Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 10
10
GLÓÐAFEYKIR
Annálsbrot
Nokkrir atburðir i S0 ára sögu K. S.
1889-1895:
1890-1900:
1901-1905:
1906-1910:
1911-1915:
1916-1920:
1921-1925:
1926-1930:
1931-1935:
1936-1940:
Keypt „Pöntunarfélagshúsið“ á Sauðárkróki. Reist
vöruskýli í Hofsósi. Myndaður varasjóður („1% af
vöruverði félagsins“). Haldinn, að frumkvæði K. S.,
sameiginlegur fulltrúafundur kaupfélaganna norð-
lenzku (Kf. Skagf., Kf. Eyf. og Kf. Þing.) til þess að
gangast fyrir og undirbúa stofnun sambands þessara fé-
laga. Fyrsti vísir að „Sambandskaupfélagi íslands" —
S. í. S„ er síðar varð. Starfaði 1893—1899, að báðum
árum meðtöldum.
Keypt húseign á Sauðárkróki. Skorað á sambandsfund
kaupfélaganna (1897) að athuga, hvort ekki væri heppi-
legt að félögin réðu sameiginlegan erindreka, „helzt
innlendan“. er starfaði á þeirra vegum erlendis. Bætt
aðstaða til uppskipunar á vörum í Hofsósi.
Keypt vöruskýli í Kolkuósi. Reist á sarna stað skýli
vegna fisttöku. Reist stórhýsi á Sauðárkr. („Kaupfélags-
húsið“, síðar nefnt ,,Grána“).
„Söludeild" sett á stofn (1906). Keyptar 3 húseignir
á Sauðárkr. („Egilsenshús", „Magnúsarhús“, „Einars-
hús“). Reist sláturhús (1908). Við eignum þess og rekstri
tók síðan sérstakt félag, Sláturfél. Skagf. (1910). Allar
vörubirgðir Söludeildar seldar (Pálma Péturssyni —
1910).
Selt „Kaupfélagshúsið“ (Grána) svo og fleiri húseignir
og lóðir.
Keypt verzlunar- og íbúðarhús Sigurgeirs Daníelsson-
ar (1918). Egilsenshús og vörugeymsluhús selt Slátur-
félagi Skagf. Byggt við og ofan á Sigurgeirshús (1920).
Húseignir í Hofsósi seldar Kaupfél. Fellshrepps.
Keyptar lóðir. Reist frystihús (1928) og sláturhús (’29).
Stórhýsið „Grána“ keypt (1931). Stofnað Mjólkursaml.
Skagf., samlagshús reist og vélar keyptar (1934—1935).
Keyptar húseignir og lóðir.