Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Side 17
PV Sport
MIÐVIKUDAGUR 30. APR(L 2008 17
Frank Rijkaard fær
falleinkun hjá flestum
GLAÐUR OG SÆLL Paul
Scholes hefur væntanlega
verið sæll og glaður í gær.
i
1 1 STRANGRI GÆSLU Ronaldo háði skemmtilega baráttu við Gianluca Zambrotta.
að hann kann sitthvað fyrir sér í vörn
líka. Owen Hargraves fór helst ekki
yfir miðjulínu en varðist vel.
Frank Rijkaard er kominn á enda-
stöð með Barcelona-liðið og alveg
ljóst að hann er enn bara nýgræðing-
ur í þessum bransa. Það sáu allir að
Alex Ferguson vann baráttu þeirra,
skipti rétt inn á og brást rétt við að-
stæðum. Rijkaard féll einfaldlega á
prófinu. Bojan er efnilegur leikmaður
en ekki varamaður númer tvö í und-
anúrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Það kæmi gríðarlega á óvart ef Rijka-
ard og margir leikmenn liðsins væru
enn á næstu leiktíð.
Scholes byrjar inni á í Moskvu
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er United, heftir áður sagt að Schol-
es yrði í byrjunarliðinu kæmist liðið
þangað. Nú er liðið komið í úrslita-
leikinn og staðfesti Ferguson það í
gær. „Hann verður í liðinu. Hann er
einn af þeim ffábæru sem komu í
gegnum unglingastarfið. En ég er svo
ánægður fyrir hönd allra.
Þetta er svo góð tilfining og þetta
er svo frábært fyrir þennan klúbb.
Þetta félag verðskuldar að vera í úr-
slitaleiknum og það er stórkostíegt."
Ferguson bætti við að áhorfendur
hefðu verið frábærir. „Barca reyndi
að ná inn markinu sem þá vantaði en
áhorfendur hjálpuðu okkur yfir erfið-
asta hjallann."
ftio Ferdinand tók í svipaðan
streng. „Það er erfitt að lýsa þessari
tilfinningu. Ahorfendurnir spiluðu
stórt hlutverk í þessum leik og studdu
vel við bakið á okkur. En síðan kemur
svona snilld frá frábærum leikmanni,
Paul Scholes. Þvílíkt mark og þvílíkur
tími að skora svona mark."
Enn á ný takast Chelsea og Liverpool á í Meistaradeildinni:
TÖLFRÆÐIN ÖLL MEÐ CHELSEA
Liverpool og Chelsea
takast á í síðari leik liðanna í
Meistaradeildinni. Fyrri leik liðanna
lauk á eftirminnilegan hátt, 1-1.
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur
sett aukapressu á dómara leiksins,
Roberto Rossetti, með því að segja að
frammistaða hans í vetur hafi verið
afar forvimileg.
„Hann hefur dæmt sex leiki í
Meistaradeildinni. Fimm af þeim
hafa endað með heimasigri en að-
eins einn með útisigri. Það var Val-
encia gegn Chelsea. Það er afar for-
vitnilegt.
Dómarinn í fyrri ieiknum var sla-
kur og vonandi verður annað uppi á
teningnum núna. Dómarinn er með
næga reynslu til að höndla svona
leik og hann veit það best að ef hann
verður sterkur á taugum verður þetta
allt í lagi."
Tölfræði dómarans er þó ekki
það eina sem Rafa og félagar þurfa
að hafa áhyggjur af. Eitt tap í 125
leikjum á Brúnni og Liverpool hef-
ur aldrei tekist að brjóta ísinn þar á
bæ síðan Rafa tók við 2004 eða í átta
leikjum.
En Rafa Benitez er meistari Meist-
aradeildarinnar. Ef hann kemst í úr-
slitaleikinn verður það hans þriðji á
fjórum árum. Hann hefur í gegnum
tíðina sýnt að þetta er keppnin sem
hann kann á.
