Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 7

Glóðafeykir - 01.12.1969, Qupperneq 7
GLÓÐAFEYKIR 7 á langri leið. Þó má svo kalla, að allt frá því er félagið var aldar- fjórðungs gamalt, hafi þróunin verið stöðug og jöfn og raunar óvenjulega stórfelld hina síðustu áratugi. Kaupfélag Skagfirðinga er nú, að enduðum hinum áttunda áratug aldurs síns, ein af stærstu viðskipta- og atvinnustofnunum landsins utan Reykjavíkur, ein af hinum traustustu og bezt reknu, er óhætt að bæta við. Og það er vissulega mest um vert. Þarna eiga að sjálfsögðu margir hlut að: Félagsmennirnir, starfsfólkið, stjórnarnefndarmennirnir. Kaupfélag- ið hefur verið hjúasælt löngum og haldizt vel á starfsfólki, eftir því sem nú gerist. Meir en tugur manna hefur unnið hjá félaginu 2—3 áratugi samfleytt, og 4 yfir 30 ár: Kristján C. Magnússon frá 1934, Guðmundur Valdimarsson frá 1936, Kristín Sölvadóttir frá 1937 02: Jón Björnsson frá 1938. En þótt þeir séu margir, sem K. S. á miklar þakkir að gjalda og mikið og gott gengi að þakka, þá leikur ekki á tveim tungum, að langsamlega stærstur er hlutur kaupfélagsstjór- anna, enda mest á þeim að sjálfsögðu mætt, svo og á formönnum félagsins. Formenn hafa frá öndverðu verið 8. Flestir hafa gegnt því starfi aðeins skamma hríð, 1—3 ár, aðrir en Pálmi Pétursson, sem formaður var í 15 ár, séra Sigfús Jónsson, formaður í 24 ár og loks núverandi formaður, Tobías Sigurjónsson, sem gegnt hefur for- mennsku í félaginu frá því á miðju ári 1939. Kaupfélagsstjórar hafa frá upphafi verið 7: Séra Zophónías Halldórsson 1889—1890, þá Jón Jakobsson til 1892, Pálmi Pétursson 1892—1910, þá Gísli Jóns- son til 1913, séra Sigfús Jónsson 1913—1937, Sigurður Þórðarson 1937—1946 og loks Sveinn Guðmundsson, sem verið hefur kaup- félagsstjóri frá og með árinu 1946. Allir hafa forstjórar K. S. verið mætir menn. Við minnumst þeirra allra með virðingu og þakklæti. Tveir menn hafa veitt félaginu forstöðu lengst allra og markað dýpri spor í sögu þess og giftudrýgri en nokkrir aðrir. Annar tók við félaginu er undan hallaði og trúin var jafnvel að bresta, enda átti þá félagið naumast fyrir skuldum. Honum auðnaðist að stöðva undanhaldið, sækja á brattann, reisa félagið við, verja það áföllum á verðfalls- og háskatímum, glæða trúna og vekja traustið, færa út verksviðið, margfalda starfsemina og allar athafnir og skila félaginu við leiðarlok 1937 sem einu stærsta og sterkasta samvinnufélagi á landi hér á þeim tíma. I hans stjórnartíð, sr. Sigfúsar, en hann var alla stund bæði formaður félagsins og framkvæmdastjóri, var m. a. keypt verzlunar- og íbúðarhús Sigurgeirs Daníelssonar (1918), reist frystihús og sláturhús 1928 og 1929, stofnað Mjólkursamlag Skag- firðinga og reist samlagshús 1934—1935, svo að nefndar séu aðeins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.