Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 6

Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 6
6 GLÓÐAFEYKIR mönnum hagstæð og varan ákaflega ódýr. En þetta var áhættusöm verzlun og ótrygg og þoldi engin áföll, því að eigi var safnað í sjóði, svo að neinu næmi. Þetta var samvinnuverzlun á frumstæðu stigi, en gerði eigi að síður ómetanlegt gagn. Hún bjó þorra manna hagfelld- ari viðskiptakjör, hagstæðara verð, bæði á erlendri vöru og inn- lendri, en þeir gátu ella fengið, enda á erlendu vöruna lagt aðeins fyrir allra nauðsynlegasta kostnaði. Og hún glæddi skilning manna á því, að með sameiginlegum átökum, félagslegum átökum, er hægt, ef af heilindum er unnið, að velta úr vegi björgum, sem ella mundu óhreyfð. Og í þriðja lagi sannaði hún ótvírætt, að það var engan veginn ófrávíkjanlegt náttúrulögmál, að mismuna skyldi viðskipta- mönnum eftir efnahag, þótt sá háttur hefði löngum verið í góðu gildi hjá dönskum selstöðuverzlunum. Á aðalfundi K. S. 1904 var samþykkt að stofna svokallaða „Sölu- deild“, þar sem vera skyldi opin sölubúð eins og hjá kaupmönnum og búðarvarningur seldur með nokkurri álagningu. Var í þessu skyni reist mikið hús af miklum stórhug, og þar tók Söludeildin til starfa árið 1906. Hélt þó pöntunarstarfsemi áfram í og með enn um stund, einkum vegna deildanna austan fjarðar, sem fengu þá pöntunar- vörur sínar settar á land í Haganesvík og Hofsósi, en sjálfstæð kaup- félög höfðu þá ekki verið stofnuð þar, enn sem komið var. Árið 1908 reisti félagið sláturhús á Sauðárkróki, en til þess tíma hafði sláturfé verið lógað á blóðvelli. Næstu árin kreppti allmjög að félaginu. Söludeildiu gekk ekki vel — og fleira margt kom til. Fór svo, að félagið nevddist til að selja verzlunarhús það hið mikla, þar sem Söludeildin hafði aðsetur, en keypti það svo aftur löngu síðar, þegar mjög var skipt um allan hag. Því má skjóta hér inn í, að þetta gamla hús hefur gegnt og gegnir enn miklu hlutverki. Þar, í Ytribúðinni („Gránu"), er við köllum svo, voru, á árinu sem leið, seldar vörur fyrir tæpar 32 milljónir króna, og þar, á efri hæðinni, er enn til húsa framkvæmda- stjórn og aðalskrifstofur þessa mikla fyrirtækis, Kaupfélags Skag- firðinga, sem, ásamt með Fiskiðjunni h.f., hafði á árinu 1968 heildar- veltu sem nam 302 millj. króna. En hér verður að fara fljótt yfir. Saga K. S., þeirrar stofnunar, sem mesta þýðingu hefur haft fyrir meginhluta þessa héraðs og meiri áhrif á daglegt líf og afkomu héraðsbúa, meiru orkað til rnarg- háttaðra framfara það sem af er þessari iild og þó 11 árum betur en nokkur stofnun önnur, — sii mikla saga verður ekki rakin í stuttri og sundurlausri ræðu. Á ýmsu hefur oltið, svo sem verða vill
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.