Chelsea kemur í leikinn með
sjálfstraustið í rífandi botni. Margt
hefur breyst síðan staðan var 1-
0 fyrir Liverpool og 93 mínútur á
klukkunni. í dag er það allt annað lið
Chelsea sem kemur til leiks og ljóst
að Liverpool þarf svo sannarlega að
vera í toppformi ætíi það sér eitthvað
út úr þessum leik. benni&dv.is
X e
Drogba er ekki leikari
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur
gagnrýnt Didier Drogba fyrir
leikaraskap í aðdraganda síðari leiks
liðanna í
Meistaradeild-
inni. Eðlilega
segja margir, ef
ekki flestir, en
ómaklegt segja
aðrir.„Hann er
góðurleikmaður
fyrst og fremst,
sterkur
líkamlega og
mérfinnst hann ekki vera leikari inn á
vellinum," sagði Avram Grant en spyrja
má hvort hann hafi í alvöru séð
einhverja leiki með Chelsea þar sem
Drogba erinni á.„Ef horft erá hvað
Carragher gerir við hann í fyrri leiknum
má leiða að því líkum að dómararnir
hafi verið frekar kurteisir. Af því hann er
svo sterkur er eins og varnarmenn megi
stoppa hann með öllum ráðum."
Toni tippar á Ronaldo
Það eru ekki margir sem veðja gegn
Ronaldo til að verða leikmaður ársins.
Hann hefur skorað 38 mörk á tímabilinu
þótt hann sé ekki alltaf áberandi (stóru
leikjunum. Luca
Toni, leikmaður
Bayern
Mtinchen, veðjar.
allavega stnum
peningum á
Ronaldo.Toni
hefurverið
frábær í vetur og
skorað 36 mörk í
Bundesligunni
og UEFA-bikarnum.Toni hefur þegar
unnið þýska bikarinn, er á góðri leið
með að verða þýskur meistari og er í
undanúrslitum UEFA-bikarsins með
sínu liði. Oftast er það svo að
ffammistaðan á stóra sviðinu, EM eða
HM, ræður úrslitum séu tveir leikmenn
búnir að vera eins góðir og þeir Luca
Toni og Ronaldo. Það sannaðist með
Ronaldo árið 2002 og þegar Fabio
Cannavaro var valinn bestur 2006 eftir
HM. Þá var Ronaldinho búinn að vera í
formi og hafði tryggt Barcelona meðal
annars sigur í Meistaradeildinni.
Bywater vill vera áfram hjá
Derby
Markvörðurinn Stephen Bywater vill
vera áfram hjá Ipswich þarsem hann
hefurverið að láni frá Derby.„Derby
samdi við Roy
Carroltil 2010
þannig aðefég
kem aftur mun
ég væntanlega
verma tréverkið.
Égerennþá
þokkalega
ungurog langar
að spila fast í
hverri viku og
það get ég fengið hjá Ipswich/'sagði
Bywater við fréttamenn en Ipswich
hefur þann möguleika að fjárfesta í
markverðinum eftirtímabilið kjósi það
svo.„Ég veit að Derby á mig en mig
langarað vera áfram hjá Ipswich og
ætla að gera allt sem ég get til að það
verði."
Makelele ánægður með Grant
„Mér finnst Avram Grant góður stjóri,"
sagði Claude Makelele, leikmaður
Chelsea, um knattspyrnustjórann sinn,
Avram Grant.„Það sjá allir hvernig staða
okkarer í dag. Jafnirefsta liðinu í
deildinni og komnir (undanúrslit
Meistaradeildarinnar. Ég veit ekki af
hverju allir eru að miða hann við Jose
Mourinho. Avram er nýbyrjaður að
stjórna liöi á meöan Jose hefur mikla
reynslu sem sKkur. Það þarf að gefa
Grant meira svigrúm til að vinna s(na
vinnu," sagði Makelele.