Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 30. APRlL 2008
Fókus DV
LISTRÆN ÚRVINNSLA HELFARARINNAR
Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur heldur fyrirlesturinn Helförin: Listræn
úrvinnsla og söguskilningurl Bratta, fyrirlestrarsal Kennaraháskólans, ídag kl. 16.
Sérstaklega verðurfjallað um helförina og úrvinnslu á henni eins og hún birtist í
ritum rithöfunda, kvikmyndagerðarmanna, listamanna og arkitekta sem vinna með
reynslu fólks af þessum atburðum í verkum sínum.
Glæpur og
reísing í kili
Hið klassíska
meistaraverk
Fjodors Dostoj-
evskí, Glæpur
og refsing,
ernúkomið
í kilju. Þetta
er oft taiin
einhver besta
og beittasta
skáldsaga sem
skrifuð hefur
verið; harmræn saga um eymd og
yonleysi í Rússlandi fyrir byltingu,
en ekki síður um innri togstreitu og
grimmar tilfirmingar. Strax í upphafi
er lesandinn hrifinn með inn í trylitan
hugarheim stúdentsins Raskolnikovs;
hann er knúinn áfram af fátækt,
ágimd og mMmennskubrjálæði sem
leiðir hann um síðir til voðaverks.
Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina
en hún tilheyrir nýrri kiljuseríu
Forlagsins, Erlend klassík.
Kuðunga-
krabbarnirrkilju
Út er komin í kilju bókin Kuðunga-
krabbarnir eftir Anne B. Ragde.
Torunn hittir föðurfólkið sitt í
fyrsta sinn þegar amma hennar
liggur fyrir dauðanum, amman
sem hrakti móður hennar ófr íska
á brott og svipti Torunni þar
með kynnum af fjölskyldunni
- þar til nú. Áður en Torunn veit
-af hefur hún bundist þessu blá-
ókunnuga, sérkennilega fólki
og örlögum þess miklu sterkari
böndum en hún kærir sig um.
Kuðungakrabbarnir er sjálfstætt
framhald bókarinnar Berlín-
araspirnar sem kom út í kilju fyrir
tveimur árum. Ragde er vinsælasti
höfundur Norðmanna um þessar
^mundir. Pétur Ástvaldsson þýddi.^
Hættulegur
sjortari
Lífið brosir við Lauren Stilwell. Hún
er á framabraut og í hamingjusömu
hjónabandi - eða hvað? Einn daginn
ákveður hún að koma manni sínum
á óvart en
sér hann þá
með ungri
ljósku. Hún
jafnar metin
með því að
fá sér sjort-
ara með
ungum,
mynd-
arlegum
manni, en
ástríðufullt
ævintýr-
ið'endar
skelfilega
þegar Lauren verður vitni að
ofbeldisglæp sem leiðir til dauða.
Hún þarf að upplýsa málið án þess
að leyndarmál hennar komi í ljós.
Sjortarann skrifaði James Patterson
í félagi við Michael Ledwidge, en í
tilkynningu segir að sagan hafi öll
einkenni góðs Patterson-tryllis.
ÞJANING
NASISTASONAR
John Boyne er þrjátíu og sjö
ára Iri sem sent hefur frá sér fimm
skáldsögur og eina nóvellu auk
nokkurra smásagna. Strákurinn í
röndóttu náttfötunum var fjórða
skáldsagan í röðinni þegar hún
kom út fýrir tveimur árum og hef-
ur nú selst í meira en einni og hálfri
milljón eintaka og fengið verðlaun
og verðlaunatilnefningar. Hún hef-
ur setið í um sjötíu vikur í fyrsta sæti
írska metsölulistans og hefur vermt
toppsætið í mörgum öðrum lönd-
um. Bókin kom út hjá Veröld ný-
verið í íslenskri þýðingu Önnu Agn-
arsdóttur og eins og gjarnan verður
raunin með vinsælar bækur er nú
unnið að kvikmynd eftir henni sem
frumsýna á næsta haust.
