Glóðafeykir - 01.12.1969, Síða 3
GLOÐAFEYKIR
Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga
10. HEFTI • DESEMBER 1969
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Magnússon í Eyhildarholti.
Kaupfélag Skagfirðinga 80 ára
(Ræða, flutt á aðalfundi K. S. 19. júni 1969).
Kaupfélag Skagfirðinga er 80 ára gamalt. Fyrsta fundargerð félags-
ins hefst svo:
„Þriðjudaginn 23. apríl 1889 var fundur haldinn á Sauðárkróki
af ýmsum deildarstjórum hins gamla Pöntunarfélags Hrmvetninga
og Skagfirðinga, eftir fundarboði frá alþm. Olafi Briem, sém kosinn
var fundarstjóri.
Þessir fulltrriar voru mættir:
Konráð Jónsson, Miðhúsum, fyrir Hofshrepp.
Hermann Jónasson, Hólum, fyrir Hólahrepp.
Þorvaldur Arason, Flugumýri, fyrir Akrahrepp.
Pálmi Pétursson, Skíðastöðum, fyrir Lýtingsstaðahrepp.
Sr. Jakob Benediktsson, Víðimýri, fyrir Seyluhrepp.
Jón Pálmason, Auðnum, fyrir Staðarhrepp.
Vigfús Guðmundsson, Sauðárkróki, fyrir Sauðárhrepp.
Hjörtur Hjálmarsson, Skíðastöðum, fyrir Skefilsstaðahrepp.
Jónas Jónsson, Hróarsdal, fyrir Rípurhrepp.
Sr. Zophónías Halldórsson, Viðvík, fyrir \hðvíkurhrepp.
Guðmundur Gíslason, Bollastöðum, fyrir Bólstaðarhlíðarhrepp."
Þessir 11 menn, ásamt með Ólafi Briem, verða að teljast stofnend-
ur Kaupfélags Skagfirðinga, allir hinir mætustu menn og margir
þeirra fyrirmenn í héraði. Þenna dag, 23. apríl 1889, var félagið
stofnað og hlaut þegar það nafn, sem það hefur borið alla stund
síðan. A þessum fyrsta fundi voru félaginu sett lög, en frumvarp
að þeim höfðu samið þeir Ólafur Briem alþm., Jón Jakobsson, síðar
landsbókavörður og Pálmi Pétursson, síðar kaupfélagsstjóri.