Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 9
GLÓÐAFEYKIR
9
jafn ljós. Kaupfélag Skagfirðinga hefur valdið aldahvörfum á félags-
svæðinu, hvörfum í verzlunarháttum, í vöruvöndun, í nýtingu af-
urða, í margháttaðri þjónustu við fólkið, í stuðningi við og fram-
lögum til margvíslegra menningarmála. I dag er það, í ljósi reynsl-
unnar, ekki mikill vandi að velja og vera samvinnumaður.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur, á 80 árum, unnið okkur Skagfirð-
ingum meira gagn en metið verður, — ekki aðeins okkur, félags-
mönnunum, heldur og einnig hinum, sem andhverfir hafa verið
á anda o° athöfn. Öllum hefur félamð orðið til nokkurs framdrátt-
O O
ar. Það hefur reynzt óumdeilanleg lyftistöng atvinnulífs og fram-
fara á félagssvæðinu, bæði í sýslu og kaupstað, svo að þar er engin
stofnun önnur, sem nálgast það að vera sambærileg. Og framundan
er óravíður vettvangur, þar sem hvergi sér út yfir þau verkefni, sem
máttur samtaka og samvinnu einn fær leyst með heilbrigðum hætti.
Kaupfél. Skagf. er og á að vera þjónustufyrirtæki fólksins. Það
sinnir þörfum okkar árið um kring. En félagið er líka annað og
meira en þjónustustofnun þeirra, sem við það skipta. Það skapar
eignir, verðmæti, sem aldrei verða flutt á brott úr héraði. Menn
koma og menn fara. Einstaklingar hverfa á braut, sumir með miklar
eignir og gilda sjóði, sem þeir hafa aflað í heimabyggð sinni, bæði
í bæ og sveit. Við þessu er að sjálfsögðu ekkert að segja. Eignir kaup-
félagsins verða hins vegar aldrei færðar á annað landshorn. Þær
verða um aldur kyrrar í héraði.
Maðurinn fæðist, þroskast, fellir af — og deyr. Það getur tekið
manninn 80 ár að fæðast — til að deyja. Hugsjón fæðist og þroskast.
En framtíðarhugsjón er ekki markaður aldur. Hún eldist ekki, deyr
ekki. Henni er áskapað að lifa.
80 ára saga Kaupfélags Skagfirðinga er mikil saga, sigursaga. Hún
er um leið þróunarsaga þessa héraðs. Þar er órofa samband í milli,
svo að ekki verður sundur greint. Kaupfélagið er eign héraðsbúa,
hold af þeirra holdi. Vegni þeim illa, kemur það niður á félaginu.
Hallist hagur kaupfélagsins, hlýtur það óhjákvæmilega að bitna á
héraðsbúum. Nú, á 80 ára afmæli félagsins, þökkum við heilum
huga störf þess á liðnum árum og óskum þess, sjálfra okkar vegna,
héraðsins vegna, að ganga þess á ókomnum árum megi verða óslitin
sigurganga; óskum þess, að hugsjón samvinnustefnunnar, andi frum-
herjanna, einlægur og falslaus vilji til samstilltra átaka, megi endast
okkur Skagfirðingum og erfast frá einni kynslóð til annarrar. Þá
mun afmælisbarnið ná ásköpuðum þroska, er aldir renna.
G. M.