Dag einn þegar hinn níu ára
Bruno kemur heim til sín er hon-
um tilkynnt að íjölskyldan þurfi að
flytja úr fimm hæða húsinu í Berlín
á ónefndan stað úti í sveit. Ástæð-
an er vinna föður hans. Sagan ger-
ist árið 1943 og pabbi Brunos hefur
óneitanlega mikið að gera í vinn-
unni, verandi háttsettur foringi í
her nasista. Síðar kemur í fjós að
ónefndi staðurinn er Auschwitz í
Póllandi, sem kallaður er Ásvipti í
sögu Boyne, þar sem pabbi Brunos
hefúr störf sem fangabúðastjóri.
Bruno, sem hefur enga vitn-
eskju um helförina og grimmdar-
verkin sem samlandar hans stunda
þegar sagan gerist, er afar óánægð-
ur með flutningana. Nýja húsið er
mun minna en það gamla, það er
ekki með handriði sem hægt er að
renna sér niður en verst af öllu er
að hann þarf að yfirgefa bestu vini
sína þrjá. Og ekkert annað hús, þar
sem strákar á hans aldri gætu hugs-
anlega búið, er sjáanlegt. Seinna
kemst Bruno hins vegar að því að
það er fólk á bak við háu girðing-
una og gaddavírinn sem hann sér
út um herbergisgluggann sinn. Fólk
í röndóttum náttfötum. Þar á með-
al er jafnaldri hans, Shmuel, sem
Bruno leggur á sig langan göngutúr
meðfram girðingunni daglega til að
geta spjallað við og gefið mat sem
hann hnuplar heima hjá sér. Falleg
vinátta drengjanna er þeim báðum
ómetanleg.
Sjónarhorn sögunnar, sýn níu
JOHNBOYNE
Hefur sent frá sér fimm
skáldsögur og eina
nóvellu auk nokkurra
smásagna.
STRAKURINN
í RÖNDÓTTU
NÁTTFÖTUNUM
'k'k'ki ★
JOHN BOYNE
BOICADOMUR
ára drengs á atburði í heimahúsi
nasistaherforingja þegar síðari
heimsstyijöldin geisar, er afar
áhugavert. Hvernig bamið horfir
á alvarlegan föður sinn þramma
inn og út í einkennisbúningnum
með orðurnar og í glansandi
stígvélunum, loka sig af inni á
skrifstofu sinni - þangað sem Bruno
má ekki fara inn undir neinum
kringumstæðum - og hermenn
koma og fara. Og allir heilsa þeir
og kveðja með því að skella saman
hælum, sveifla hendinni frá bringu
og á ská upp í loft, og kalla tvö orð
sem Bruno skilur ekki. Honum hafði
þó verið kennt að heilsa þannig, en
aðeins ef honum var heilsað þannig
að fýrra bragði.
Spennuþrungið andrúmsloftið
hefur auðvitað sín áhrif á unga sál,
og fara móðir Brunos, tólf ára göm-
ul systir og þjónustufólkið heldur
ekki varhluta af því. Bruno reyn-
ir sífellt að skilja betur hvers vegna
hlutirnir eru eins og þeir eru, hvers
vegna þau máttu ekki búa áfram í
Berlín, hvers vegna Shmuel og hitt
fólkið hinum megin girðingarinn-
ar þarf að vera í röndóttum náttföt-
um, hvers vegna Shmuel er svona
grannur og svangur, hvers vegna
fjölskylda hans flutti burt án þess að
amma og afi fengju að koma með,
hvers vegna þetta og hvers vegna
hitt. Sögunni er kannski einum
þræði ætlað að segja okkur að það
voru ekki eingöngu börn af gyð-
ingaættum sem þjáðust í stríðinu,
heldur einnig börn nasistanna.
