönnum
og sir Alex Ferguson. En það var engin
rækjusamlokustemning í gær. Áhorf-
endur sungu og trölluðu og annað-
hvort var Ferguson stressaður fyr-
ir leik eða hafði aldrei upplifað slíka
stemningu áður á Old Trafford.
United hafði tapað sjö undan-
úrslitaleikjum og liðið státar aðeins
af tveimur Meistaradeildarbikurum
sem er ffekar lítið miðað við stærð fé-
lagsins. En liðið sem Ferguson er bú-
inn að byggja upp er magnað í nánast
alla staði.
Geggjað mark
Á slaginu klukkan 20.00 skoraði
Paul Scholes eina mark leiksins. Mark
sem verðskuldar svo sannarlega að
koma sínu liði í úrslitaleik. United
fékk sókn, Zambrotta rann, Ronaldo
vann boltann en Zambrotta gerði vel
og vann hann aftur. Hann ákvað hins
vegar á einhvern óskiljanlegan hátt
að senda með vinstri fæti þvert yfir
völlinn þar sem Scholes beið eins og
gammur. Kom á ferðinni, lagði bolt-
ann fyrir sig og negldi honum ffamhjá
Victor Valdez í marki Barca. Hreint
frábært mark.
Eftir markið var Barcelona meira
með boltann án þess þó að skapa sér
einhver opin dauðafæri. Það var helst
Lio Messi sem gladdi augað en hann
einn og sér gat ekki unnið Manchest-
er United á heimavelli.
Af hverju ekki Eiður?
Síðari hálfleikur var eins og síðari
helmingur fyrri hálfleiks. United spil-
aði taktískan leik og Barcelona var
mikið meira með boltann. En eins og
svo oft áður í vetur voru hugmynd-
irnar af skornum skammti. United
varðist auðveldlega fyrirsjáanlegum
sóknarleik Barcelona þar sem Deco
fór ffemstur í flokki. Að Eiður Smári
skuli ekki vera á undan Deco í gogg-
unarröð Barcelona er óskiljanlegt.
Það má margt segja um Eið en hann
er margfalt betri en þungur, slappur
og snauður Deco.
Þegar Eiður Smári var hjá Cheisea
skoraði hann þrjú mörk á Old Trafford
og spilaði iðulega vel gegn liðinu. Það
er ástæða fyrir því að Alex Ferguson
vildi fá hann í sitt lið á sínum tíma.
Rijkaard kominn á
endastöð með Barca
Lio Messi hélt áfram að reyna en
varnarleikur United-liðsins var til fyr-
irmyndar. Wes Brown og Rio Ferdin-
and voru sterkir og gerðu fá mistök.
Patrice Evra er ffábær sóknarbak-
vörður, jafnvel sá bestí, en hann sýndi
1. DESEMBER 2001
18. JANÚAR 2003
Scholes 39.
Forlan 90.
Eiður Smári 30.
I van Nistelrooy 7.
Tiago 17.
EiðurSmáriðl.
Joe Cole 82.
Melchiot 6.
Hasselbaink 64.
Eiður Smári 86.
J L
Öllum að óvörum stendur til að reka Sven-Göran Eriksson frá Manchester City:
Eriksson
Thaksin Shinawatra, eigandi
Manchester City, tilkynnti Sven-
Göran Eriksson í fyrradag að hann
teldi hann ekki rétta manninn í
framkvæmdastjórastarf félagsins og
hygðist reka hann í lok tímabilsins.
Eriksson tilkynnti leikmönnum
liðsins þetta á fundi á mánudag og
vakti það hörð viðbrögð meðal leik-
manna sem létu í ljós reiði sína á æf-
ingunni.
Svíinn á tvö ár eftir af samningi
sínum en Taílendingurinn Shinaw-
atra ku vera afar ósáttur við spila-
mennskuliðsinsásíðarihlutaieiktfð-
arinnar þar sem félagið hefur aðeins
unnið fjóra af síðustu fimmtán
leikjum sínum. Steininn tók úr að
mati Shinawatra þegar liðið tapaði
2-3 gegn Fulham á heimavelli um
liðna helgi eftir að hafa leitt 2-0.
Eriksson var að vonum vonsvik-
inn þegar hann fékk fréttirnar. „Sven
á förum
brást rólegur við eins og hann ger-
ir yfirleitt en hann var engu að síð-
ur mjög vonsvikinn og hissa," segir
heimildamaður nákominn honum.
„Hann vill ekki fara frá félaginu
og hann mun ekki segja upp. Hann
elskar að vinna með leikmönnum
og vinna hans í Manchester City er
einungis nýhafin.
Á heildina litið hefur þetta ver-
ið vel heppnað leiktímabil. Thaksin
samþykkti fimm ára plan og fyrsta
markmiðið var að ná einu af tíu
efstu sætum deildarinnar og það
náðist," segir heimildamaðurinn.
Micah Richards, varnarmaður
Manchester City, sagði í síðustu
viku að leikmenn liðsins stæðu 100
prósent á bak við Eriksson og bætti
við: „Mér finnst fáránlegt að það sé í
umræðunni að starf hans sé í hættu.
Þú færð ekki betri framkvæmda-
stjóra til Manchester City." vidar@dv.is