Frásögnin er mestan partinn
frábærlega áreynslulaus. Þó er það
smá hnjóður að sumar setningar
sem Bruno eru látnar í munn eru
ekki mjög líklegar til að koma frá
níu ára gömlum dreng, til að mynda
þessi: „Mér finnst að ef starf föður
míns hafi það í för með sér að við
þurfum að flytja úr okkar eigin húsi,
burt ffá handriði sem er hægt að
renna sér niður og burt frá þremur
bestu vinum mínum um aldur og
ævi, þá finnst mér að faðir minn eigi
að hugsa sig tvisvar um hvað starfið
varðar [...]" (bls. 19). Hafandi ekki
séð frumtextann er óvíst hvort þetta
sé frá höfundi eða þýðanda komið.
Annað dæmi er: „Mér sýnist þú hafa
verið flutt hingað gegn vilja þínum
alveg eins og ég. Og mér finnst við
öll vera í sama báti. Og hann farinn
að leka." (54) Hér má ekki aðeins
setja spurningarmerki við orðalagið
heldur líka myndlíkinguna - hvort
„venjulegur" níu ára gutti sé líklegur
til að skella fram slíkri líkingu. Á
móti kemur að Bruno lifir ekki
beint „venjulegu" lífi níu ára drengs
sem sonur nasistaforingja í miðri
heimsstyrjöld.
Því miður er undirritaður ekki
vel að sér í helfararbókmenntum og
því ekki hægt um vik að setja þessa
stórgóðu bók í samhengi við önnur
skáldverk þeirrar gerðar. Og hvað
varð tíl þess að frekar ungur íri ákvað
að skrifa bók sem gerist í helförinni
veit ég ekki, en það verður ljóst þegar
rennt er yfir útdrætti úr fyrri bókum
Boynes að fortíðin og sögulegir
atburðir eru honum hugleikin. Það
á einnig við um nýjustu bók hans,
sem væntanleg er í búðir í Bretlandi
í næsta mánuði, en hún heitir
einfaldlega Uppreisnin á Bounty.
Boyne er svo sannarlega höfundur
sem vert er að gefa gaum því miðað
við Strákinn í röndóttu náttfötunum
kann hann þá list vel að segja sögu.
Kristján Hrafn Guömundsson
jr r
FERSKIULDNU UMHVERFI
Forgetting Sarah Marshall er
gáskafull gamanmynd sem gleður.
Peter er nettur aumingi. Hann sér
umfrumsamdatónlistíspennuþætti
sem sýndur er á besta tíma, en utan
þess húkir hann heima hjá sér í
einkaævintýrum. Kærasta hans
Sarah er stjarna þáttanna. Sæt, ung
og á uppleið. Sarah gefst fljótlega
upp á Peter og segir honum upp. í
tilraun til þess að jafna sig ákveður
Peter að fara til Hawaii, þar sem
hann rekst svo á Söruh með nýja
gæjanum. Forgetting Sarah Marsh-
all er fersk gamanmynd að mörgu
leyti. Aðalleikari myndarinnar,
Jason Segel, er jafnframt höfundur
hennar. Sá er úr sama gengi og þeir
semgerðuSuperbadogKnockedUp,
sjálfur lék hann í þeirri síðarnefndu.
Þess vegna eru margir brandarar
í Forgetting Sarah Marshall sem
1
eru óborganlegir. Persónur eru
líka skemmtilegar, þó helst breski
rokkarinn Aldous Snow sem leikinn
FORGETTING ★★★
SARAH MARSHALL
Leikstjóri: Nicholas Stoller
Leikarar: Jason Segel, Kristen
Bell, Mila Kunis,
Russell Brand.
BIODOMUR
er af Russell Brand. Það versta við
myndina er sögusviðið. Maður
er búinn að sjá nóg af einhverju
ástarvelludjóki sem gerist á hóteli
á Hawaii og þess vegna er erfitt að
finna fýrir því óbragði í kringum
fersku molana í þessari kvikmynd.
Forgetting Sarah Marshall er
engin snilld. Hins vegar er hægt
að hlæja andskoti vel að henni, en
handritshöfundurinn hefði mátt
vera aðeins djarfari fyrir minn
smekk. ítrekuð nekt aðalfeikarans
var þar skref í rétta átt.
DóriDNA,